Crystal Palace – Everton 2-2

Mynd: Everton FC.

Everton mætti í heimsókn til Crystal Palace í 36. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en þetta var þriðji síðasti leikur á tímabilinu fyrir Everton, sem er í harðri baráttu um að ná sæti í Evrópukeppni á næsta tímabili. Palace menn eru nokkuð öruggir um að falla ekki í ár, en þeir eru með fókusinn á Conference Leage þar sem þeir spiluðu á fimmtudaginn og komust í úrslit, en þeir náðu rétt svo að halda fókus og ná jafntefli.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Keane, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Iroegbunam, Garner, Ndiaye, Dewsbury-Hall, Röhl, Beto.

Varamenn: Travers, Patterson, Coleman, Alcaraz, McNeil, George, Dibling, Armstrong, Barry.

Everton var með yfirhöndina frá upphafi, héldu boltanum vel og voru þolinmóðir að leita að opnunum. Palace menn komust ekki yfir miðju fyrstu 5 mínúturnar og Everton vann hvert innkastið og hornið á fætur öðru. Og upp úr einu slíku skoraði Tarkowski, eftir að Garner hafði sent háan bolta fyrir mark úr horni frá hægri (frá okkur séð). Palace maður reyndi að hreinsa frá marki með skalla en boltinn fór í öxlina á honum og endaði hjá Tarkowski á fjærstöng og hann var óvaldaður, nálægt marki, og þræddi boltann í netið framhjá varnarmönnum. 0-1 fyrir Everton eftir aðeins 5 mínútna leik!

Palace tóku miðju og komust þar með á vallarhelming Everton í fyrsta skipti og náðu meira að segja skoti að marki, en það endaði einhvers staðar úti á bílastæði. Þeir náðu þó að sækja í sig veðrið og setja meiri kraft í sóknarleik sinn og náðu skalla á átt að marki, en boltinn fór í öxlina á Tarkowski og út af.

Palace menn voru heppnir að fá ekki á sig mark úr skyndisókn á 14. mínútu þegar Garner náði að komast upp vinstri kantinn og senda fínan bolta fyrir mark á fjærstöng, framhjá markverði, þar sem Röhl var nálægt því að pota inn í autt markið. Þar hefði staðan getað verið 0-2.

En Palace menn áttu sín færi líka, eins og á 17. mínútu þegar þeir náðu skoti á mark af nokkuð stuttu færi, sem Pickford varði með fæti og út og þar vann Ndiaye boltann og brunaði í skyndisókn. Dewsbury-Hall og Röhl voru einnig mættir í skyndisóknina og Ndiaye og Dewsbury-Hall náðu vel saman, og sá síðarnefndi náði að komast framhjá síðasta varnarmanni og reyna skot einn á móti markverði, sem sá við honum, því miður. Þar hefði Dewsbury-Hall getað gert betur og staðan hefði getað verið 0-3 á þeim tímapunkti og Palace menn hefðu ekki getað kvartað.

En í staðinn jöfnuðu Palace menn á 34. mínútu þegar sóknarmaður þeirra _ náði skoti á mark innan teigs. Keane náði að stoppa skotið en ekki stjórna boltanum sem fór beint aftur á sóknarmann þeirra, og hann skoraði í annarri tilraun. Staðan orðin 1-1 eftir jöfnunarmark sem þeir áttu alls ekki skilið.

Palace menn hefðu svo getað fengið mjög soft víti á 37. mínútu þegar Garner stjakaði við sóknarmanni þeirra, sem var úr jafnvægi, svo hann féll við. Ekkert dæmt. Þulirnir heyrðist mér þó á því að þetta hefði ekki verið víti.

Everton fékk nokkrar hornspyrnur undir lok fyrri hálfleiks og í einni slíkri reyndi Dewsbury-Hall skot beint úr horni á 43. mínútu sem markvörður þurfti að hafa sig við að slá yfir slána. Í öðru horni var Ndiaye nálægt því að setja boltann í netið en hreinsað á línu.

1-1 í hálfleik.

Líkt og í fyrri hálfleik skoraði Everton strax í upphafi hálfleiks þegar Tarkowski hreinsaði boltann fram völlinn, beint í hlaupaleiðina hjá Beto sem komst inn í teig með varnarmann í sér. Varnarmaðurinn var næstum búinn að komast í boltann en Beto náði að skýla boltanum vel og snúa svo varnarmanninn af sér og renna boltanum í gegnum klofið á Dean Henderson í marki Palace. Everton þar með komið yfir aftur, 1-2!

Garner átti flott skot beint úr aukaspyrnu af löngu færi á 53. mínútu sem markvörður þurfti að verja í horn. Palace menn reyndu að svara með skalla á mark af þó nokkru færi á 57. mínútu sem Pickford greip og startaði svo bara skyndisókn með því að kasta boltanum alveg ótrúlega vegalengd, alveg yfir á vallarhelming Palace, beint í hlaupalínuna hjá Dewsbury-Hall. Hann var næstum kominn í ákjósanlega stöðu en markvörður og varnarmaður náðu einhvern veginn í sameiningu að stoppa hann. Hefði annars verið geggjuð stoðsending fyrir Pickford!

Palace menn náðu að skapa hættulegt færi með háum bolta frá vinstri á fjærstöng þar sem Sarr var mættur, en Keane náði að trufla hann og Sarr fékk einhvern veginn boltann í bakið á sér og þaðan var hann næstum farinn inn (boltinn það er að segja). En Pickford náði að verja meistaralega í horn, sem ekkert kom úr.

Barry kom svo inn á fyrir Beto á 70. mínútu.

En á 77. mínútu náðu Palace menn að jafna aftur. Einföld lág sending frá vinstri (frá þeim séð), þvert á markið, inn í miðjan teiginn og enginn af varnarmönnum Everton var þar að dekka Mateta, sem hafði komið inn á skömmu áður og hann fékk frítt skot á mark og skoraði. 2-2.

Þeir fengu svo ágætis færi á 79. mínútu þegar hár bolti barst inn í teig hægra megin (frá þeim séð) og sá bolti var skallaður inn í teig á Ismael Sarr sem var óvaldaður. „Ekki aftur“, hugsaði maður, en hann náði ekki almennilegum skalla á mark þannig að Pickford náði að verja auðveldlega.

Leikurinn dó pínulítið við jöfnunarmarkið en þetta var þó ekki alveg búið.

George kom inn á fyrir Röhl á 80. mínútu.

Warton átti fína tilraun á mark Everton á 90. mínútu en skotið frá honum utan teigs, í utanverða stöngina og út af.

Bæði lið fengu svo séns til að vinna leikinn í uppbótartíma. Everton komst í skyndisókn eftir að George lék á varnarmann Palace og náði að renna boltanum fyrir Ndiaye, sem var á auðum sjó á hægri kanti, en skotið frá Ndiaye slakt og Henderson varði í horn. Þar hefði hann átt að gera betur en Palace menn sluppu með skrekkinn.

Hinum megin komst Mateta næstum einn á móti markverði, en Tarkowski náði að pota í boltann og koma honum úr jafnvægi og skotið frá honum nokkuð frá samskeytunum.

Alcaraz kom inn á fyrir Dewsbury-Hall á 94. mínútu, en fleira markvert gerðist ekki. Enn eitt tækifæri forgörðum í baráttunni um Evrópusæti. Þetta er ekki ómögulegt ennþá, en það verður erfiðara með hverjum leiknum.

Einkunnir Sky Sports: Pickford (7), O’Brien (6), Tarkowski (8), Keane (6), Mykolenko (6), Iroegbunam (6), Garner (7), Ndiaye (7), Dewsbury-Hall (7), Rohl (6), Beto (7). Varamenn: Barry (5).

Maður leiksins að mati Sky Sports: James Tarkowski.

5 Athugasemdir

  1. Diddi skrifar:

    alltaf hræddur um skitu eftir frábæra frammistöðu!

  2. Diddi skrifar:

    alveg ótrúlegt að skora og dóminera en bakka svo til að leyfa hinum að jafna, er þetta Moyes?

  3. Ari skrifar:

    Vel unnið fyrir markinu hjá Beto. Frábært mark hjá honum.

    • Ari S skrifar:

      Mér fannst Beto standa sig vel og hann fær líka góða dóma. Vont að missa forystu niður í tvígang og svekkjandi að ná ekki að fá 3 stig í dag. Tímabilið er ekki búið og Evrópukeppnisdraumur Everton er ekki farinn alveg þó að hann hafi fjarlægst okkar menn á undanförnum viku.

  4. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Þetta var nú ljóta skitan. Heppnir að sleppa með stigið.

Leave a Reply