Everton – Man United 0-1

Mynd: Everton FC.

Everton tekur á móti Manchester United í 27. umferð ensku úrvalsdeildarinnar þar sem flautað verður til leiks kl. 20:00 á Hill Dickinson leikvanginum. Everton vann fyrri leikinn á Old Trafford, sælla minninga, 0-1, með glæsimarki frá Dewsbury-Hall og náðu að halda því þrátt fyrir að vera manni færri næstum allan leikinn (eftir að Gana fékk rautt fyrir að slá Keane).

United eru með nýjan stjóra (Michael Carrick) sem er enn í sínu honeymoon-period með þá, eftir 9 leiki í röð án taps. Bæði lið mæta til leiksins í kvöld fersk, eftir nærri tveggja vikna hlé frá úrvalsdeildinni. Grealish er frá hjá okkar liði, vegna meiðsla, og O’Brien í banni eftir rauða spjaldið sitt, en Coleman er víst orðinn heill heilsu. Einhvers staðar las ég að Matthijs de Ligt væri að glíma við bakmeiðsli og að Patrick Dorgu væri með tognun í læri en Mason Mount væri að nálgast endurkomu, en myndi líklega ekki ná þessum leik.

Uppstillingin: Pickford, Tarkowski (fyrirliði), Keane, Branthwaite, Garner, Gana, Iroegbunam, Ndiaye, Dewsbury-Hall, Armstrong, Barry.

Varamenn: King, Mykolenko, Patterson, Coleman, Röhl, McNeil, George, Dibling, Beto.

Garner byrjaði leikinn í hægri bakverði, Branthwaite í vinstri bakverði, Armstrong á vinstri kanti, Ndiaye á þeim hægri.

Hasar frá fyrstu sekúndum. Leikurinn byrjaði á löngum bolta til markvarðar United, Lemmings, sem þrumaði hreinsun beint Barry. Boltinn hefði getað farið hvert sem er, en endaði í útsparki.

Örskömmu síðar náðu United menn skoti á mark, innan teigs, sem Pickford varði með annarri. En krafturinn var slíkur að boltinn var um það bil að rúlla inn fyrir línu en Tarkowski var réttur maður á réttum stað og hreinsaði frá af línu.

United mun meira með boltann eftir það, en það hentar Everton vel – enda er stigafjöldinn hjá Everton í öfugu hlutfalli við posession tölfræðina.

Og United gerðu svo sem ekkert með boltann. Dalot átti eitt skot framhjá að löngu færi. Annars hafði Pickford það náðugt, og báðir markverðir reyndar.

Garner með langskot beint úr aukaspyrnu á 38. mínútu, en varið.0-0 í hálfleik.

Fín byrjun á seinni hjá Everton, settu pressu á United og Ndiaye lék á bakvörð þeirra. Boltinn barst til Armstrong inni í teig vinstra megin, óvaldaður, en skotið á mark ekki nógu gott og markvörður varði.

Mbuemo fékk fínt færi hinum megin stuttu seinna, alveg upp við stöng, en Pickford lokaði vel á hann og hann setti boltann hvort eð er yfir slána.

Tölfræðin snerist við í seinni hálfleik. Jafnræði með liðunum á boltanum, fleiri tilraunir á mark frá Everton, en og meiri pressa. En United náðu einni skyndisókn gegn gangi leiksins og skoruðu úr henni.

George inn á fyrir Armstrong á 72. mínútu. Beto kom svo inn á fyrir Iroegbunam á 79. mínútu. Tveir framherjar. Athyglisvert.

Michael Keane átti flott langskot á 83. mínútu sem markvörður varði í horn. Seinni hluti seinni hálfleiks leikinn á vallarhelmingi United. Mjög nervousv United crowd á Ölveri. 10-10í hornum í venjulegum leiktíma, Everton í vil.

George með flott skot af löngu færi eftir skyndisókn en markvörður varði.

En það reyndist niðurstaðan, 0-1 tap. Ekki náðist því tvennan á móti United þetta tímabilið. Ekki beint Champions League frammistaða hjá United í kvöld.

Einkunnir Sky Sports: Pickford (6); Garner (7), Tarkowski (6), Keane (6), Branthwaite (6); Gana (7), Iroegbunam (6), Dewsbury-Hall (6); Armstrong (5), Barry (5), Ndiaye (6).

Maður leiksins var markvörður United, sem segir það sem segja þarf.

5 Athugasemdir

  1. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Moyes er að mörgu leyti frábær stjóri en þessi árátta hans að spila mönnum út úr stöðu er óþolandi. Armstrong er ekki kantmaður, Branthwaite er ekki bakvörður og ekki Garner heldur, af hverju í andskotanum getur maðurinn ekki bara drullast til að velja menn í þessar stöður sem eru sérstaklega þjálfaðir í að spila þær?
    Mér sýnist á þessari uppstillingu að það sé ekki rétt jafnvægi í liðinu og það mun væntanlega koma í bakið á okkar mönnum, ég held að þetta endi 1-3, enn eitt óþolandi tapið á heimavelli.

    • Diddi skrifar:

      sammála, þetta er samt ekki orðið eins slæmt og þegar Walter Smith spilaði 7-8 varnarmönnum

  2. Eirikur skrifar:

    Finnst Garner skila bakverðinum vel. Sama er ekki hægt að segja eða ætlast af Branthwaite. Veit ekki alveg hvaðan markið á að koma frá okkur.

  3. Eirikur skrifar:

    Er virkilega ekki til annað plan í hornspyrnum?
    Tarky hefði átt að stoppa Zesko og taka gult.
    Synd að tapa þessum leik enn það þarf að skora mörk.

  4. Eirikur skrifar:

    Óþolandi að hafa manu tappa að lýsa þessu.

Leave a Reply to Eirikur