Everton – Man City 3-3

Mynd: Everton FC.

Everton tók á móti Man City í kvöld á Hill Dickinson leikvanginum kl. 19:00 og lyktaði þeim leik með jafntefli eftir mjög fjörugan seinni hálfleik. 

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Keane, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Iroegbunam, Röhl, Garner, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Beto.

Varamenn: Travers, Patterson, Coleman, Alcaraz, McNeil, George, Dibling, Armstrong, Barry.

Sýndist þetta vera 4-3-3 uppstilling í upphafi, með Ndiaye á vinstri kanti, Dewsbury-Hall á hægri kanti og Beto í miðjunni. Iroegbunam var á miðsvæðinu með Röhl hægra megin við sig og Garner vinstra megin.

City menn einokuðu boltann frá upphafi en Everton lokaði vel á þá og voru reiðubúnir að sækja hratt þegar færi gáfust. City fengu eitt skotfæri inni í teig á 18. mínútu en skutu beint á Pickford. Það verður að viðurkennast að það var hundleiðinlegt að fylgjast með boltanum sem City bauð upp á í fyrri hálfleik og maður var þakklátur fyrir að geta hraðspólað yfir valda kafla í leiknum.

Everton svörðu með skoti frá Dewsbury-Hall sem varnarmaður renndi sér fyrir og setti aftur fyrir markið. Everton fékk svo dauðafæri eftir frábæran sprett Röhl upp hægri kant og hann sendi stutta sendingu fyrir mark á Beto sem var í dauðafæri en markvörður náði að breyta stefnu boltans áður en Beto komst í að pota í autt netið.

En Doku skoraði svo mark á 43. mínútu alveg við vítateigsjaðarinn og það var af glæsilegri endanum. Smurði boltanum upp í samskeytin vinstra megin. Þetta var eina almennilega skotið frá þeim á markið í fyrri hálfleik og það var náttúrulega óverjandi.

0-1 í hálfleik.

City byrjuðu seinni hálfleikinn af miklum krafti og einbeitingu en sköpuðu sér ekki markverð færi til að byrja með. Everton beinskeyttari og komst í skyndisókn á 60. mínútu sem endaði með skoti frá Ndiaye sem Donnarumma þurfti að kasta sér niður á til að verja með útréttri hendi, út við stöng vinstra megin (frá okkur séð). Heppnir þar.

Barry kom inn á fyrir Beto á 64. mínútu og örskömmu síðar var Ndiaye kominn í dauðafæri, einn á móti markverði, þegar tveir varnarmenn City ákváðu að láta boltann skoppa í stað þess að ráðast á boltann og Ndiaye komst inn fyrir þá og stalst í boltann! En því miður varði Donnarumma meistaralega frá honum. Langbesta færi leiksins og þar hefði staðan átt að vera 1-1. 

En á 69. mínútu náði Everton að jafna þegar varnarmaðurinn Marc Guehi reyndi sendingu aftur á markvörðinn sinn, Donnarumma, en allt of stutt og Barry nýtti sér það, komst inn í sendinguna og renndi boltanum auðveldlega framhjá markverði og í netið. Rangstaða var skoðuð, sem hefði verið galinn dómur, en dómarinn Michael Oliver tók rétta ákvörðun og staðfesti markið! 1-1!

Á 73. mínútu stal Ndiaye boltanum af Khusonov, sem var að gaufa með hann við vítateigsjaðarinn, og brunaði með boltann inn í teig. Sneri svo Khusonov á röngunni, með stöðugum stefnubreytingum, svo hann vissi ekki hvort hann væri að koma eða fara. En rétt áður en Ndiaye náði skoti á mark, alveg upp við mark, þá var Guehi mættur og tæklaði boltann á síðustu stundu og náði að bjarga marki. Skrýtið að hugsa til þess að þar hefði staðan getað verið 3-1 fyrir Everton, en í staðinn fékk liðið hornspyrnu.

En, Everton var farið að gera það að vana sínum í leiknum að skora strax um leið og City forðaði sér frá því að fá á sig mark, því að Jake O’Brien skoraði með skalla beint úr horninu! Everton komið í 2-1!!

Everton fékk séns til að skora þriðja markið á 76. mínútu þegar þeir komust í skyndisókn og voru um tíma tveir á einn varnarmann (þangað til varnarmaður náði að mæta og hjálpa). Færið endaði með skoti frá Ndiaye innan teigs, en Donnarumma varði vel.

City menn reyndu að svara með skoti úr aukaspyrnu, rétt utan teigs, á 78. mínútu, en rétt yfir slána.

En, þar sem gott færi hafði farið forgörðum hjá Everton stuttu áður þá hlaut að vera kominn tími á mark og það kom á 81. mínútu. Jake O’Brien var fljótur að hugsa þegar hann sendi á Röhl úr innkasti. Röhl brunaði upp hægri kantinn, komst framhjá bakverði City og náði að hoppa upp úr tæklingu bakvarðarins og komast í ákjósanlegt skotfæri inni í teig. Boltinn fór hins vegar í sköflunginn á varnarmanni og breytti lítillega um stefnu sem gerði það að verkum að Barry fékk boltann fyrir opnu marki og potaði inn. Staðan þar með orðin 3-1 fyrir Everton!! Áhorfendur City byrjuðu þar með að streyma út úr stúkunni.

En Erling Haaland minnkaði muninn jafn harðan eftir langa stungusendingu sem splundraði varnarlínu Everton. Stungusendingin setti hann einan á móti Pickford, með Keane nartandi í hælana á sér, og lyfti boltanum yfir Pickford og í netið. Staðan orðin 3-2 og áhorfendur City streymdu aftur inn í stúkuna.

Everton hefði átt að fá víti stuttu síðar, þegar Bernardo Silva tók Röhl í górillugrip inni í teig, þegar Garner tók hornspyrnu fyrir Everton, en Silva hékk í Röhl vel og lengi og endaði á að snúa hann niður. En ekki fékk Everton víti frekar en fyrri daginn. Óþolandi.

6 mínútum var bætt við og City menn lögðu allt kapp á að jafna. Patterson og Alcaraz komu inn á fyrir Röhl og Dewsbury-Hall á 92. mínútu. Armstrong kom svo inn á fyrir Iroegbunam á 95. mínútu. 

Markvörðurinn Donnarumma var farinn að mæta ítrekað í sóknina til að hjálpa þeim að skora og þeir hefðu getað brennt sig á því en sluppu með það. En á síðustu mínútunni skoraði Doku svo jöfnunarmark og það var eiginlega kópía af fyrra markinu, bara speglað. Skot við vítateigsjaðarinn vinstra megin og inn við fjærstöng. Óverjandi og óþolandi. Blaut tuska í andlitið á okkur og okkar mönnum.

Hundfúlt jafntefli því niðurstaðan, eftir ótrúlegan seinni hálfleik, en stigið hjálpar eiginlega hvorugu liðinu. Þar fór mjög gott færi forgörðum.

Einkunnir Sky Sports: Pickford (6), O’Brien (7), Tarkowski (6), Keane (6), Mykolenko (7), Iroegbunam (7), Garner (6), Rohl (7), Dewsbury-Hall (7), Ndiaye (6), Beto (6). Varamenn: Barry (8).

Það segir ákveðna sögu að City menn fengu skelfilegar einkunnir í leiknum, fyrir utan markvörð þeirra (7) og Doku (8). Meirihlutinn af restinni hjá þeim var með 5 í einkunn og örfáar sexur.

Crystal Palace á útivelli næst.

5 Athugasemdir

  1. Ingvar Bæringsson skrifar:

    0-1 í hálfleik, við eigum ekki séns, þetta verður bara enn eitt tapið fyrir þessum fjandans skítaklúbbi.

  2. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Djöfulsins helvítis óheppni.

  3. Finnur Thorarinsson skrifar:

    Þetta minnti mig svolítið á 4-0 sigurleikinn gegn „lærisneiðum“ Guardiola um árið, þegar allt gekk upp hjá okkar mönnum. Enginn skortur á almennilegum færum hjá Everton í þessum leik og með smá heppni hefði Everton getað unnið hann með þremur til fjórum mörkum. En frammistaðan lofar allavega góðu upp á framtíðina. Þetta stefnir í rétta átt.

  4. Finnur Thorarinsson skrifar:

    Mykolenko var valinn í lið vikunnar að mati BBC:
    https://www.bbc.com/sport/football/articles/cwy21xwnz10o?at_medium=RSS&at_campaign=rss

  5. Orri skrifar:

    Að er dapurlegt að vera tapa stigum í uppbótartíma ekki fyrsta skipti.

Leave a Reply