Brentford – Everton 2-2

Mynd: Everton FC.

Það tók Brentford innan við 2 mínútur að fá víti í leiknum þegar sóknarmaður þeirra komst einn á móti Pickford, sem reyndi að stoppa hann en felldi og gaf þeim þar með víti. Réttur dómur, sýndist mér og Igor Thiago skoraði örugglega af punktinum, niðri í vinstra hornið. Staðan orðin 1-0 fyrir Brentford.

Lítið að gerast eftir markið. Brentford betra liðið fyrstu 20 mínúturnar eða svo. Branthwaite átti eitt langskot á 19. mínútu, en lítil hætta, en svo fór Everton að komast betur inn í leikinn og stuttu síðar gaf Ndiaye frábæra sendingu frá vinstri, þvert á markið, og Beto var hársbreidd frá því að pota inn — en náði ekki. Beto fékk svo dauðafæri eftir skot frá Gana, sem markvörður Brentford varði, en frákastið fór til Beto sem náði skot á mark, en markvörður varði vel. Beto var dæmdur rangstæður eftir á, en mér sýndist það vera svo tæpt að það hefði mögulega verið leyft af VAR ef hann hefði skorað.

En Everton náði að jafna á 25. mínútu. Aðdragandinn byrjaði með pressu á vinstri bakvörð Brentford og Jake O’Brien vann boltann af honum hægra megin í teig, sendi boltann hratt til Gana, sem sendi háan bolta inn í teig, fyrir mark, sem Beto skallaði inn. 1-1.

Everton átti markið skilið, fannst manni, enda lítil ógnun af Brentford eftir vítið, en þeir náðu þó skoti á mark á 33. mínútu sem Pickford varði í horn (sem ekkert kom úr). Svo náðu þeir fínum skalla á mark á 38. mínútu, sem endaði í þverslánni og Pickford varði skalla úr frákastinu. 

Ekki mikið meira að segja um fyrri hálfleik, staðan jöfn 1-1. Engin breyting á liðinu í hálfleik.

Brentford menn byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti, líkt og þann fyrri. Þeir fengu ágætis skallafæri eftir aukaspyrnu á 48. mínútu sem þeir skölluðu í ofanverða slá og út af.

Garner var svo næstum búinn að búa til að dauðafæri fyrir Beto á 61. mínútu þegar hann tók aukaspyrnu frá miðlínu beint inn í hlaupalínu Beto sem komst einn á móti markverði en markvörður náði að kasta sér á boltann og koma í veg fyrir skotið.

Everton komst í skyndisókn á 65. mínútu þegar Ndiaye brunaði upp vinstri kantinn og inn í teig, náði skoti í átt að fjærhorni en það breytti um stefnu af bakverðinum, yfir í nærhornið, og markvörður Brentford rétt náði að vera með fætinum. Brentford menn stálheppnir þar.

Þeir voru aftur heppnir á 73. mínútu þegar Pickford sendi langan bolta fram völlinn sem aftasti maður Brentford misreiknaði algjörlega þegar hann reyndi að skalla og boltinn endaði hjá Dewsbury-Hall sem komst alla leið að markverði. Bakvörður Brentford náði hins vegar að hlaupa hann uppi, þannig að Dewsbury-Hall tók ákvörðun um að stoppa og taka smá snúning áður en hann tók skotið, en markvörður Brentford náði að blokkera það. Þar hefði staðan geta verið orðin 1-3 fyrir Everton og Brentford menn hefðu ekki getað kvartað yfir því.

Barry, Iroegbunam og George komu svo inn á fyrir Beto, Gana, og McNeil, en stuttu síðar náðu Brentford að skora mark. Kantmaður þeirra, hægra megin (frá þeim séð), fékk óáreittur að vaða inn í vítateig Everton og náði skoti. Skotið fór í síðuna á Igor Thiago og breytti um stefnu, sem gerði Pickford mjög erfitt fyrir að verja og boltinn lak inn. 2-1 fyrir Brentford.

Lánsmaðurinn okkar, Tyrique George, var líflegur í þennan tíma sem hann fékk inni á velli og náði flottu skoti á mark á 88. mínútu eftir að hafa leikið sér smá að varnarmönnum Brentford en markvörður Brentford náði að verja skotið og gefa horn, en ekkert kom úr því.

En Everton náði að jafna í uppbótartíma eftir að hafa gert svolitið harða hríð að marki Brentford. Jake O’Brien náði föstu skoti frá D-i vítateigsins, sem markvörður Brentford átti ekki séns í og boltinn hefði farið í hornið niðri vinstra megin ef varnarmaður þeirra hefði ekki náð að blokkera boltann „á línu“. En boltinn féll vel fyrir Dewsbury-Hall, sem var vinstra megin í teig (frá okkur séð) og þrumaði að marki. Boltinn fór framhjá einum varnarmanni og gegnum klofið á öðrum, sem og í gegnum klofið á markverði Brentford og í netið. Staðan orðin jöfn 2-2!

Brentford menn fengu eitt skallafæri í lokin, en náðu ekki að nýta það og jafntefli því niðurstaðan.

Það var mikilvægt að tapa ekki þessum leik, því það eru ansi mörg lið sem eru í keppni við Everton um Evrrópusæti í ár og mikilvægt að hleypa Brentford ekki fram úr sér. 

Einkunnir Sky Sports: Pickford (7), O’Brien (6), Tarkowski (6), Branthwaite (6), Mykolenko (6), Garner (7), Gueye (7), McNeil (6), Dewsbury-Hall (7), Ndiaye (6), Beto (7). Varamenn: Barry (5), Iroebugnam (5), George (6). Útileikmenn Brentford menn fengu lakari einkunnir, aðeins tveir með 7, einn með 5 og annar 4. Markvörður þeirra hins vegar valinn maður leiksins, með 8.

2 Athugasemdir

  1. Orri skrifar:

    Stig er stig ég er sáttur eftir að við lendum 2 sinnum undir.

  2. Teddi skrifar:

    Gæti reynst mjög dýrmætt stig.
    Hlakka til komandi helgar…

Leave a Reply