Everton – Burnley 2-0

Mynd: Everton FC.

Everton leikur við Burnley á heimavelli kl. 19:30 í kvöld í 29. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. 

Ritari er á ferðalagi í Munchen og ætlar að sjá hvort ekki er hægt að ná leiknum hér einhvers staðar í nágrenni svo hægt sé að skila af sér skýrslu. 

Markmið þessara tveggja félaga á tímabilinu eru gjörólík, en Burnley eru í 19. sæti deildar (næstneðstir) með 19 stig á meðan Everton horfir upp á við og á möguleika að ná Evrópusæti að tímabili loknu. En þrátt fyrir að 11 sæti skilji liðin að þá er formið í síðustu 6 leikjum mjög svipað hjá þessum liðum: bæði lið með tvö jafntefli en Everton með tvo sigra á móti einum hjá Burnley. En þegar horft er til lengri tíma var þessi sigur þeirra sá eini í um 18 eða 19 leikja hrinu án sigurs í úrvalsdeildinni. Hjá Everton eru Coleman, Grealish og Alcaraz frá vegna meiðsla en aðrir ættu að vera heilir. Veit ekki til þess að neinn sé meiddur hjá Burnley.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Branthwaite, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Gana, Garner, McNeil, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Beto.

Varamenn: Travers, Keane, Patterson, Iroegbunam, Röhl, George, Dibling, Armstrong, Barry.

Lítið að frétta frá upphafi, Everton mun meira með boltann (meira en 70 og eitthvað prósent fyrsta korterið) en einhvern veginn voru þeir fastir í öðrum gír og lítil ógnun af Burnley, sem sátu djúpt.

Fyrsta skotið á 20. mínútu frá Dewsbury-Hall eftir horn en yfir markið. Engin hætta.

Fyrsti hálftíminn reyndist eiginlega alveg hundleiðinlegur, ef maður á að vera heiðarlegur, en þá skoraði Tarkowski. McNeil nældi í aukaspyrnu úti á kanti hægra megin og Garner tók spyrnuna. Sendi inn í teig, utarlega vinstra megin, á Tarkowski sem skallaði í hliðarnetið. 1-0 fyrir Everton!

Á annarri mínútu uppbótartíma var Branthwaite næstum búinn að endurtaka leikinn frá Newcastle sigrinum, þegar hann skallaði fyrirgjöf frá vinstri, eftir aukaspyrnu, beint í átt að fjærneti, en markvörður varði. Líklega búinn að horfa á leikinn „á spólu“.

Í kjölfarið lifnaði svolítið yfir sóknarleik Everton sem komust þó ekki í dauðafæri enda vörðust Burnley menn vel.

1-0 í hálfleik.

Everton kom boltanum í netið á 54. mínútu eftir ágætlega útfærða skyndisókn, sem Ndiaye kláraði með marki en var réttilega dæmdur rangstæður eftir að Everton komst þrír-á-tvo.

En Everton náði að skora annað löglegt mark á 60. mínútu, þegar McNeil fann Ndiaye utan við teig og hann fann Dewsbury-Hall sem brunaði inn í teig og setti boltann framhjá markverði. 2-0 fyrir Everton!

Eftir 66 mínútur sýndi tölfræðin að Everton var búið að ná 12 tilraunum á mark, þar af fjórum á rammann. Burnley með eitt skot, ekkert á réttan stað.

Gueye átti frábært skot innan teigs á 74. mínútu en í slána og út. Óheppinn þar.

Everton átti svo ágætlega útfærða aukaspyrnu á 75. mínútu, sem endaði með skoti frá Dewsbury-Hall, en markvörður varði.

Ndiaye náði svo að skapa usla með fyrirgjöf frá hægri á 76. mínútu, en ekki kom færi úr því. Everton þó að leita að þriðja markinu. Burnley menn buðu upp á skot að marki hinum megin. Hefði reyndar eins getað verið skot að hornfána, hættan var ekki meiri.

Barry og Keane inn á fyrir Beto og Branthwaite á 82. mínútu. Iroegbunam og George svo inn á fyrir Gueye og McNeil á 87. mínútu.6 mínútum bætt við og Burnley menn náðu einu skoti í viðbót, en engin hætta. Ndiaye út af fyrir Dibling á 94. mínútu.

En Pickford þurfti að stela senunni í blálokin, eins og í síðasta leik, með frábærri vörslu á síðustu sekúndum. Mark hefði reyndar litlu breytt.

2-0 sigur staðreynd. Verðskuldaður sigur.

Einkunnir Sky Sports ekki komnar. Uppfæri síðar.

6 Athugasemdir

  1. Ingvar Bæringsson skrifar:

    McNeil!! Aftur!! Ég veit að hann var ekki ömurlegur í síðasta leik, en það var þá.
    Annars skiptir það svo sem engu máli við getum ekki unnið á heimavelli og það breytist örugglega ekki í kvöld heldur, allra síst með McNeil í byrjunarliðinu. Ég vona bara að við töpum ekki, en það kæmi samt ekkert á óvart.

    • Ari S skrifar:

      Ingvar, við töpum þessu 0-2 og Tarkowski fær rautt á 75. mín.

      • Ingvar Bæringsson skrifar:

        Það hefði ekki komið á óvart miðað við hvernig allt hefur gengið á afturfótunum á heimavelli síðan í byrjun desember. En þetta hafðist nú sem betur fer, meira að segja frekar auðveldlega.

        • Ari S skrifar:

          Já þetta var flottur sigur og kærkomið að vinna loksins á heimavelli og næla í 3 stig. Til hamingju allir stuðningsmenn 🙂

  2. Finnur Thorarinsson skrifar:

    Ég sé pínu eftir því núna að hafa farið af pöbbnum eftir Everton leikinn og ekki horft á hinn leikinn…

    „I’ve never felt more like singing the blues…“

  3. Viðar Einarsson skrifar:

    Ég var á leiknum og þetta var frekar auðvelt, hef ekki alltaf verið hrifinn af McNeil en hann hefur bara verið þokkalegur í síðustu tveimur leikjum en ég myndi nú alltaf kjósa að hafa einhvern annan þarna en hann lagði sig allan í verkefnið á þriðjudagskvöldið, maður sér það mun betur á vellinum heldur en heima í stofu þegar myndavélin er ekki alltaf á honum.
    En geggjað að koma á Hill Dickinson völlinn, geggjað mannvirki þótt maður sakni Goodison Park.

Leave a Reply