Everton – Chelsea 3-0

Mynd: Everton FC.

Þá er komið að 31. umferð ensku úrvalsdeildarinnar, með leik Everton á heimavelli gegn Chelsea. Þetta er aldeilis farið að styttast í annan endann, þar sem aðeins 8 leikir eru eftir af tímabilinu.

Uppstillingin: Pickford, O’Brien, Tarkowski (fyrirliði), Keane, Mykolenko, Gana, Garner, McNeil, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Beto.

Varamenn: Travers, Coleman, Patterson, Branthwaite, Iroegbunam, Röhl, Dibling, Armstrong, Barry.

Tarkowski kemur aftur í byrjunarliðið eftir að hafa verið frá í síðasta leik og Branthwaite fer á bekkinn. Grealish er enn meiddur og George getur ekki spilað á móti eignarliði sínu. Hjá Chelsea eru Trevoh Chalobah, Reece James, Levi Colwill og Filip Jorgensen allir frá vegna meiðsla.

Ágætis tempo frá Everton í upphafi leiks, sem pressuðu leikmenn Chelsea vel.  Þeir sluppu með skrekkinn á 10. mínútu, þegar markvörður þeirra var að dóla með boltann og Beto náði að blokkera hreinsun út úr teig, en boltinn hrökk til varnarmanns, Chelsea til mikils léttis, því markvörður þeirra lá í grasinu. Garner fékk svo skotfæri, óvaldaður inni í teig, stuttu síðar, en skotið í varnarmann. 

Chelsea menn gerðu loks eitthvað af viti á 26. mínútu, þegar þeir komust í skyndisókn þrír á þrjá, en sólunduðu því með skoti beint í lappirnar á Tarkowski. Þeir náðu sókn stuttu síðar, þar sem þeir skutu tvisvar í samherja, að mér sýndist, og áttu svo tilraun á mark út við horn á vítateignum, regn Pickford greip það bara.

Á 33. mínútu náði Everton að setja mark á Chelsea og þar voru að verki Garner og Beto. Einfalt mark, löng stungusending frá Garner í hlaupaleið Beto, sem lagði boltann í fyrsta framhjá markverði Chelsea, sem kom hlaupandi út á móti.

En Chelsea reyndu að svara strax og náðu skoti á mark af stuttu færi, sem Pickford varði meistaralega. Ótrúleg viðbragða varsla sem sýndi enn á ný af hverju hann er fyrsti valkostur í marki Englands. 

1-0 í hálfleik.

Lítið að frétta í seinni hálfleik þangað til Enzo náði lúmsku skoti á fjærstöng frá horni vítateigs vinstra megin. Pickford hins vegar vandanum vaxinn og varði frábærlega í horn.

En Everton bætti við marki á 62. mínútu, og í þetta skiptið lagði Gana upp marktækifæri fyrir Beto. Gana gerði vel að lesa leikinn og stelast inn í sendingu fram, hjá Chelsea. Brunaði fram og skildi þá eftir, og renndi boltanum fyrir Beto inni í teig. Hann náði skoti á mark sem markvörður missti í gegnum klofið á sér og inn fyrir. 2-0 fyrir Everton!

Chelsea menn reyndu allt til að minnka muninn, meira að segja skot beint úr horni á 71. mínútu, sem fór í ofanverða slána. Pickford þó með það.

En Everton setti bara þriðja markið í andlitið á þeim og í þetta skiptið gaf Beto stoðsendingu þegar hann skallaði langt útspark til Ndiaye, sem þakkaði fyrir sig með því að smyrja boltanum upp í samskeytin hjá Sanchez í marki Chelsea! 3-0! Stuðningsmenn Chelsea forðuðu sér flestir út við þetta.

Everton náði flottri skyndisókn á 85. mínútu, þar sem Dewsbury-Hall komst í skotfæri og náði föstu skoti á mark, en Sanchez varði, merkilegri nokk.

En lengra náði það ekki. 3-0 verðskuldaður sigur staðreynd og Everton komið upp í 7. sæti!

Einkunnir Sky Sports: Pickford (9), O’Brien (7), Tarkowski (7), Keane (7), Mykolenko (7), Gueye (8), Garner (9), Dewsbury-Hall (7), McNeil (7), Ndiaye (8), Beto (9). Varamenn: Branthwaite (6), Barry (6).

Maður leiksins, að mati Sky Sports (og ritara), var Beto, enda kom hann að öllum mörkum Everto (setti tvö og gaf eina stoðsendingu). Leikmenn Chelsea voru við jaðar falleinkunnar, nánast allir sem einn. Gusto og Palmer náðu í 6, hinir lægra — og markvörður þeirra með fjóra í einkunn.

11 Athugasemdir

  1. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Það er skondin tilviljun að Everton eigi leik við Chelsea í sömu viku og þeim var „refsað“ fyrir brot á reglum.
    Þessi svokallaða refsing, sem reyndar staðfesti bara það sem allir sem ekki styðja Þessi „stóru“ lið, vissu.
    Að það eru sérreglur fyrir þau. Það hefur ýft upp gömul sár hjá mjög mörgum stuðningsmönnum Everton og líklega verða einhver bleik spjöld á lofti í stúkunum á eftir, eins og var í fyrsta leik eftir að 10 stig voru dregin af Everton hérna um árið.
    Það er líka tilviljun að í liði Man Utd þá, var leiðindapúkinn Garnacho, sem skoraði mark ársins eftir þrjár mínútur í þeim leik og það sló Everton algjörlega út af laginu og steindrap stemninguna á Goodison. Það væri því algjörlega týpískt að það sama gerist í dag þar sem að hann er núna á mála hjá Chelsea.
    1878-hópurinn stóð fyrir rútumóttöku í dag og það er víst líka búið að skipuleggja eitthvað með fána í stúkunum í dag svo það ætti að vera góð stemning.
    Það veldur mér áhyggjum, því í öll skiptin sem þessi annars frábæri hópur hefur staðið fyrir einhverju, hefur Everton ekki fengið eitt einasta stig. Það plús að það verður væntanlega frábær stemning á pöllunum og helvítis Garnacho er í liði Chelsea, fær mig til að halda að Everton tapi þessum leik. Það væri bara svo týpískt Everton.

  2. Ari S skrifar:

    Yessss Beto, 61.min

  3. Jón Ingi Einarsson skrifar:

    Nú var gaman að horfa á leikinn,allt liðið stóð sig frábærlega. Vonandi framhald á þessu.

  4. Kiddi skrifar:

    Magnaður sigur, Beto og Garner með stórleik, annars var þetta sigur liðsheildarinnar. Löng bið eftir næsta leik, 11 apríl, en þá heimsækjum við Brentford og hefnum vonandi fyrir svekkjandi tap í janúar.

  5. Þór75 skrifar:

    Fullkomið. Everton í meistaradeildina!

    Nýi völlurinn er skapaður fyrir Evrópuævintýri.

  6. Orri skrifar:

    Þetta var stórkostlegur sigur ì dag liðið spilaði mjög vel allir sem einn.

  7. Finnur Thorarinsson skrifar:

    Þetta var náttúrulega ekkert annað en geggjað…

    „I never felt more like singing the blues…“

  8. Finnur skrifar:

    Fjórir Everton leikmenn í liði vikunnar að mati BBC. Business as usual, I guess…
    https://www.bbc.com/sport/football/articles/c0krjkl3kn0o?at_medium=RSS&at_campaign=rss

  9. Diddi skrifar:

    flott gjöf frá félaginu, nú labbar maður stoltur í búðina, takk fyrir mig.

Leave a Reply