Félagaskiptaglugginn – janúar 2026

Mynd: Everton FC.

Félagaskiptaglugginn á Englandi stendur til klukkan 19:00 í dag, sem er svolítið óvenjulegur tími, miðað við undanfarin ár, en þetta mun vera vegna þess að 1. febrúar var á sunnudegi. Þar af leiðandi eru lok gluggans færð yfir á daginn eftir og ekki verður gefinn klukkutími aukalega. Skrá þarf samninga í vinnslu fyrir klukkan 17:00 og allt lokar klukkan 19:00. Þessum þræði er ætlað að halda utan um staðfest kaup og sölur sem og slúður, ef þið rekist á eitthvað. Endilega hafið samband í kommentakerfinu ef eitthvað vantar í upptalninguna.

Væntingar eru svo sem ekki miklar fyrir þennan glugga, frekar en janúarglugga almennt…

Afraksturinn hingað til:

Leikmenn inn: Tyrique George (lán – Chelsea), Harrison Armstrong (láni lokið – Preston).
Leikmenn út: Jack Patterson (lán – LKS Lods), Harry Tyrer (ótilgreind upphæð – Cardiff), Martin Sherif (lán – Port Vale), Francis Okoronkwo (lán – Doncaster), Roman Dixon (lán – Stockport County), Elijah Campbell (lán – Port Vale), William Tamen (Tranmere Rovers), George Finney (lán – Ayr United).


21:30 Staðfest! Everton staðfesti nú rétt í þessu lánssamning fyrir Tyrique George, með möguleika á kaupum. Velkominn til Everton.
21:20 Skv. Sky Sports náðu Crystal Palace ekki að klára pappírsvinnuna út af láninu á Dwight McNeil þannig að hann er ekki á leiðinni þangað í þetta skiptið.
20:10 Skv. Sky Sports er um lán að ræða hjá Dwight McNeil (til Crystal Palace) með kvöð um kaup upp á 20M punda ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt, sem mun, að sögn, ekki vera erfitt að uppfylla.
19:00 Staðfest: Jack Patterson (úr U21 árs liðinu) fór til pólska liðsins LKS Lods að láni út tímabilið.
18:58 Gluggavakt BBC segir að Everton hafi tekið tilboði Crystal Palace í Dwight McNeil.
17:54 Skv. Gluggavakt Sky Sport stóðst Tyrique George læknisskoðun og verður því leikmaður Everton — en beðið er staðfestingu frá Everton. Einnig kom fram þar að tilboði Genoa í Nathan Patterson hafi verið hafnað, en á móti kemur að Crystal Palace buðu 20M punda í Dwight McNeil og það fylgdi með fréttinni að lánið á Tyrique George frá Chelsea hafi gert það að verkum að Everton var til í að skoða þann samning.
15:08 Gluggavakt Sky Sports segir nú einnig að Crystal Palace séu að skoða Dwight McNeil og að Sean Dyche hafi einnig áhuga á að nýta sér krafta hans aftur.
14:52 Sky Sports segir að Tyrique George sé nú í læknisskoðun hjá Everton.
14:19 Skv. gluggavakt BBC er Crystal Palace að sýna Dwight McNeil áhuga og að Everton verðmeti hann á 20M punda.
12:08 Skv. gluggavakt Sky Sports er Genoa að reyna að fá til sín Nathan Patterson, en fyrst þurfi enski hægri bakvörðurinn Brooke Norton-Cuffy að fara frá þeim. Einnig kom fram að Everton væri einn af klúbbunum sem hefðu áhuga á þeim leikmanni. Svolítið undarleg leið til að segja að mögulega komi til þess að félögin skipti á þessu leikmönnum… En skiptir svo sem litlu, þar sem hálftíma síðar var talað um að hann vilji vera áfram hjá Genoa fram á sumar.
09:54 Skv. gluggavakt BBC hafnaði Fulham tilboði Everton í miðjumanninn Harry Wilson (28 ára). Hann verður hins vegar með lausan samning í sumar, þannig að það er þá möguleiki að hann fari frá þeim frítt í staðinn, að tímabili loknu.
06:50 Skv. gluggavakt Sky Sports var Juventus að spyrjast fyrir um það hvort Beto væri til sölu, en að Everton myndi vilja tryggja sér mann í staðinn áður en hann yrði látinn fara.
00:00 Í gær bárust þær fréttir að Everton hefði náð samningum við Chelsea um lán á kantmanninum unga, Tyrique George, til loka tímabils, með möguleika á kaupum. Þetta hefur þó ekki verið staðfest. Einnig bárust þær fréttir áður að James Garner hefði framlengt samning sinn til júní 2030. En að öðru leyti hefur verið rólegt að líta yfir gluggann, eins og venja er í janúargluggum.

6 Athugasemdir

  1. Ari S skrifar:

    …ég var að lesa að Dwight McNeil díllinn sé off. En Tyrique George er kominn í Everton búninginn…

  2. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Líklega hefur einhver hjá Palace fengið skyndilegt skynsemiskast og tafið pappírsvinnuna fyrir kaupin á McNeil og við sitjum uppi með hann áfram. O jæja, þetta var of gott til að vera satt.
    Veit ekkert um þennan George annað en að hann er í enska u21 landsliðinu. Það segir akkúrat ekkert, Dibling er líka í því og hann er nú ekki beint að gera gott mót með Everton.

  3. Ari S skrifar:

    Þetta var alveg ömurleg framkoma hjá Crystal Palace. Og hvað sem stuðninsmönnum þykir um Dwight McNeil þá er hann ennþá leikmaður Everton. Það var ekki honum að kenna að til félagsins voru keyptir leikmenn sem að settu hann úr liðinu. Hann meiddist og missti form lika og hefur bara alls ekki staðið sig vel. Margir sjá fyrir sér mark Leeds gegn okkur… þar hefði hann mátt gera betur. En ég legg til að stuðningsmenn styðji við hann ef að Moyes velur hann í liðið. En að fá stuðningsmenn upp á móti sér og svo framkoma Crystal Palace gagnvart honum í gærkvöldi er hreint út sagt ömurlegt.

    Hér á eftir kemur bréf sem að kona Dwight McNeil sendi á netið í gærkvöldi fyrir þau sem vilja lesa.

    Í kvöld, og síðustu 48 klukkustundirnar, hafa brotið hjarta mitt að sjá hversu grimmur fótboltaheimurinn sem þú elskar svo mikið getur verið við þig.
    Að hafa fengið eitthvað lofað, að hafa verið dreginn með í tilfinninga-óreiðu [emotional rollercoaster], og að hafa verið leikið við fram að loka mínútu. Að hafa fengið 4 og hálfs árs líf þitt lofað, ferðalög, læknisskoðanir, samningar gerðir… loforð gefin. Að hafa undirbúið að flytja allt líf þitt, líf okkar, 100 mílur í burtu á nokkrum klukkustundum.
    Að það sé rifið frá þér á síðustu sekúndu, án nokkurrar skýringar. Að fara úr öllu – í algjöru þögn [radio silence], engin símtal, engin samskipti og vera skilin eftir brotin og rugluð með ekkert nema rugling, hefur sært meira en ég get orðað.
    Ég sit hjá þér og veit í hjarta mínu og djúpt í sálu minni að þú munt komast yfir þetta. Ég er mesti stuðningsmaður þinn og ég veit að þú munt yfirstíga þetta með eldi í maganum…

  4. Gestur skrifar:

    Það er nú meira getuleysið hjá þessum klúbbi. Hann er korter frá því að berjast um evrópusæti og þá er ekki hægt að bæta við mannskap. 19 ára gutti er ekki að fara að gera neitt enda notar Moyes þá ekki nema í algeri neyð.

    • Ari S skrifar:

      Gott að vita það Gestur minn. Þá þurfum við ekkert að búast við miklu frá honum.

      • Ari S skrifar:

        …og svona til að segja eitthvað þá er það að bæta við mannskap ekki alltaf lausnin. Þá á ég sérstaklega við í janúar glugga.

        Ég hefði viljað sjá einhvern hægri bakvörðinn núna en samt ekki bara einhvern. Ef að AllarDyche eða Dyche hefðu verið stjórar þá hefði sennilega Kyle Walker verið keyptur og allir happy ekki satt? Neiii segi bara svona;)

Leave a Reply