West Ham – Everton 2-1

Mynd: Everton FC.

Þá er komið að útileik gegn West Ham í 34. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Þetta verður örugglega hörkuleikur, þar sem West Ham eru í bullandi fallbaráttu við Tottenham en Everton að reyna að tryggja sæti í Evrópukeppni fyrir næsta tímabil.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Keane, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Gana, Garner, McNeil, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Barry.

Varamenn: Travers, Patterson, Coleman, Iroegbunam, Alcaraz, Röhl, Armstrong, George, Dibling.

Sem sagt, Beto og Branthwaite ná ekki þessum leik vegna meiðsla, og Barry og Keane koma inn á fyrir þá, en að öðru leyti er þetta sterkasta lið Everton, sýnist mér. En þá að leiknum…

Everton var aðeins meira með boltann en West Ham í fyrri hálfleik, með eitt skot á rammann og hærra xG (expected goals), en annars nokkuð jafnræði með liðunum. Minni ógnun þó af West Ham.

Lítið um færi í upphafi. Everton fékk eitt færi eftir skyndisókn þar sem þeir komust þrír á tvo á 13. mínútu en McNeil reyndi háa fyrirgjöf frá vinstri á Barry, sem reyndi bakfallsspyrnu sem tókst ekki. 

Stuttu síðar komst Everton aftur í skyndisókn og Dewsbury-Hall var næstum búinn að setja Barry einan á móti markverði en sendingin ekki nægilega góð, og Barry líklega rangstæður að auki. 

Lítið að frétta upp úr því. Barry átti eitt langskot á 34. mínútu en auðvelt fyrir markvörð. 

0-0 í hálfleik.

Leikmenn Everton virkuðu slappir í seinni hálfleik og West Ham menn gengu á lagið.

Þeir fengu dauðafæri í upphafi seinni hálfleiks en Pickford kom út vel út á móti og lokaði. En þeir fengu horn sem þeir skoruðu úr. Reyndar pínu lykt af markinu, því að markaskorarinn Soucek ýtir í bakið á Barry og skallar svo inn. West Ham þar með komnir yfir í leiknum. 1-0.

George og Iroegbunam inn á fyrir O’Brien og McNeil.

Everton fékk frábært tækifæri eftirfarandi flottan undirbúning Gana og Iroegbunam, sem setti þann síðarnefnda inn fyrir vörnina og hann sendi fyrir af stuttu færi en varnarmaður náði að blokkera Barry frá því að pota inn.

Örskömmu síðar fékk Everton dauðafæri þegar George náði fínni hárri sendingum fyrir mark og Barry náði sterkum skalla á mark, en Soucek varði á línu í neðanverða slá og út. West Ham menn heppnir þar.

Á 85. mínútu fékk Everton víti þegar leikmaður West Ham slengdi hendi í boltann. Augljóst víti. Skoðað í VAR og ekkert dæmt. Ég get þetta ekki… Ég sver það. Augljóslega fer leikmaður West Ham með höndina í átt að bolta og slær í hann. Ég skil ekki af hverju er ekki hægt að dæma víti á þetta.

Alcaraz kom svo inn á fyrir Gana á 88. mînútu.

En það leit út fyrir að West Ham menn myndu ekki sleppa með þetta augljósa svindl. Því Dewsbury-Hall skoraði á 88. mínútu, þegar hann fékk boltann óvænt úr frákasti, í miðjum teignum, og þrumaði inn.

En sú gleði var skammvinn því Callum Wilson skoraði á 93. mínútu fyrir West Ham. 2-1 og þar með vendingar í botnbaráttunni, því Tottenham voru tímabundið komnir yfir West Ham.

George reyndi skot af löngu færi, en skrúfaði boltann rétt framhjá stöng.

Það reyndist síðasta færi leiksins. 2-1 tap niðurstaðan, en maður verður að spyrja sig af hverju ekki var dæmt víti í þessum leik. Óbragð í munni, svo ekki verði meira sagt.

Einkunnir Sky Sports: Pickford (6), O’Brien (6), Tarkowski (6), Keane (6), Mykolenko (6), Garner (6), Gana (6), McNeil (7), Dewsbury-Hall (7), Ndiaye (6), Barry (6). Varamenn: George (7), Alcaraz (6), Iroegbunam (6).

5 Athugasemdir

  1. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Það kemur ekkert annað til greina en sigur annars er Evrópudraumurinn svo gott sem úti.

  2. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Alltaf fer það svona. Þá er Evrópudraumurinn farinn og það besta sem við getum vonast eftir er að enda í topp tíu. Og auðvitað skoraði helvítis Callum Wilson, og helvítis Tékkaskrattinn sem ég kann ekki að skrifa nafnið á.

    • Ingvar Bæringsson skrifar:

      Og auðvitað var þetta víti sem var rænt af okkur annan leikinn í röð, eða mega menn núna slá boltann inni í vítateig?

  3. Finnur Thorarinsson skrifar:

    Það er ömurlegt að horfa upp á það tvo leiki í röð að fá ekki augljóst víti. Ég skil ekki hvernig er hægt að sleppa því að dæma víti á það þegar varnarmaður bókstaflega slær boltann út af vellinum þegar hann er reyna að verjast. Afsökunarbeiðni eftir leik hefur ekkert gildi. Óþolandi.

    En það eru bara þrjú stig í 6. sæti og það eru nokkur Evrópusæti í spilinu ennþá.

Leave a Reply