Everton – Liverpool

Mynd: Everton FC.

Í dag kl. 13:00 verður flautað til derby leiksins þegar Liverpool kemur í heimsókn í fyrsta skipti á langflottasta leikvanginn í heimaborg þessara tveggja liða, Hill Dickinson leikvanginn. 

Með sigri í dag kæmist Everton upp í 6. sætið og væri í seilingarfjarlægð frá Champions League sæti, sem er merki um þann ótrúlega viðsnúning sem hefur átt sér stað undir stjórn David Moyes. Everton hefur unnið þrjá af sínum síðustu fimm leikjum í deild, og aðeins tapað einum af þeim, gegn toppliði Arsenal — þrátt fyrir mjög fína frammistöðu Everton í leiknum. 

Liverpool hafa átt afar erfitt uppdráttar á árinu, en þeir unnu aðeins 17% deildarleikja í janúar, áttu smá sprett gegn „minni spámönnum“ í febrúar en unnu svo ekki deildarleik allan mars þar sem þeir þurftu að sætta sig við tap gegn Úlfunum og jafntefli gegn Tottenham — tvö lið sem hafa varla getað keypt sér sigur á tímabilinu. Tímabilið nánast kláraðist svo hjá Liverpool í mánuðinum þegar þeir voru gjörsigraðir í bæði FA bikarnum og svo tvisvar í meistaradeildinni. Þrír leikir með samtals 8-0 í markatölu. Útivallarformið þeirra er einnig skelfilegt í augnablikinu, 5 töp af 6 í öllum keppnum. Það er hins vegar oft sagt að frammistaðan í þessum leikjum hafi aldrei neitt að gera með form í aðdragandanum og ef svo er, er ljóst að Liverpool verða því mun fegnari en Everton.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Branthwaite, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Gana, Garner, McNeil, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Beto. 

Varamenn: Travers, Keane, Patterson, Iroegbunam, Alcaraz, Röhl, Dibling, George, Barry. 

Mér sýnist þetta vera okkar sterkasta lið sem mætir Liverpool í dag, með möguleikum á að gera breytingar af bekknum. Hjá Liverpool er Allison fjarri góðu gamni, eins og svo oft áður, og í síðasta leik misstu þeir sinn aðal markaskora, Ekitike, í löng meiðsli (sleit hásin, ef ég skil rétt). Þetta verður því eitthvað.

Ritari verður einnig fjarri góðu gamni (ekki vegna meiðsla þó) en verið er að leita að varamanni til að skrifa skýrsluna. Ef það næst ekki verður skýrslan skrifuð yfir endursýningu, þegar Everton hefur sett upptöku af leiknum á heimasíðuna. Sjáum til.

Restin af leikskýrslu kemur síðar. Endilega látið í ykkur heyra í kommentakerfinu!

Koma svo!! ÁFRAM EVERTON!!

4 Athugasemdir

  1. Eirikur skrifar:

    Hvernig má það vera að við höfum fengið fyrsta spjaldið í þessum leik. Beto verður að gera betur einn á móti markmanni. Nú verða Lpool bara í skyndisóknum það sem eftir er og það hentar þeim því miður vel.

  2. Eirikur skrifar:

    Barry og George hafa ekkert að gera áfram í Everton.

  3. Eirikur skrifar:

    Ef Beto hefði verið inná þá hefði þetta mark ekki komið.

  4. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Ég var í alvöru þokkalega bjartsýnn fyrir þennan leik og bjóst hreinlega við sigri af því að Everton er með gott lið og hafa verið að spila vel á meðan Liverpool er ekki með gott lið og hafa verið lélegir upp á síðkastið.
    Ég hefði átt að vita betur. Bjartsýni er fyrir stuðningsmenn annarra liða en Everton.
    Ef við vinnum ekki West Ham um næstu helgi, þá held ég að við getum kvatt Evrópudrauminn þetta árið.

Leave a Reply to Eirikur