Fulham – Everton 1-2

Mynd: Everton FC.

Þá var komið að 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar þegar Everton mætti í heimsókn til Fulham.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Keane, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Gana, Garner, Ndiaye, Dewsbury-Hall, Armstrong, Barry.

Varamenn: Travers, Branthwaite, Patterson, Iroegbunam, Röhl, Alcaraz, George, Dibling, Beto.

Stóru fréttirnar voru þær að Mykolenko var kominn aftur í byrjunarliðið eftir að hafa verið stutt frá en Branthwaite var hins vegar á bekknum, þannig að Keane tók stöðu hans. Nýi kantmaðurinn, George, á láni frá Chelsea, var á bekknum og því líklegt að hann fengi sinn fyrsta leik með Everton. Jack Grealish frá til lengri tíma, eins og við vitum, en þess utan leit út fyrir að liðið væri eiginlega bara á fullum styrk. Mjög gott að sjá aukna breidd á bekknum aftur.

Ágætis byrjun á leiknum hjá leikmönnum Everton, sem settu fína pressu á lið Fulham, sem komust varla út úr eigin vallarhelmingi fyrstu mínúturnar. En það voru Fulham menn sem skoruðu fyrsta markið á 17. mínútu og það var pínu heppnisstimpill á því marki. Þeir áttu, reyndar, fína sókn, sem endaði með skoti á mark, innan teigs, þar sem Pickford varði vel og það hefði átt að vera nóg. En því miður fór boltinn út í teig og í Mykolenko og þaðan í markið. Sjálfsmark og lítið við því að gera — Fulham menn þar með komnir 1-0 yfir. Þeir voru svo ekki langt frá því að bæta við marki mínútu síðar eftir skot innan teigs, en Pickford hélt okkar mönnum inni í leiknum með flottri vörslu í horn.

Þeir áttu svo skot af löngu færi í slána, á 25. mínútu, en lengra komust þeir ekki — í bili, allavega. Þangað til á 30. mínútu þegar þeir komust í ákjósanlegt færi, en Jimenez setti boltann rétt framhjá marki Everton, með ótrúlegum hætti.

Armstrong var ekki langt frá því að skora á 33. mínútu þegar hann fékk boltann hægra megin í teig, eftir frábæran undirbúning frá Ndiaye, en setti boltann rétt framhjá (fjær)stönginni vinstra megin (frá sjónarhóli Everton).

Barry fékk svo dauðafæri rétt fyrir hálfleik, eftir fína sendingu fyrir mark frá vinstri frá Dewsbury-Hall, en hitti ekki boltann. 

En Fulham menn svöruðu með stungusendingu hinum megin rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og svo skoti frá Smith-Rowe, af nokkuð stuttu færi, sem hefði hefði getað tvöfaldað forystu Fulham, en Pickford kom Everton til bjargar, eins og svo oft áður. Þeir áttu svo skot af löngu færi í slána og upp í stúku. 

1-0 í hálfleik og sá munur hefði alveg geta verið meiri.

Það var hins vegar allt annað að sjá til Everton í seinni hálfleik, sem byrjuðu af miklum krafti og leyfðu Fulham varla að snerta boltann fyrstu mínúturnar. Mun meiri pressa frá Everton og Fulham höndluðu það illa.

En það vantaði ógnunina í sókninni hjá Everton og maður óttaðist að þeir myndu ekki ná að nýta sér getumuninn og Fulham myndu ná að bæta við marki. Barry fékk eitt skallafæri eftir horn á 50. mínútu en skallaði framhjá. Engin hætta.

En svo á 62. mínútu komust Fulham í snögga sókn sem endaði með því að Jimenez fékk boltann alveg upp við mark og það eina sem kom í veg fyrir að hann skoraði var afar mikilvæg skriðtækling frá Mykolenko, sem setti boltann í horn (sem þeir reyndar fengu svo ekki). Mykolenko var ekki langt frá því að setja boltann í eigið net (aftur), því hann fór rétt framhjá stönginni (boltinn þeas., ekki Mykolenko).

Everton fékk annað skallafæri eftir horn á 63. mínútu en Tarkowski setti boltann yfir.

Beto og nýi kantmaðurinn, George, komu inn á á 69. mínútu fyrir Barry og Armstrong og Ndiaye var þar með færður á hægri kant.

Og George beið ekki boðanna heldur kom sér strax inn í leikinn, kom boltanum á Mykolenko við teiginn vinstra meginn og hann fór illa með hægri bakvörð Fulham og brunaði í átt að marki. Á leið sinni þangað fann hann Dewsbury-Hall á hlaupinu í átt að miðju markinu og sendi til hliðar á hann. Dewsbury-Hall tók skot í fyrstu snertingu og setti boltann framhjá Leno, markverði Fulham, og í netið. Staðan orðin jöfn, 1-1! Ekkert minna en Everton átti skilið (allavega í seinni hálfleik).

Á 84. mínútu komst Everton svo yfir eftir hornspyrnu frá Dewsbury-Hall, frá hægri. Jake O’Brien gerði vel í að planta sér fyrir framan Leno í marki Fulham, sem eiginlega braut á O’Brien, en það kom ekki að sök því hann reyndi að setja höndina framhjá O’Brien til að slá til boltans en sló boltann bara í eigið net. 1-2 fyrir Everton!! 

Branthwaite inn á fyrir Mykolenko á 85. mínútu og 10 mínútum síðar kom Iroegbunam inn á fyrir Dewsbury-Hall. 

Sjö mínútum var bætt við og þær liðu án ógnar frá Fulham, sem ógnaði eiginlega mark Everton ekkert í seinni hálfleik. Þannig að Everton tók öll þrjú stigin í dag og endaði umferðina með 37 stig í 8. sæti.

Einkunnir Sky Sports: Pickford (6), O’Brien (7), Tarkowski (7), Keane (7), Mykolenko (7); Garner (7), Gueye (7); Armstrong (6), Dewsbury Hall (9), Ndiaye (6); Barry (6). Varamenn: Beto, (6) George (6), Dibling, Branthwaite (6), Iroegbunam (6).

Maður leiksins að mati Sky Sports: Kiernan Dewsbury-Hall.

6 Athugasemdir

  1. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Þetta er ekki gott. Okkar menn heppnir að vera ekki þremur eða fjórum mörkum undir. Menn eru steinsofandi í vörninni og sóknarleikurinn gengur sinn vanalega hægagang sem auðvelt er að verjast. Moyes þarf að breyta einhverju í seinni hálfleik….en hann gerir það örugglega ekki fyrr en of seint.

  2. Jón Ingi Einarsson skrifar:

    Þeir voru aldeilis ólíkir þessir tveir hálfleikir. Okkar menn ekkert með í fyrri hálfleik en tóku við sér í þeim seinni og tókst að hrifsa stigin öll þrjú sem manni datt alls ekki í hug í hálfleik að yrði niðurstaðan. Dálítið kvíðvanlegt hvað þeir safna að gulum spjöldum. En niðurstaðan var góð og stigin orðin 37 í húsi.

    • Orri skrifar:

      Stiginn 3 eru vel þegin nú þurfum við að bæta okur á síðasta þriðjung vallarins þá kemur það sem upp á á vantar.

  3. Eirikur skrifar:

    Ekki oft sem við komum til baka eftir að hafa lent undir og því ber að fagna. Ekki slæmt að vinna báða leikina á móti Fulham. Nú þarf bara að bæta heimavallar formið. Væri gott að ná að enda fyrir ofan Lpool enn aðalega gott að vera ekki í fallbaráttu.

    • Ari S skrifar:

      Sammála Eiríkur aðallega gott að vera eki í fallbaráttu og flott takmark að vera fyrir ofan Liverpool.

  4. Kiddi skrifar:

    Sannarlega ólíkir hálfleikir, en við byrjuðum leikinn af krafti og hefðum getað sett eitt í byrjun en svo hættu menn að hreyfa sig og lásu leikinn illa.
    Við stjórnuðum svo seinni frá a-z.
    Hvernig lýst mönnum á Tyrique George? Hann er með hraða og tækni og er kærkomin viðbót og vonandi fær hann tækifæri sem fremsti maður í næsta leik. Barry og Beto eru bara því miður ekki að finna sig í þessari deild.
    Moyes er að gera flotta hluti.

Leave a Reply to Kiddi