Everton – Bournemouth 1-2

Mynd: Everton FC.

Klukkan 19:30 í kvöld verður flautað til leiks Everton og Bournemouth á Hill Dickinson leikvanginum en þetta er 26. umferðin í ensku úrvalsdeildinni.

Everton er í 8. sæti með 37 stig en Bournemouth með 34 stig í 11. sæti. Bæði lið eru hins vegar taplaus í síðustu 5 leikjum en Bournemouth eru með betri árangur (þrjá sigra) úr þeim fimm leikjum en Everton (tvo sigra). Everton vann fyrri leikinn á útivelli 0-1, í tíðindalitlum leik þar sem þurfti smá heppnismark frá Grealish (boltinn breytti um stefnu af varnarmanni) til að skera úr um sigurvegarann. Þetta verður örugglega strembinn leikur í kvöld, en það verður allavega betra að líta yfir varamannabekk Everton en það var þá.

Grealish er þó frá út tímabilið, eins og við þekkjum, en aðrir aðalliðsmenn Everton ættu að vera klárir í þennan leik. Hjá Bournemouth eru Justin Kluivert og Marcus Tavernier frá en Tyler Adams líklega tæpur.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Branthwaite, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Gana, Garner, George, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Barry.

Varamenn: Travers, Keane, Patterson, Iroegbuna, Röhl, Alcaraz, Armstrong, Dibling, Beto.

Sem sagt, Armstrong úr aðalliðinu á bekkinn og lánsmaðurinn á kantinum, George, sem fékk sinn fyrsta (Everton) leik á móti Fulham, fær nú sinn fyrsta leik í byrjunarliði Everton.

Everton liðið sprækt frá upphafi og náði að koma boltanum í netið á 9. mínútu en Ndiaye réttilega dæmdur rangstæður. 

Á 29. mínútu fékk Everton aukaspyrnu sem Garner tók og markvörður Bournemouth varði en missti frá sér. Barry fékk þar óvænt frákast en setti boltann vel framhjá. Hafði svo sem ekki mikinn tíma til að átta sig á þessu. 

Ndiaye náði svo fínu skoti á mark, stuttum síðar, úr þröngu færi hægra megin en markvörður Bournemouth varði í stöng og út. Bournemouth menn heppnir þar. 

Á 40. mínútu fór að draga til tíðinda þegar Branthwaite var sparkaður niður í teig Bournemouth. Ndiaye á punktinn og skoraði örugglega niðri í vinstra hornið. 1-0 fyrir Everton! 

Og þannig var það í hálfleik. 

Everton liðið byrjaði seinni hálfleik af krafti og ógnuðu marki Bournemouth verulega strax frá fyrstu mínútu. Gott að sjá. En markið lét á sér standa.

Barry fékk annað dauðafæri í leiknum á 54. mínútu, eftir flottan undirbúning frá Ndiaye. En einhvern veginn tókst varnarmanni Bournemouth að blokka skotið.

Hinum megin voru Bournemouth menn næstum búnir að refsa, þegar þeir komust í sókn, og voru næstum komnir framhjá Mykolenko, en sóknarmaður þeirra féll við. Ég hefði dæmt víti ef ég hefði verið hlutlaus, en dómarinn og VAR sögðu nei. Everton slapp með skrekkinn þar.

En mark Bournemouth kom hins vegar á 60. mínútu þegar þeir náðu hárri fyrirgjöf frá vinstri, sem Mykolenko afgreiddi ekki frá, sem leyfði sóknarmanni Bournemouth að skalla inn. 1-1.

Moyes brást við með því að skipta inn Beto og Armstrong fyrir Barry og George.

1-1 hefði verið sanngjörn úrslit, eftir á að hyggja, en Bournemouth menn skoruðu algjört rangstöðumark stuttu síðar. Tóku aukaspyrnu utan af velli og leikmaður þeirra — sem var klárlega rangstæður — reyndi að skalla fyrirgjöf fyrir mark en annar skallaði inn og markið var dæmt gott og gilt. Glötuð ákvörðun að leyfa markinu að standa og staðan orðin 1-2 fyrir Bournemouth.

Leikmenn Bournemouth færðu sig upp á skaftið við markið og stuttu síðar versnaði þetta all hressilega þegar O’Brien var rekinn af velli fyrir að rekast á fremsta mann sem var að komast í gegn. Alltaf rautt. Everton manni færri síðasta stundarfjórðunginn.

Það var ekki að sjá að Everton væri manni færri því pressan á mark Bournemouth var stöðug. Beto átti ágætan skalla á mark á 78. mínútu en markvörður mættur í hornið.

Bournemouth pökkuðu í vörn og Everton komst ekki áleiðis gegn varnarmúrnum. Keane kom inn á fyrir Mykolenko á 92. mínútu en fleiri urðu færin ekki.

Einkunnir Sky Sports ekki komnar. Uppfæri síðar.

2 Athugasemdir

  1. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Ef við vinnum þá komumst við upp fyrir Liverpool amk þar til á morgun. Það eitt og sér ætti að vera mönnum nógu mikil hvatning.

  2. Eirikur skrifar:

    Þetta var fúlt. Finnst allt of lítið koma út úr föstum leikatriðum með alla þessa stóru menn. Vorum mun betri einum færri sem bendir til þess að það hafi slokknað á mönnum á kafla í seinni. Hefði verið næs að fara upp fyrir Lpool.

Leave a Reply