Everton – Liverpool 1-2

Mynd: Everton FC.

Liverpool kom í heimsókn í fyrsta skipti á langflottasta leikvanginn í heimaborg þessara tveggja liða, Hill Dickinson leikvanginn. 

Með sigri í dag hefði Everton komist upp í 6. sætið og verið í seilingarfjarlægð frá Champions League sæti, sem er merki um þann ótrúlega viðsnúning sem hefur átt sér stað undir stjórn David Moyes. Everton hafði unnið þrjá af sínum síðustu fimm leikjum í deild, og aðeins tapað einum af þeim, gegn toppliði Arsenal — þrátt fyrir mjög fína frammistöðu Everton í leiknum. 

Liverpool hafa átt afar erfitt uppdráttar á árinu, en þeir unnu aðeins 17% deildarleikja í janúar, áttu smá sprett gegn „minni spámönnum“ í febrúar en unnu svo ekki deildarleik allan mars þar sem þeir þurftu að sætta sig við tap gegn Úlfunum (!) og jafntefli gegn Tottenham (!) — tvö lið sem hafa varla getað keypt sér sigur á tímabilinu. Tímabilið nánast kláraðist svo hjá Liverpool í mánuðinum þegar þeir voru gjörsigraðir í bæði FA bikarnum og svo tvisvar í meistaradeildinni. Þrír leikir með samtals 8-0 í markatölu. Útivallarformið þeirra er einnig skelfilegt í augnablikinu, 5 töp af 6 í öllum keppnum. Það er hins vegar oft sagt að frammistaðan í þessum leikjum hafi aldrei neitt að gera með form í aðdragandanum og ef svo er, er ljóst að Liverpool verða því mun fegnari en Everton.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Branthwaite, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Gana, Garner, McNeil, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Beto. 

Varamenn: Travers, Keane, Patterson, Iroegbunam, Alcaraz, Röhl, Dibling, George, Barry. 

Manni sýndist þetta vera okkar sterkasta lið sem mætti Liverpool, með möguleikum á að gera breytingar af bekknum. Hjá Liverpool var Allison fjarri góðu gamni, eins og svo oft áður, og í síðasta leik misstu þeir sinn aðal markaskora, Ekitike, í löng meiðsli (sleit hásin, ef ég skil rétt). Þetta verður því eitthvað. En þá að leiknum:

Ágætis byrjan á leiknum. Everton með undirtökin, létu boltann ganga vel og Liverpool litu út fyrir að vera hálfgerðir farþegar í leiknum. Engin ógnun af þeim. Everton setti pressu frá fyrstu mínútunum á lið Liverpool, sem þoldu pressuna illa og misstu boltann strax út af í innkast. Ágætt að sjá. Á 5. mínútu sendi Garner svo frábæran háan bolta utan af vinstri kanti, beint á Beto sem náði að stýra boltanum niðri í áttina að hægra hornið, en Marmasvili markvörður Liverpool varði ótrúlega vel, kastaði sér niður. Þar hefði staðan átt að vera 1-0 fyrir Everton en markvörðurinn kom í veg fyrir blauta tusku í andlitið á þeim strax á upphafsmínútunum. 

Dómarinn hætti þá í smá stund að taka ákvarðanir — sleppti augljósu gulu spjaldi (á Konate?) fyrir að klippa niður Gana Gueye þegar hann var að bruna fram í skyndisókn. Svo sleppti hann líka að dæma vítaspyrnu þegar Dewsbury-Hall var kominn einn inn fyrir og Curtis Jones keyrði inn í hliðina á honum. Týpískt.

Branthwaite sá hlaup hjá Beto á 16. mínútu og sendi langa stungusendingu fram völlinn, sem splundraði rangstöðugildru Liverpool. Beto komst einn á móti markverði, en skotið arfaslakt og vel framhjá markinu.

Dómarinn hélt áfram að leyfa leikmönnum Liverpool að sleppa við spjald á 22. mínútu þegar Virgil van Dick kom á fleygiferð á blindu hliði á Gana Gueye og setti hnéð í aftanverða mjöðmina á honum. Gult spjald allan liðlangan daginn, en dómarinn ákvað að spjalda í staðinn Pickford fyrir að mótmæla því að þetta væri bara venjuleg aukaspyrna.

Þetta hleypti leiknum pínulítið upp, sem Chris Kavanough, dómari leiksins, hefði getað komið í veg fyrir með því að spjalda. 

Á 27. mínútu skoraði Ndiaye glæsilegt mark sem var dæmt af vegna rangstöðu. Fannst það pínu sus að dæma rangstöðu, þar sem Jake O’Brien snerti ekki boltann og hafði ekki áhrif á leikinn, lét boltann fara. En það verður að gefa stuðningsmönnum Liverpool, sem væla manna mest yfir því hvað VAR er ósanngjarnt við þá, tækifæri til að halda því fram að þeir elski VAR.

Liverpool náðu loks skoti á mark á 29. mínútu, en það er reyndar ekki réttnefni að kalla þetta skot, því þetta var nær því að vera sending frá Gakpo með tánni aftur á Pickford. En í upphafi sóknaruppbyggingu Everton reyndi McNeil sendingu aftur á Gana, en hún fór forgörðum og beint á Liverpool leikmann úti á kanti. Hann sendi langan bolta inn í teig beint á Salah, sem kom á hlaupinu í átt að fjærstöng og skoraði framhjá Pickford. Algerlega gegn gangi leiksins — Liverpool búnir að vera algjörir farþegar í leiknum og nákvæmlega engin ógnun úr þeirra leik og Everton gefur þeim mark á silfurfati. 

Leikmenn Liverpool fengu svo áfram að koma á blindu hliðina á leikmönnum Everton og sparka þá niður. Gakpo átti skot á 42. mínútu en Pickford varði í horn. Líklega óþarfi því þettta var á leið yfir. Isak átti svo arfaslakt skot utan úr teig á 46. mínútu sem Pickford beygði sig niður til að stoppa með höndunum.

0-1 í hálfleik.

Engin breyting á liðunum en þetta var pínulítið flatt í byrjun seinni hálfleiks. Liverpool stjórnaði tempóinu og framkvæmdu allt á hægagangi, en þegar Everton náði boltanum var eins og loftið væri svolítið úr þeim. Allavega fyrstu 10 mínúturnar, þangað til á 55. mínútu þegar Dewsbury-Hall komst inn í teig vinstra megin og sendi geggjaða sendingu til hægri, fyrir mark, á Beto sem kom aðvífandi með mann í sér og slengdi einum af þessum löngu fótum sínum í boltann og stýrði honum framhjá markverði. Staðan orðin 1-1! Markvörður Liverpool út af á börum eftir samstuðið við Beto og sinn eigin leikmann. Þar með kominn inn á 3. markvörður Liverpool, Freddie Woodward.

Gakpo reyndi að svara á 59. mínútu, en skotið frá honum af löngu færi vel framhjá. Hann átti betri séns þegar hann var óvaldaður í teig vinstra megin og reyndi að skalla í hliðarnetið þar sem Tarkowski beið og skallaði frá.

Ndiaye komst í upplagt færi eftir skyndisókn á 64. mínútu, þegar hann fékk langan bolta frá Pickford. Ndiaye fór illa með Curtis Jones, sem hafði verið arfaslakur fram að því sem makeshift hægri bakvörður (og var heppinn að gefa ekki víti í fyrri). Ndiaye komst inn í teig vinstra megin og náði skoti, en markvörður Liverpool varði.

Robertson reyndi skot af löngu færi á 66. mínútu, en framhjá.

Á 72. mínútu þurfti Moyes að gera skiptingu þegar Beto og Konate skelltu hausunum saman og Beto treysti sér ekki til að halda áfram, enda kominn með bungu í ennið. Barry inná fyrir hann. George kom svo inn á fyrir McNeil á 79. mínútu. Branthwaite fór svo út af vegna meiðsla á 84. mínútu og Keane kom inn á.

Í uppbótartíma lentu O’Brien og Mac Allister í samstuði og lágu báðir eftir. Þar sem Mac Allister liggur sárþjáður á vellinum, dregur hann upp treyjuna til að sýna hversu hátt O’Brien sparkaði í sig og svo horfði maður á endursýningu og sá að Mac Allister hleypur inn í hann þegar O’Brien er að sparka frá og að Mac Allister fékk högg á hnéð á sér, en ekki takkana í brjóstkassann eins og hann var að reyna að halda fram. Ömurlegur leikmaður. Stuttu síðar sér maður hvar Van Dick hrindir í Barry á markvörð Liverpool.  Annar dirty leikmaður.

Á lokamínútunum fengu Liverpool horn sem Van Dick skorar úr. Sýndist þetta lykta smá af bakhrindingu hjá honum á Tarkowski, en svona endaði þetta.

Hér er svo yfirlitið BBC yfir það hvað Liverpool voru passívir og atkvæðalitlir í þessum leik.

Einkunnir Sky Sports: Pickford (6), O’Brien (6), Tarkowski (6), Branthwaite (7), Mykolenko (6), Gueye (7), Garner (7), McNeil (6), Dewsbury-Hall (7), Ndiaye (7), Beto (7). Varamenn: Barry (6), George (6), Keane (6).Svipað hjá Liverpool, nema Konate og Wirtz fengu 5 og Isak 4. Kom mér pínu á óvart að Curtis Jones fengi 6 í einkunn, hann strögglaði verulega í bakverðinum hjá þeim. En það er annað mál.

4 Athugasemdir

  1. Eirikur skrifar:

    Hvernig má það vera að við höfum fengið fyrsta spjaldið í þessum leik. Beto verður að gera betur einn á móti markmanni. Nú verða Lpool bara í skyndisóknum það sem eftir er og það hentar þeim því miður vel.

  2. Eirikur skrifar:

    Barry og George hafa ekkert að gera áfram í Everton.

  3. Eirikur skrifar:

    Ef Beto hefði verið inná þá hefði þetta mark ekki komið.

  4. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Ég var í alvöru þokkalega bjartsýnn fyrir þennan leik og bjóst hreinlega við sigri af því að Everton er með gott lið og hafa verið að spila vel á meðan Liverpool er ekki með gott lið og hafa verið lélegir upp á síðkastið.
    Ég hefði átt að vita betur. Bjartsýni er fyrir stuðningsmenn annarra liða en Everton.
    Ef við vinnum ekki West Ham um næstu helgi, þá held ég að við getum kvatt Evrópudrauminn þetta árið.

Leave a Reply