Mynd: Everton FC.
Þá er komið að 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en Everton mætir í heimsókn til Fulham og verður flautað til leiks kl. 15:00.
Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Keane, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Gana, Garner, Ndiaye, Dewsbury-Hall, Armstrong, Barry.
Varamenn: Travers, Branthwaite, Patterson, Iroegbunam, Röhl, Alcaraz, George, Dibling, Beto.
Stóru fréttirnar eru þær að Mykolenko er kominn aftur í byrjunarliðið eftir að hafa verið stutt frá en Branthwaite er hins vegar á bekknum, þannig að Keane tekur stöðu hans. Nýi kantmaðurinn, George, sem er á láni frá Chelsea, er á bekknum og gæti því fengið sinn fyrsta leik með Everton í dag. Jack Grealish er frá til lengri tíma, eins og við vitum, en þess utan held ég að liðið sé eiginlega bara á fullum styrk. Mjög gott að sjá aukna breidd á bekknum aftur.
Restin af leikskýrslu kemur síðar — ritari er í vandræðum með að ná útsendingunni, og þarf kannski að bíða eftir því að endursýning verði gerð aðgengileg á evertonfc.com. En endilega látið í ykkur heyra í kommentakerfinu á meðan!


Þetta er ekki gott. Okkar menn heppnir að vera ekki þremur eða fjórum mörkum undir. Menn eru steinsofandi í vörninni og sóknarleikurinn gengur sinn vanalega hægagang sem auðvelt er að verjast. Moyes þarf að breyta einhverju í seinni hálfleik….en hann gerir það örugglega ekki fyrr en of seint.
Þeir voru aldeilis ólíkir þessir tveir hálfleikir. Okkar menn ekkert með í fyrri hálfleik en tóku við sér í þeim seinni og tókst að hrifsa stigin öll þrjú sem manni datt alls ekki í hug í hálfleik að yrði niðurstaðan. Dálítið kvíðvanlegt hvað þeir safna að gulum spjöldum. En niðurstaðan var góð og stigin orðin 37 í húsi.
Ekki oft sem við komum til baka eftir að hafa lent undir og því ber að fagna. Ekki slæmt að vinna báða leikina á móti Fulham. Nú þarf bara að bæta heimavallar formið. Væri gott að ná að enda fyrir ofan Lpool enn aðalega gott að vera ekki í fallbaráttu.