Burnley – Everton

Mynd: Everton FC.

Í 18. umferð mætir Everton í heimsókn á Turf Moor leikvanginn til að mæta Burnley. David Moyes sagði fyrir leikinn að hann byggist við því að hópurinn væri óbreyttur frá síðasta leik, sem þýðir að Dewsbury-Hall missir einnig af þessum leik, sem og Branthwaite og Seamus Coleman, en Gana og Ndiaye eru frá vegna Afríkukeppninnar. Það kom hins vegar í ljós að Grealish væri ekki partur af hóp í dag vegna veikinda, þannig að Dibling kemur inn í byrjunarliðið fyrir hann.

Hjá Burnley var beðið eftir fréttum af Maxime Esteve, sem hefur verið lykilmaður í vörn Burnley, en hann reyndist ekki nægilega góður af meiðslum fyrir þennan leik. Auk þess eru þrír leikmenn frá vegna Afríkukeppninnar: Axel Tuanzebe (annar miðvörður), Lyle Foster (sóknarmaður) og Hannibal Mejbri (miðjumaður).

Burnley eru eins og stendur í næst-neðsta sæti deildar með 11 stig en þeir náðu jafntefli í síðasta leik, sem endaði þar með sjö leikja taphrinu hjá þeim.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Keane, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Iroegbunam, Garner, McNeil, Alcaraz, Dibling, Beto.

Varamenn: Travers, King, Aznou, Patterson, Welch, Campbell, Röhl, Barry.

Það má glögglega sjá á varamannabekknum að hópurinn hjá Everton er orðinn ansi þunnur, en á bekknum eru tveir markverðir, tveir kjúklingar, og að auki eitt autt sæti. Röhl og Barry þeir einu sem hafa fengið einhverjar mínútur á tímabilinu.

Meistari Ingvar Bærings sá um skýrsluna í fjarveru ritara og kunnum við honum bestu þakkir fyrir og gefum orðið..

Burnley átti hornspyrnu eftir 6 mínútur, Pickford reyndi að kýla boltann frá en hitti hann ekki, boltinn barst út í teiginn til Burnleymanns sem átti skot en hitti ekki markið.Ca 10 mínútum síðar gerði Dibling vel á hægri kantinum, lék á varnarmenn Burnley, komst inn í teiginn og átti fasta fyrirgjöf sem Beto rétt missti af.Eftir 28 mínútur gerði Dibling nokkuð vel í að ná löngum bolta áður en hann færi aftur fyrir endamörk, hann náði að koma boltanum fyrir og út í miðjan vítateig þar sem Alcaraz kom og átti þokkalega fastann skalla en því miður beint á markvörðinn.Everton fékk hornspyrnu í upphafi seinni hálfleiks sem Mc Neil tók, markvörðurinn kýldi boltann frá beint á Garner sem skaut en yfir markið.Burnley komst í dauðafæri á 58. mínútu. Leikmaður Burnley slapp þá einn inn fyrir vörnina en skaut yfir.Alcaraz átti hjólhestaspyrnu á 66. mínútu leiksins. Þokkaleg tilraun og hefði orðið glæsilegt mark en varið.Barry átti ágætis færi eftir 76 mínútna leik þegar hann fékk boltann inni í teig Burnley. Hann náði góðu skoti sem markvörðurinn náði að koma hönd á, en boltinn skrúfaðist undir hann en allur kraftur farinn úr skotinu og varnarmaður hreinsaði frá.Dibling vann aukaspyrnu til hliðar við vítateig Burnley sem Mc Neil tók. Hann kom með hættulegan bolta fyrir en Burnley bjargaði í horn.Garner tók hornið, boltinn barst út í teiginn til Dibling sem átti hörkuskot að marki sem varnarmaður Burnley greip næstum, en Craig Pawson var fljótur að grípa þetta tækifæri til að svindla á Everton, dæmdi ekki neitt og auðvitað var VAR-ið jafn gagnslaust og venjulega.Fleira markvert sá ég nú ekki gerast í þessum leik nema kannski það að Patterson kom inn á fyrir Dibling í uppbótartíma, líklega var Moyes þá bara að hugsa um að halda þessu eina stigi.

5 Athugasemdir

  1. Orri skrifar:

    Ég skil ekki þegar er talað um kjúklinga þessir drengir eru leikmenn Everton hvort sem þeir eru 17 ára eða 39 ára,ég kann ekki vel við þetta.

    • Ari S skrifar:

      Sammála þér Orri. Leiðust þetta tal um kjúklinga, veit þó alveg hvað við er átt. EN……. Welch er 22ja ára og Campbell 21 árs þannig að þeir eru bara ekki lengur kjúklingar haha

  2. Eirikur skrifar:

    Okkur vantar skapandi leikmann og einhvern með markanef. Á ekki von á nema 1 stigi í dag.

Leave a Reply to Eirikur