Íslendingaferð: Everton – Bournemouth

Mynd: Everton FC.

Uppfært 13. nóv: Örfá sæti laus. Skráningarfrestur til mánudags.

Nú gefst ykkur tækifæri til að fara með Everton klúbbnum í formlega Íslendingaferð til að sjá Everton taka hressilega á móti Bournemouth á Hill Dickinson, en þessi ferð er nú komin í sölu hjá Verdi Travel! Athugið að þetta verð er aðeins í boði í stuttan tíma.

Þetta er frábært tækifæri til að heimsækja Everton borgina og sjá okkar ástsæla lið leika listir sínar á Hill Dickinson leikvanginum, langflottasta leikvangi Englands (og þó víða væri leitað)!

Við í stjórn settum upp ferð á leikinn í samvinnu við Verdi ferðaskrifstofuna og þið getið skráð ykkur hér:
https://www.verditravel.is/is/ferdir/everton

Hér eru helstu upplýsinganar:

Lykildagsetningar: Fjörið byrjar á föstudegi (brottför 16. apríl 2027), leikdagur á laugardegi og heim aftur 19. apríl (mánudagur).
Flug: Icelandair (FI440) klukkan 08:00 til Manchester (lendum 11:40 að breskum tíma).
Heim: Icelandair (FI441) klukkan 13:05 frá Manchester til Keflavík (lendum 14:50 að íslenskum tíma).
Rúta: Innifalin, til og frá Manchester flugvelli.
Miði á leik: Að sjálfsögðu innifalinn.
Aukaleikur: Aukaleikur er ekki innifalinn í verðinu, en ef áhugi er fyrir hendi erum við allir af vilja gerðir til að skipuleggja aukaleik. Í síðustu ferð mynduðust tveir hópar, sem báðir fengu frábæra upplifun — annar fór fyrst í Dixie Dean VIP room á Goodison Park og horfði svo frá Directors box stúkunni á kvennalið Everton leika í WSL deildinni. Hinn hópurinn fór til Manchester borgar að horfa á Liverpool tapa 0-3.
Hótel: Delta Hotels Liverpool City Centre (maps), sem er rétt hjá Liverpool One verslunarklasanum. Morgunverðurinn er innifalinn.
Leikdagur: Everton – Bournemouth 17. apríl klukkan 15:00 (að breskum tíma).
Verð: 157.500 – 194.500 kr. (fer eftir fjölda per herbergi).

Nánar um verðið: Ef þrír koma sér saman um herbergi þá borgar hver og einn 157.500 kr. á mann. Verð í tvíbýli er 162.500 kr. á mann en þeir sem vilja vera einir í herbergi borga 194.500 kr.

Uppfært 13. nóv: Athugið að þetta verð er einungis í boði þangað til á mánudaginn (16. nóvember). Verð er skv. gjaldskrá Verdi Travel og er birt hér með fyrirvara um villur.

Rétt að geta þess að síðasta ferð sló aðsóknarmet því 42 fóru í þá ferð en í þetta skiptið fengum við úthlutað nokkuð færri sætum. Eins og þá gildir: fyrstir koma, fyrstir fá. Fólki er að sjálfsögðu frjálst að bóka eigin ferðir til Liverpool á leikinn (og við getum mögulega aðstoðað við miðakaup — þó við getum ekki lofað því), en ferðalangar sem panta í gegnum Verdi eru í forgangi á miða á leikinn.

6 Athugasemdir

  1. Finnur Thorarinsson skrifar:

    Við Halli (formaður) vorum að bóka okkur. Ert þú búinn að bóka?

  2. Þorri skrifar:

    Góðadagin félagar verða einhverir á olver á morgun

    • Finnur Thorarinsson skrifar:

      Já, við Dylan og Halli ætlum að mæta. Hef ekki heyrt í öðrum.

  3. Jóhann finnbogason skrifar:

    Búinn að bóka 2 ferðalanga

  4. Finnur skrifar:

    Skv. mínum tölum eru 18 manns búnir að bóka mætingu. Ekki missa af þessu.

Leave a Reply