Mynd: Everton FC.
Þá var komið að útileik við Newcastle í 28. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Ritari var á ferðalagi um Þýskaland en leitaði að knæpu í Munchen til að geta fjallað um leikinn.
Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Branthwaite, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Gana, Garner, McNeil, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Beto.
Varamenn: Travers, Keane, Patterson, Röhl, Iroegbunam, Armstrong, George, Dibling, Barry.
Það tókst að ná útsendingunni, hljóðlaust að vísu, en ekki viss um að þýskur þulur hefði bætt miklu við. En skýrslan verður væntanlega styttri fyrir vikið þar sem ég get ekki hlustað á meðan ég hripa niður punkta. Og þó, sjáum til.
Ágætis byrjun á leikjum hjá Everton, nokkuð mikið með boltann en engin ógnun á mark frá liðunum tveimur. Fyrsta skotið á 9. mínútu, utan teigs frá Ndiaye, en enginn hætta. Það næsta á 11. mínútu, frá McNeil, en vel yfir markið.
Ekkert að frétta af strikamerkjunum fyrr en á 13. mínútu, þegar Joalinton setti boltann hátt yfir af löngu færi.
Á 15. mínútu fengu þeir innkast, en Gana vann af þeim boltann og Everton komst í skyndisókn, sem endaði með rangstöðu.
Everton komst svo í aðra skyndisókn á 18. mínútu en uppskar aðeins horn. En upp úr hornspyrnunni kom mark! Og það var af einföldu gerðinni, Garner sendi háan bolta á nærstöng, beint á Branthwaite, sem skallaði í hliðarnetið fjær. 0-1 fyrir Everton!
Við þetta jókst ákefðin frá Newcastle. En það varði bara í nokkrar mínútur og dó svo út. Einn skalli á mark frá þeim á 30. mínútu en það var bara æfingabolti sem Pickford greip.
En svo á 32. mínútu kom grísamark frá þeim þegar þeir náðu skoti á mark af löngu færi frá Ramsey, sem breytti um stefnu af Branthwaite og fór í sveig yfir Pickford og í netið. 1-1, ekki beint með gangi leiksins.
En Everton beið ekki boðanna heldur komust yfir strax í næstu sókn. McNeil gerði vel að ná fínu skoti utan teigs hægra megin, í átt að stöng vinstra megin, sem Nick Pope reyndi að slá aftur út í teig, fyrir markið einhverra hluta vegna, og þar var Beto mættur, þrumaði inn og þakkaði fyrir sig. Varnarlína Newcastle svaf á verðinum og Pope í ruglinu. Augljóst hver er ekki aðalmarkvörður Englands.
Andleysi yfir leik Newcastle eftir þetta. Eitt langskot undir lok hálfleiks, frá Hall, en boltinn hátt yfir.
1-2 í hálfleik.
Fyrsta skot seinni hálfleiks kom strax í upphafi hans, frá McNeil, sem átti lúmskt skot niðri í hægra horn en Pope vandanum vaxinn, í þetta skiptið.
Á 50. mínútu hefði Newcastle getað lent í miklum vandræðum þegar vinstri bakvörður þeirra, Lewis Hall, felldi Beto, sem var fremstur, og kominn í gegn. VAR skoðaði bara hvort þetta væri víti, sem það var augljóslega ekki – en Newcastle menn heppnir að sleppa þar við DOGSO rautt.
Eftir um klukkutíma leik náði Gordon skot á mark, en hann hafði ekki sést í leiknum fram að því. Skotið hins vegar varið.
Newcastle menn voru síðan stálheppnir (aftur) þegar Everton komst í skyndisókn og Beto gerði vel að halda boltanum inni á vellinum (þegar stefndi í innkast) og skilja varnarmanninn eftir. Þar með komst hann einn gegn markverði og náði að koma boltanum framhjá Pope, en setti boltann í slána og út.
Eftir þetta óttaðist maður að Everton myndi tapa þessu niður, enda tvö atvik farin forgörðum, sem hefðu átt að gera út um leikinn. En Newcastle menn rembdust eins og þeir gátu að skapa færi með því að koma boltanum fyrir mark, en uppskáru lítið. Vörn Everton hélt.
Barry kom svo inn á fyrir Beto á 73. mínútu og Armstrong inn fyrir McNeil á 81. mínútu.
Newcastle þurftu hins vegar annað grísamark til að jafna þegar Murphy tók langskot sem, líkt og í fyrra marki þeirra, breytti um stefnu af leikmanni Everton og endaði i netinu. Í þetta skiptið af Gana, sýndist mér. 2-2.
En Everton skoraði bara aftur – strax í næstu sókn! Gordon tapaði boltanum utan teigs — yndislegt að sjá. Ndiaye var fljótur að hugsa og sendi til Dewsbury-Hall, sem brunaði inn í teig vinstra megin og sendi fyrir. Lewis Hall, varnarmaður Newcastle, (sá sem átti að fá á sig rautt fyrir að koma í veg fyrir augljóst marktækifæri) reyndi að koma í veg fyrir mark með bakhrindingu á Barry (!), sem var í dauðafæri, og Barry féll við… en náði samt að skora með með rassgatinu. Bókstaflega. 2-3 fyrir Everton!
Keane kom inn á fyrir Dewsbury-Hall í kjölfarið.
6 mínútum var bætt við en þegar tvær mínútur voru búnar af uppbótartíma skiptu Þjóðverjarnir á barnum um stöð til að horfa á sitt heimalið, Bayern Munchen og maður þurfti þar með að reiða sig á textalýsingu BBC. Sýnist sem ekki hafi mikið gerst það sem eftir lifði leiks þó.
Daginn eftir, þegar endursýningin var skoðuð, sást að ritari missti af flottum tilþrifum frá Tonali, sem var við D-ið á vítateig Everton og náði þrumuskoti á mark, sem Pickford varði í slána og yfir. Ótrúleg varsla sem tryggði stigin þrjú.
Verðskuldaður 2-3 sigur Everton því í höfn!
Uppfært þremur dögum eftir leikinn: Sky Sports virðast ekki ætla að gefa út einkunn fyrir þennan leik einhverra hluta vegna.


Moyes hefur ákveðið að það besta í stöðunni sé að byrja leikinn tveimur færri. Í alvöru! Beto og McNeil??? Er maðurinn að biðja um starfslokasamning? Þetta gæti orðið helvíti ljótt en vonum bara það besta.
Geggjað að sjá þá taka mótlætinu svona vel — bruna bara í sókn í tvígang og komast aftur yfir!
Það verður að gefa mönnum kredit þegar þeir gera vel. Beto var frekar góður í dag og McNeil var allt í lagi. En mikið fjandi var þetta sætur sigur.
þegar maður býst ekki við neinu en vonar það besta
Ánægjuleg 3 stig ì dag við þurftum á þeim að halda.
Til hamingju með sigurinn. Everton hefur fengið 24 stig á útivelli en aðeins 16 stig heimavelli. Hvað veldur allt í einu? Everton er með næst besta árangur á útivelli af öllum liðum nema Arsenal er fyrir ofan.
Pickford og Branthwaite í liði vikunnar að mati BBC:
https://www.bbc.com/sport/football/articles/cr73ljr0xe0o?at_medium=RSS&at_campaign=rss