Newcastle – Everton 2-3

Mynd: Everton FC.

Þá er komið að útileik við Newcastle í 28. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Ritari er á ferðalagi um Þýskaland og ætlar að reyna að fjalla um leikinn af knæpu í Munchen.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Branthwaite, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Gana, Garner, McNeil, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Beto.

Varamenn: Travers, Keane, Patterson, Röhl, Iroegbunam, Armstrong, George, Dibling, Barry.

Það tókst að ná útsendingunni, hljóðlaust að vísu, en ekki viss um að þýskur þulur hefði bætt miklu við. En skýrslan verður væntanlega styttri fyrir vikið þar sem ég get ekki hlustað á meðan ég hripa niður punkta. Og þó, sjáum til.

Ágætis byrjun á leikjum hjá Everton, nokkuð mikið með boltann en engin ógnun á mark frá liðunum tveimur. Fyrsta skotið á 9. mínútu, utan teigs frá Ndiaye, en enginn hætta. Það næsta á 11. mínútu, frá McNeil, en vel yfir markið.

Ekkert að frétta af strikamerkjunum fyrr en á 13. mínútu, þegar Joalinton setti boltann hátt yfir af löngu færi.

Á 15. mínútu fengu þeir innkast, en Gana vann af þeim boltann og Everton komst í skyndisókn, sem endaði með rangstöðu.

Everton komst svo í aðra skyndisókn á 18. mínútu en uppskar aðeins horn. En upp úr hornspyrnunni kom mark! Og það var af einföldu gerðinni, hár bolti á nærstöng, beint á Branthwaite, sem skallaði í hliðarnetið fjær. 0-1 fyrir Everton!

Við þetta jókst ákefðin frá Newcastle. En það varði bara í nokkrar mínútur og dó svo út. Einn skalli á mark frá þeim á 30. mínútu en það var bara æfingabolti sem Pickford greip.

En svo á 32. mínútu kom grísamark frá þeim þegar þeir náðu skoti á mark af löngu færi, sem breytti um stefnu af Branthwaite og fór í sveig yfir Pickford. Ekki beint með gangi leiksins.

En Everton beið ekki boðanna heldur komust yfir strax í næstu sókn. McNeil gerði vel að ná fínu skoti utan teigs hægra megin, í átt að stöng vinstra megin, sem Nick Pope reyndi að slá aftur út í teig, fyrir markið einhverra hluta vegna, og þar var Beto mættur, þrumaði inn og þakkaði fyrir sig. Varnarlína Newcastle svaf á verðinum og Pope í ruglinu. Augljóst hver er ekki aðalmarkvörður Englands.

Andleysi yfir leik Newcastle eftir þetta. Eitt langskot undir lok hálfleiks, frá Hall, en boltinn hátt yfir.

1-2 í hálfleik.

Fyrsta skot seinni hálfleiks kom strax í upphafi hans, frá McNeil, sem átti lúmskt skot niðri í hægra horn en Pope vandanum vaxinn, í þetta skiptið. 

Á 50. mínútu hefði Newcastle getað lent í miklum vandræðum þegar þeir felldu Beto sem var fremstur og kominn í gegn. VAR skoðaði bara hvort þetta væri víti, sem það var augljóslega ekki – en Newcastle menn heppnir að sleppa þar við DOGSO rautt. 

Eftir um klukkutíma leik náði Gordon skot á mark, en hann hafði ekki sést í leiknum fram að því. Skotið hins vegar varið. 

Newcastle menn voru síðan stálheppnir þegar Everton komst í skyndisókn og Beto gerði vel að halda boltanum inni á vellinum (þegar stefndi í innkast) og skilja varnarmann eftir. Komst einn gegn markverði og náði að koma boltanum framhjá Pope, en setti boltann í slána.

Eftir þetta óttaðist maður að Everton myndi tapa þessu niður, enda tvö atvik farin forgörðum sem hefðu átt að gera út um leikinn. En Newcastle menn rembdust eins og þeir gátu að skapa færi með því að koma boltanum fyrir mark, en uppskáru lítið. Vörn Everton hélt.

Barry kom svo inn á fyrir Beto á 73. mínútu og Armstrong inn fyrir McNeil á 81. mínútu.

Newcastle þurftu hins vegar annað grísamark til að jafna þegar þeir tóku langskot sem, líkt og í fyrra marki þeirra, breytti um stefnu af leikmanni Everton og endaði i netinu. Í þetta skiptið af Gana, sýndist mér. 2-2.

En Everton skoraði bara aftur – strax í næstu sókn! Gordon tapaði boltanum utan teigs. Yndislegt að sjá og Ndiaye var fljótur að hugsa og sendi til Dewsbury-Hall, sem brunaði inn í teig vinstra og sendi fyrir. Varnarmaður Newcastle reyndi að koma í veg fyrir mark með því að hrinda Barry, sem var í dauðafæri, en Barry féll við… og skoraði með rassgatinu. Bókstaflega. 2-3 fyrir Everton!

Keane kom inn á fyrir Dewsbury-Hall í kjölfarið.

6 mínútum var bætt við en þegar tvær mínútur voru búnar af uppbótartíma skiptu Þjóðverjarnir á barnum um stöð til að horfa á sitt heimalið, Bayern Munchen og maður þurfti þar með að reiða sig á textalýsingu BBC. Sýnist sem ekki hafi mikið gerst það sem eftir lifði leiks þó. 

Verðskuldaður 2-3 sigur Everton því í höfn!

Einkunnir Sky Sports ekki komnar. Uppfæri síðar!

5 Athugasemdir

  1. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Moyes hefur ákveðið að það besta í stöðunni sé að byrja leikinn tveimur færri. Í alvöru! Beto og McNeil??? Er maðurinn að biðja um starfslokasamning? Þetta gæti orðið helvíti ljótt en vonum bara það besta.

  2. Finnur Thorarinsson skrifar:

    Geggjað að sjá þá taka mótlætinu svona vel — bruna bara í sókn í tvígang og komast aftur yfir!

  3. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Það verður að gefa mönnum kredit þegar þeir gera vel. Beto var frekar góður í dag og McNeil var allt í lagi. En mikið fjandi var þetta sætur sigur.

  4. Diddi skrifar:

    þegar maður býst ekki við neinu en vonar það besta

  5. Orri skrifar:

    Ánægjuleg 3 stig ì dag við þurftum á þeim að halda.

Leave a Reply to Orri