Arsenal – Everton 2-0

Mynd: Everton FC.

Það er stórleikur á dagskrá kl. 17:30 í dag þegar Everton heimsækir Arsenal. Þetta er leikur sem gæti haft mikil áhrif á titilbaráttuna þar sem Man City eru að anda ofan í hálsmálið á Arsenal, sem eru örugglega ekkert spenntir fyrir því að mæta Everton í dag — enda Everton það lið sem hefur unnið einna flesta útileiki í deildinni frá því að Moyes tók við.

Uppstillingin: Pickford (fyrirliði), Mykolenko, Keane, O’Brien, Garner, Gana, Iroegbunam, McNeil, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Beto.

Varamenn: Travers, Aznou, Patterson, Coleman, Röhl, George, Dibling, Armstrong, Barry.

Vörnin pínulítið löskuð hjá okkar mönnum, eins og sjá má, en hvorki Tarkowski né Branthwaite eru í hóp og er það skarð fyrir skildi. O’Brien og Keane því í miðverðinum og Garner í hægri bakverði, þrátt fyrir að bæði Coleman og Patterson séu á bekknum. Iroegbunam kemur inn á miðjuna en annars er þetta svipað og í síðasta leik, með Beto í framlínunni.

Ekkert að gerast fyrsta korterið eða svo, en svo átti Everton þrjár tilraunir á mark og Arsenal menn stálheppnir að fá ekki á sig mark í öllum tilfellum.

Fyrst þegar McNeil fékk boltann inni í teig og náði skoti af stuttu færi, sem liggjandi varnarmaður náði að verja með fótunum. McNeil var svo aftur að verki stuttu síðar, þegar hann náði flottu skoti utan teigs í innanverða stöngina og út. Boltinn hrökk til Ndiaye, sem var fremstur, en of óvænt og hann setti boltann rétt framhjá stöng, af stuttu færi. Þar hefði staðan átt að vera 0-1.

Dewsbury-Hall með næstu tilraun á mark, á 30. mínútu, fast skot utarlega í teig, en markvörður varði. Everton með fjögur fyrstu færin (!), en eina færi Arsenal skallafæri í upphafi leiks, sem telur ekki, því hann var rangstæður og Pickford varði hvort eð er.

Everton með síðasta færi fyrri hálfleiks. Skot af löngu færi, frá Gana, en auðvelt fyrir markvörð.

Staðan í hálfleik 0-0. Arsenal menn líklega sáttari við það en Everton menn.

Arsenal menn bættu nokkuð í í seinni hálfleik, en Everton átti fyrsta færið. Beto þar að verki með skot af stuttu færi, sem markvörður varði rétt svo með hæl út við stöng.

Arsenal fengu loks hættulegt færi á 63. mínútu, þegar Eze reyndi að setja boltann í sveig frá hægri, náði framhjá Pickford, en rétt framhjá fjærstöng.

Barry inn á fyrir Beto á 69. mínútu.

Everton fékk ágætis skallafæri á 73. mínútu, eftir aukaspyrnu frá Garner, utan af kanti, vinstra megin. Þar var Keane í baráttu um skallann, og vann það einvígi, en skallaði rétt framhjá.

Eze svaraði með föstu skoti utan teigs á 76. mínútu, en svo til beint á Pickford.

Röhl og Armstrong inn á fyrir Iroegbunam og McNeil á 86. mínútu.

En á 89. mínútu skoruðu Arsenal menn óverðskuldað mark. Há sending inn í teig, sem Pickford náði að slengja fingri í, en boltinn fór í sóknarmann Arsenal og hrökk af honum fyrir mark, þar sem Gyokeres potaði í autt mark. 1-0 og Arsenal heppnir þar.

Marrinelli átti svo fínt skot að marki á 93. mínútu, sem Pickford varði í horn, sem ekkert kom úr.

George inn á fyrir Gana á 95. mínútu.

Everton lagði allt kapp á að jafna, fengi horn alveg undir lokin og settu Pickford fram. Fengu finn vegar mark úr skyndisókn í bakið. 2-0 óverðskuldað tap staðreynd.

Og þannig endaði sá leikur.

Einkunnir Sky Sports ekki komnar. Uppfæri síðar.

1 athugasemd

  1. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Úff enginn Branthwaite og enginn Tarkowski, McNeil og Beto enn og aftur í byrjunarliðinu þetta gæti orðið verulega ljótt.
    Ég kalla það gott ef við sleppum með 2-0 tap.

Leave a Reply to Ingvar Bæringsson