Everton – Newcastle 3-1 (deildarbikar)

Mynd: Everton FC.

Í kvöld var komið að stórleik í enska deildarbikarnum!

Þetta var þriðja umferð deildarbikarsins, en í fyrri umferðum sigraði Everton lið Preston 4-0 á útivelli í annari umferð, og svo Wolves á heimavelli 1-0 í þriðju umferð. Í kvöld var svo komið að Newcastle á heimavelli í 16 liða úrslitum.

Þetta var algjört dauðafæri fyrir það lið sem myndi vinna í kvöld, til að komast í undanúrslit deildarbikarsins, því að fyrir leik var búið að draga í næstu umferð — og mótherjarnir myndu verða Fleetwood Town, sem eru í ensku D-deildinni (en náðu samt að slá út Arsenal á dögunum í vítaspyrnukeppni). En það þarf að sigra bæði Newcastle og Fleetwood, og Everton kláraði allavega verkefni kvöldsins með sóma: 3-1 sigri.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, O’Brien, Tarkowski (fyrirliði), Röhl, Garner, Hackney, George, Dewsbury-Hall, Dibling, Barry.

Varamenn: Travers, King, Keane, Maitland-Niles, Nörgaard, Alcaraz, Armstrong, Johnson, Graham.

Sem sagt, þetta var svo til okkar sterkasta lið, fyrir utan það að Grealish og Branthwaite voru hvorugur í hóp (líkt og í síðasta leik). Mér skilst á góðum Newcastle vini mínum að þeir væru heldur ekkert að slá af, þannig að það var ljóst að þetta yrði spennandi! En þá að viðureigninni!

Þetta var mjög kaflaskiptur fyrri hálfleikur. Newcastle höfðu yfirhöndina í fyrri helming fyrri hálfleiks en svo snerist þetta alveg við.

Það var fátt um færi þangað til Newcastle náðu, eftir um 15 mínútur, langri hárri sendingu inn í teig, beint á Harvey Barnes, sem skallaði að marki, en Pickford sló það í horn. Kannski svona ágætis færi, skulum við segja. Eitthvað um hálffæri hjá þeim líka í kjölfarið, en mun minna að gerast í sókn Everton — framan af.

Fyrsta færi Everton kom á 20. mínútu þegar Mykolenko fann Hackney á auðum sjó inni í teig en Hackney náði ekki góðu skoti á mark í fyrstu snertingu. Hann var hins vegar bara að stilla miðið, kom svo í ljós!

Osula fékk svo flott færi á 27. mínútu hjá Newcastle, vinstra megin upp við mark Everton, en Tarkowski náði að stoppa það með algjörlega geggjaðri landsliðstæklingu. Það reyndist vendipunktur í leiknum, leyfi ég mér að fullyrða!

Því að fyrsta mark Everton kom á 35. mínútu eftir að George setti fína pressu á Newcastle á vinstri kanti út við hliðarlínu, sem leiddi til þess að varnarmaðurinn reyndi hreinsun fram á við en sparkaði boltanum í legginn á George. Þar með barst boltinn skyndilega til Hackney við vítateigshornið vinstra megin. Hackney sá hlaupið hjá Garner og gaf lága sendingu til hliðar á hann og Garner afgreiddi boltann snyrtilega í hornið niðri, hægra megin. Óverjandi fyrir markvörð Newcastle og staðan þar með orðin 1-0 fyrir Everton! Þulurinn var á því að markið hefði legið í loftinu hjá Everton.

Barnes fékk skotfæri, fyrir Newcastle, vinstra megin í teig Everton á 39. mínútu en setti hann nokkuð framhjá marki. Illa farið með gott færi þar. Ekki hans dagur, frekar en annarra hjá Newcastle.

Seinna mark Everton í fyrri hálfleik kom svo rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Dewsbury-Hall var felldur í miðri skyndisókn, á miðsvæðinu framarlega, en dómari dæmdi hagnað (sem betur fer) því að Barry náði lausa boltanum og fór með hann inn í teig vinstra megin, utarlega. Tók einn snyrtilegan snúning og sá svo Hackney koma á hlaupinu inn í teig og sendi, skulum við segja miðlungs-háan bolta, á hann, fyrir markið, sem Hackney setti í netið! Honum brást ekki bogalistin í annarri tilraun og staðan þar með orðin 2-0 fyrir Everton!!

Þess má geta að þetta var fyrsta mark Hackney fyrir Everton — ef mér skjátlast ekki! 

Og þannig var það í hálfleik. Eftir erfiða byrjun var nánast öll tölfræði með Everton í fyrri hálfleik og það sem skipti mestu máli var liðið komið í 2-0 forystu!

Stjóri Newcastle gerði þrjár breytingar í hálfleik en Moyes gerði enga breytingu á liði Everton, enda smá stígandi í spilamennskunni, eftir að hafa komist yfir erfiðasta hallann á fyrstu 20 mínútunum. Newcastle menn pressuðu svolítið frá upphafi seinni hálfleiks en uppskáru ekki eftir því. Wissa fékk hálffæri á 53. mínútu, sem ekkert kom úr.

Mouyes gerði eina skiptingu á 65. mínútu, þegar Hackney (á gulu spjaldi) fór út af fyrir Armstrong, á 65. mínútu. En þriðja mark Everton kom strax í kjölfarið. Það kom þegar Garner vann boltann á vallarhelmingi Everton, brunaði með hann fram og sendi frábæra stungusendingu á Dewsbury-Hall, sem leit upp og sendi, innan teigs Newcastle, beint á Barry, sem var fyrir framan nánast mitt markið, og hann einfaldlega lagði boltann fyrir sig í fyrstu snertingu, og setti hann svo snyrtilega upp í hægra hornið í mark Newcastle. Staðan þar með orðin 3-0 fyrir Everton! Game over!

Everton liðið þurfti svolítið að verjast í kjölfarið en stóð það vel af sér.

Alcaraz og Johnson komu svo inn á fyrir George og Dibling á 76. mínútu. Um tíu mínútum síðar komu svo Maitland-Niles og Nörgaard inn á fyrir Mykolenko (sem var á gulu spjaldi) og Dewsbury-Hall.

Newcastle menn juku pressuna eftir því sem á leið og færðu sína lykilmenn framar, en Everton vörnin stóðst ásóknina vel, svona heilt yfir.

Elanga átti skotfæri á 87. mínútu en lítil hætta þar. En aðeins örskömmu seinna náðu þeir óvæntri fyrirgjöf fyrir mark utan af vinstri kanti (frá þeim séð), þar sem Dan Burn stökk manna hæst (hvað var hann að gera fremstur allt í einu?!?) og skallaði í netið. Markið kom eiginlega upp úr engu og áður en boltinn var kominn aftur „í leik“ fór af stað sirkus þar sem menn voru farnir að toga hver í annan innan í marki Everton og gulu spjöldin fóru á loft, hægri vinstri (tvö á hvort lið). Pínu spes.

En það skipti litlu, því staðan var 3-1, ennþá Everton í vil, og þannig endaði þessi bikarleikur. Þremur mínútum var bætt við og þunginn jókst í sókn Newcastle, en það skipti engu, því Everton varðist vel og landaði þessum sigri.

Flott frammistaða og sigur í kvöld er það eina sem skipti máli. Fleetwood Town er næsta verkefni Everton í deildarbikarnum og ef Everton vinnur þann leik er liðið komið í undanúrslit deildarbikarsins — þar sem leikið verður heima og heiman (ef ég man rétt).

Áfram Everton!

Svona í lokin er rétt að minna fólk á formlega Everton ferð stuðningsmannaklúbbs okkar, en það er lítið eftir af skráningarfresti í þá ferð. Ekki missa af því!

3 Athugasemdir

  1. Jón Ingi Einarsson skrifar:

    Ja, það hefur aldeilis ræst úr þessum leik. Það verðu forvitnilegt að horfa á leikinn á mánudaginn. Það gæti orðið harka þá, miðað við hitann núna.

  2. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Flott frammistaða svona þegar á heildina er litið en maður spyr sig, hvar var þessi barátta, grimmd og ákefð um daginn gegn Chelsea, eða um síðustu helgi gegn Arsenal?? Þetta var trúlega besta frammistaða liðsins það sem af er tímabils og vonandi heldur það bara áfram svona.

  3. Finnur Thorarinsson skrifar:

    Frammistaðan heilt yfir mjög góð og geggjað að fá sigur í kvöld!

    Ég minni á að fresturinn til að skrá sig í formlega ferð klúbbsins er senn á enda. Ekki láta ykkur vanta!

    Nánari upplýsingar hér:
    https://everton.is/2026/10/27/islendingaferd-everton-bournemouth-i-april/

Leave a Reply