Everton – Bournemouth 1-2

Mynd: Everton FC.

Everton og Bournemouth áttust við á Hill Dickinson leikvanginum í kvöld í 26. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Everton var í 8. sæti með 37 stig en Bournemouth með 34 stig í 11. sæti. Bæði lið voru hins vegar taplaus í síðustu 5 leikjum en Bournemouth með betri árangur (þrjá sigra) úr þeim fimm leikjum en Everton (tvo sigra). Everton vann fyrri leikinn á útivelli 0-1, í tíðindalitlum leik þar sem þurfti smá heppnismark frá Grealish (boltinn breytti um stefnu af varnarmanni) til að skera úr um sigurvegarann. Maður bjóst því við strembnum leikur í kvöld, en það var allavega betra að líta yfir varamannabekk Everton en í fyrri leiknum.

Grealish frá út tímabilið, eins og ljóst var, en aðrir aðalliðsmenn Everton voru klárir í þennan leik. Hjá Bournemouth voru Justin Kluivert og Marcus Tavernier frá en Tyler Adams metinn tæpur.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Branthwaite, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Gana, Garner, George, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Barry.

Varamenn: Travers, Keane, Patterson, Iroegbuna, Röhl, Alcaraz, Armstrong, Dibling, Beto.

Sem sagt: Armstrong úr aðalliðinu var settur á bekkinn og lánsmaðurinn, George, sem fékk sinn fyrsta (Everton) leik á móti Fulham, fær nú sinn fyrsta leik í byrjunarliði Everton. En þá að leiknum…

Everton liðið var sprækt frá upphafi og náði að koma boltanum í netið á 9. mínútu en Ndiaye réttilega dæmdur rangstæður. 

Á 29. mínútu fékk Everton svo aukaspyrnu sem Garner tók og markvörður Bournemouth varði en missti frá sér. Barry fékk þar óvænt frákast og var í algjöru dauðafæri, en setti boltann vel framhjá. Hafði svo sem ekki mikinn tíma til að átta sig á þessu en það vantaði mikið upp á að koma boltanum á markið. 

Ndiaye náði svo fínu skoti á mark, stuttum síðar, úr þröngu færi hægra megin en markvörður Bournemouth varði í stöngina og út. Bournemouth menn heppnir þar. 

Á 40. mínútu fór svo að draga til tíðinda þegar Branthwaite var sparkaður niður í teig Bournemouth. Ndiaye fór á punktinn og skoraði örugglega niðri í vinstra hornið. 1-0 fyrir Everton! 

Og þannig var staðan í hálfleik. 

Everton liðið byrjaði seinni hálfleik af nokkrum krafti og ógnuðu marki Bournemouth verulega strax frá fyrstu mínútu. Gott að sjá. En markið lét á sér standa.

Barry fékk svo annað dauðafæri í leiknum á 54. mínútu, eftir flottan undirbúning frá Ndiaye. En einhvern veginn tókst varnarmanni Bournemouth að blokka skotið.

Hinum megin voru Bournemouth menn næstum búnir að refsa, þegar þeir komust í sókn og brunuðu inn í teig hægra megin, og sóknarmaður þeirra var næstum kominn framhjá Mykolenko, en endaði í grasinu eftir viðureignina. Ég hefði dæmt víti ef ég hefði verið hlutlaus, en dómarinn og VAR sögðu nei. Everton slapp með skrekkinn þar (að mínu mati — aðrir í salnum voru ekki sammála mér).

En mark Bournemouth kom hins vegar á 60. mínútu þegar þeir náðu hárri fyrirgjöf frá vinstri, sem Mykolenko afgreiddi ekki frá marki, sem leyfði sóknarmanni Bournemouth að skalla inn. Staðan orðin jöfn, 1-1.

Moyes brást við með því að skipta inn Beto og Armstrong fyrir Barry og George.

1-1 hefði verið sanngjörn úrslit, eftir á að hyggja, en Bournemouth menn skoruðu algjört rangstöðumark stuttu síðar. Tóku aukaspyrnu utan af velli og leikmaður þeirra — sem var klárlega rangstæður — reyndi að skalla fyrirgjöf fyrir mark en annar leikmaður þeirra skallaði inn og markið var dæmt gott og gilt. Glötuð ákvörðun að leyfa markinu að standa, þar sem það á að dæma rangstöðu ef rangstæður leikmaður reynir við boltann (eins og var gert fyrr á tímabilinu þegar Armstrong var rangstæður í marki O’Brien). Það var hins vegar ekki gert hér og staðan því orðin 1-2 fyrir Bournemouth.

Leikmenn Bournemouth færðu sig upp á skaftið við markið og stuttu síðar versnaði þetta all hressilega þegar O’Brien var rekinn af velli fyrir að rekast á fremsta mann sem var að komast í gegn. Alltaf rautt. Everton manni færri síðasta stundarfjórðunginn.

En það var ekki að sjá að Everton væri manni færri því Bournemouth pökkuðu í vörn og pressan á mark Bournemouth var stöðug. Beto átti ágætan skalla á mark á 78. mínútu en markvörður mættur í hornið. En Everton komust ekki, manni færri, áleiðis gegn varnarmúrnum. Keane kom inn á fyrir Mykolenko á 92. mínútu en fleiri urðu færin ekki.

Einkunnir Sky Sports: Pickford (5); O’Brien (4), Tarkowski (5), Branthwaite (6), Mykolenko (5); Gueye (6), Garner, (6) Dewsbury-Hall (5); George (4), Barry (3), Ndiaye (6). Varamenn: Beto (5), Armstrong (6).

Verð að viðurkenna að ég er pínu hissa á þessum einkunnum, því þær virðast gefa til kynna að Everton hafi verið yfirspilað og tapað stórt — sem var ekki raunveruleikinn. Bournemouth unnu þetta, manni fleiri, með aðeins einu marki þó að Everton hafi verið með næstum þrefalt hærra xG (expected goals) en Bournemouth og voru betra liðið eftir að missa mann af velli. Það vantaði bara herslumuninn — að Barry kláraði færin sín eða að rangstöðumarkið hefði verið dæmt af þeim og þá hefðu einkunnirnar litið allt öðruvísi út.

But, oh well.

5 Athugasemdir

  1. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Ef við vinnum þá komumst við upp fyrir Liverpool amk þar til á morgun. Það eitt og sér ætti að vera mönnum nógu mikil hvatning.

  2. Eirikur skrifar:

    Þetta var fúlt. Finnst allt of lítið koma út úr föstum leikatriðum með alla þessa stóru menn. Vorum mun betri einum færri sem bendir til þess að það hafi slokknað á mönnum á kafla í seinni. Hefði verið næs að fara upp fyrir Lpool.

  3. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Alltaf er það sama sagan. Þegar tækifæri gefst til að gera eitthvað jákvætt eins og að gera kannski smá bil á milli Everton og liðanna fyrir neðan, þá klúðrar liðið því með glæsibrag.
    Annars hefði þetta ekki átt að koma neinum á óvart, við getum varla skorað og vörnin er hriplek á heimavelli. Þar fyrir utan hefði Everton farið upp fyrir Liverpool með sigri og komist í þessi frægu 40 stig. Bara það hefði átt að segja manni að þessi leikur myndi aldrei vinnast.

    • Ingvar Bæringsson skrifar:

      Man einhver eftir markinu sem O’Brien skoraði á móti Villa, en það var dæmt af vegna rangstöðu, þar sem Armstrong reyndi að skalla boltann en var rangstæður? Einhverjir sögðu að það mark hefði átt að standa, og að svipuð atvik ættu eftir að koma upp í öðrum leikjum þar sem markið yrði látið standa. Jæja! Auðvitað gerðist það, og auðvitað var það Everton sem varð fyrir barðinu á því. Leikmaður Bournemouth var rangstæður og reyndi að ná til boltans þegar þeir skoruðu sigurmarkið.

      Það sem kannski var jákvætt við þennan leik er að O’Brien fékk rautt svo Moyes neyðist til að láta Patterson spila næstu þrjá leiki.

    • Orri skrifar:

      Alltaf þegar við erum með þetta ì okkar höndum að fara upp fyrir Liverpool eða man utd þá tekst okkur alltaf að klúðra því.

Leave a Reply