Mynd: Everton FC.
Það var stórleikur á dagskrá dag þegar Everton heimsótti Arsenal og þrátt fyrir hetjulega baráttu Everton og betri færi, þá stóðu Arsenal uppi sem sigurvegarar en 2-0 er miklu meira en þeir áttu skilið úr þessum leik.
Uppstillingin: Pickford (fyrirliði), Mykolenko, Keane, O’Brien, Garner, Gana, Iroegbunam, McNeil, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Beto.
Varamenn: Travers, Aznou, Patterson, Coleman, Röhl, George, Dibling, Armstrong, Barry.
Vörnin pínulítið löskuð hjá okkar mönnum, eins og sjá má, en hvorki Tarkowski né Branthwaite eru í hóp og er það skarð fyrir skildi. O’Brien og Keane því í miðverðinum og Garner í hægri bakverði, þrátt fyrir að bæði Coleman og Patterson séu á bekknum. Iroegbunam kemur inn á miðjuna en annars er þetta svipað og í síðasta leik, með Beto í framlínunni.
Ekkert að gerast fyrsta korterið eða svo, en svo átti Everton þrjár tilraunir á mark og Arsenal menn stálheppnir að fá ekki á sig mark í öllum tilfellum.
Fyrst þegar McNeil fékk boltann inni í teig og náði skoti af stuttu færi, sem liggjandi varnarmaður náði að verja með fótunum. McNeil var svo aftur að verki stuttu síðar, þegar hann náði flottu skoti utan teigs í innanverða stöngina og út. Boltinn hrökk til Ndiaye, sem var fremstur, en of óvænt og hann setti boltann rétt framhjá stöng, af stuttu færi. Þar hefði staðan átt að vera 0-1.
Dewsbury-Hall með næstu tilraun á mark, á 30. mínútu, fast skot utarlega í teig, en markvörður varði. Everton með fjögur fyrstu færin (!), en eina færi Arsenal skallafæri í upphafi leiks, sem telur ekki, því hann var rangstæður og Pickford varði hvort eð er.
Everton með síðasta færi fyrri hálfleiks. Skot af löngu færi, frá Gana, en auðvelt fyrir markvörð.
Staðan í hálfleik 0-0. Arsenal menn líklega sáttari við það en Everton menn.
Arsenal menn bættu nokkuð í í seinni hálfleik, en Everton átti fyrsta færið. Beto var þar að verki með skot af stuttu færi, sem markvörður Arsenal rétt náði að verja með hæl út við stöng. Þeir fengu svo loksins hættulegt færi á heimavelli á 63. mínútu, þegar Eze reyndi að setja boltann í sveig frá hægra vítateigshorni, og náði að koma boltanum framhjá Pickford, en setti hann rétt framhjá fjærstöng.
Barry kom svo inn á fyrir Beto á 69. mínútu.
Everton fékk ágætis skallafæri á 73. mínútu, eftir aukaspyrnu frá Garner, utan af kanti, vinstra megin. Þar var Keane í baráttu um skallann og vann það einvígi, en skallaði rétt framhjá fjærstöng. Aftur að skella hurð nærri hælum við mark Arsenal.
Eze svaraði með föstu skoti utan teigs á 76. mínútu, en svo til beint á Pickford og Röhl og Armstrong komu inn á fyrir Iroegbunam og McNeil um tíu mínútum síðar.
En á 89. mínútu skoruðu Arsenal menn óverðskuldað mark. Há sending barst inn í teig af hægri kanti (frá þeim séð), sem Pickford náði að slengja fingri í og breyta stefnu, en boltinn fór í sóknarmann Arsenal og hrökk af honum fyrir opið mark, þar sem Gyokeres potaði inn. Staðan orðin 1-0 og Arsenal ansi heppnir þar. Marrinelli átti svo fínt skot að marki á 93. mínútu, sem Pickford varði í horn, sem ekkert kom úr.
George kom svo inn á fyrir Gana á 95. mínútu, greinilega ætlunin að leggja allt kapp á að jafna, enda Everton með betri færi í leiknum og áttu allavega stig skilið. Everton fékk svo horn alveg undir lokin og settu alla leikmenn (þmt. Pickford í vítateig Arsenal), en fengu hins vegar mark í andlitið upp úr skyndisókn Arsenal.
2-0 óverðskuldað tap staðreynd.
Einkunnir Sky Sports ekki komnar. Uppfæri síðar.


Úff enginn Branthwaite og enginn Tarkowski, McNeil og Beto enn og aftur í byrjunarliðinu þetta gæti orðið verulega ljótt.
Ég kalla það gott ef við sleppum með 2-0 tap.
Oj bara ef þetta var ekki klárt dæmi um það sem kallað hefur verið meistaraheppni, þá veit ég ekki hvað það er. Ég bjóst við hinu versta en Everton spilað þennan leik frábærlega og voru bara óheppnir að skora ekki eitt eða tvö mörk áður en Arsenal skoraði. Pickford leit reyndar ekkert sérlega vel út í því marki.
O’Brien og Keane voru mjög góðir í dag, sem og eiginlega allt liðið. Það var þó súrt að sjá hvað Moyes var seinn til að gera skiptingar. McNeil hefði td mátt fara fyrr út af en hann gerði því hann var alveg búinn á því eftir ca 60 mínútur. George hefði líka mátt koma fyrr inn á því það vantaði einhvern með hraða sem mögulega hefði getað aðeins ógnað fram á við.
Flott frammistaða, svipað og við höfum séð frá Everton á útivelli hingað til undir Moyes. Mjög sáttur við það og þeir voru óheppnir að taka ekki allavega eitt stig úr þessum leik. Everton átti miklu betri færi og voru með hærra xG (expected goals) nánast allan leikinn (þangað til Arsenal grísaði einu inn). Svona er þetta stundum.
Markið eða mörkin voru ekki grís heldur algjört rugl hjá markverði okkar algjör hörmung.
Vissulega gerði Pikford mistök í úthlaupinu í fyrra marki Arsenal sem því miður féll síðan fyrir þá. Seinna markið er einhver ákvörðun sem er gerð með samþykki þjálfara og skrifast ekki á Pickford. Raya gerði líka mistök í allavega einu horni enn slapp með það. Sammála Ingvari um að það hefði verið skynsamlegt að gera skiptingar fyrr. Enn þetta var nú líklega ekki leikur þar sem að við reiknuðum með stigum enn hefði verið gott að fá 1.stig út úr þessum leik miðað við frammistöðuna.
Stigið var ì okkar höndum en við héldum ekki út leikinn.