Everton – Leeds 0-1 (í hálfleik)

Mynd: Everton FC.

Everton tekur á móti Leeds í kvöld, á Hill Dickinson leikvanginu, en flautað verður til leiks kl. 20:00. Þeir eru þessa stundina í 16. sæti, aðeins 5 stigum frá fallsæti en okkar menn í 11. sæti. Þetta er lokaleikur 23. umferðar og ljóst er að Leeds mun ólíklega hoppa um einhver sæti með sigri, en vitað að Everton færi upp um þrjú (í 7. sæti) með sigri.

Þær slæmu fréttir bárust á dögunum að Jack Grealish væri frá út tímabilið, eftir að hafa brákað bein í fæti. Það er aldeilis skarð fyrir skildi, en sem betur fer eru afríkumeistarar okkar, Gana og Ndiay, komnir aftur og ættu að vera klárir í leikinn. Þetta er þriðji og þar með síðasti leikurinn sem Keane missir af vegna rauða spjaldsins sem hann hlaut á dögunum og jafnframt er ólíklegt að Coleman eða Branthwaite láti sjá sig. Spurning með Dewsbury-Hall og Alcaraz, held að sá fyrrnefndi hafi hafið æfingar aftur á grasi. Uppfært 19:05: Þeir reyndust svo allir byrja á bekknum, ótrúlegt en satt.

Skilst að hjá Leeds sé Daniel James frá vegna tognunar í læri og hinn sænski, Gabriel Gudmundsson, er tæpur. Þeir eru auk þess komnir með nýjan lánsmann, Facundo Buonanotte (frá Brighton), sem gæti fengið sinn fyrsta leik í kvöld.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Patterson, Gana, Garner, Ndiaye, Armstrong, McNeil, Barry.

Varamenn: Travers, Aznou, Branthwaite, Coleman, Alcaraz, Röhl, Dibling, Dewsbury-Hall, Beto.

Ekki mikið að frétta framan af. Leeds aðeins meira með boltann fyrstu 20 mínútur og líklegri til að skora án þess að ná að koma boltanum almennilega á markið.

En á 28. mínútu komust gestirnir svo yfir eftir spil upp hægri kantinn, sendingu fyrir sem Calvert-Lewin kixaði á, en boltinn endaði hjá James Justin utar í teig, og hann setti boltann framhjá Pickford. 0-1 staðan.

Viðvörunarbjöllurnar áfram að hringja eftir markið og Calvert-Lewin komst í dauðafæri á 34. mínútu, en setti boltann í stöngina, blessunarlega.

Þetta varð eiginlega vandræðalegra eftir því sem leið á fyrri hálfleik og Everton rétt náði skoti á mark undir lok fyrri hálfleiks. Það var eina tilraunin á mark í þeim hálfleik, frá Garner, en í hliðarnetið.

0-1 fyrir Leeds í hálfleik. Eitthvað þarf að lesa yfir hausamótunum á mönnum í hléinu.

Restin af leikskýrslu kemur síðar. Endilega látið í ykkur heyra í kommentakerfinu.

4 Athugasemdir

  1. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Skil ekki af hverju Röhl er tekinn úr byrjunarliðinu, hann var mjög góður í síðasta leik og mér finnst að Moyes hefði átt að halda sömu mönnum á miðjunni eftir frábæra frammistöðu gegn Villa, en hvað veit ég svosem. Everton er með betra lið en Leeds og okkar menn eiga að vinna í kvöld, ef allt er eðlilegt.
    Ég vona svo sannarlega að leikmenn Everton mæti klárir í slaginn og staðráðnir í að snúa við blaðinu á heimavelli þar sem gengið hefur verið frekar brösótt síðustu vikur, ef það gerist þá vinnum við.

  2. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Uss! Everton er bara í ruglinu.

  3. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Hörmung!! Getum líklega gleymt því að fá nokkuð út úr þessum leik. Ég reikna með að Leeds bæti við tveimur mörkum í seinni hálfleik og enn eitt háðulegt tapið á heimavelli verði niðurstaðan. Vonum bara það besta.

Leave a Reply to Ingvar Bæringsson