Everton – Arsenal 0-1 (í hálfleik)

Mynd: Everton FC.

Það er risaleikur á dagskrá í kvöld þegar Everton tekur á móti Arsenal kl. 20:00. Arsenal eru eins og kunnugt er í efsta sæti deildar eftir 16 umferðir og þetta er því verðugt verkefni fyrir okkar menn. Þeir hafa ekki verið mjög sannfærandi undanfarið, tekið sigurleik og svo tap/jafntefli í næsta leik, en þeir unnu einmitt síðasta leik, þannig að vonandi heldur sú hrina áfram.

Maður er samt mátulega svartsýnn fyrir þennan leik, því að stór skörð hafa verið hoggin í lið Everton undanfarið. Ndiaye og Gana eru frá vegna AFCON keppninnar og Kiernan Dewsbury-Hall meiddist í síðasta leik. Auk þess eru varnarmennirnir Jarrad Branthwaite og Seamus Coleman ennþá frá vegna meiðsla. Þær góðu fréttir bárust hins vegar að Grealish væri klár í þennan leik, en um tíma leit út fyrir að hann myndi missa af leiknum vegna meiðsla. Einnig er Merlin Röhl sagður orðinn heill og byrjar því líklega á bekknum.

Hjá Arsenal eru Ben White, Gabriel, Christhian Mosquera, Kai Havertz, og Max Dowman frá.

Uppstillingin: Pickford; Mykolenko, Keane, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien; Garner, Iroegbunam; Grealish, Alcaraz, McNeil; Barry.

Varamenn: Travers, King, Aznou, Patterson, Welch, Campbell, Dibling, Röhl, Beto.

Nokkuð jafnræði með liðunum frá upphafi og ekki mikið um færi. En Everton kom greinilega nokkuð vel stemmt til leiks. Liðin núlluðu annars hvort annað út og Arsenal menn voru ekki mjög sannfærandi, allavega ekki af liði í baráttunni um Champions League sæti að vera…

En á 24. mínútu dró til tíðinda, þegar O’Brien gaf Arsenal víti, þegar hann lenti í samstuði við Arsenal mann í skallaeinvígi og var með hendurnar upp í loft, einhverra hluta vegna. Boltinn fór náttúrulega í hendurnar á honum og víti niðurstaðan. Gyokores á punktinn og skoraði örugglega. 0-1. Þeir þurftu tvö sjálfsmörk í síðasta leik til að vinna og nú leit út fyrir að þeir þyrftu víti til að klára þennan.

0-1 í hálfleik. Vonandi opnast þetta aðeins í seinni.

Restin af leikskýrslu kemur síðar. Endilega látið í ykkur heyra í kommentakerfinu!

4 Athugasemdir

  1. Ari S skrifar:

    Ætla að vera smá bjartsýnn, við skorum 1 og vinnum 1-0.

    Thierno Barry

  2. Eirikur skrifar:

    Veit ekki hvað OBrian var að spá.
    Enn Barry þarf að fara út fyrir Beto. Það þarf bully á þessar Arsenal dúkkur og Barry er bara að jogginu

  3. Eirikur skrifar:

    Ekkert skot á mark eða í átt að marki. Hvaða bull fótbolta er verið að spila. Við erum ekki tiki taka fótbolta lið þó að Grealish sé í okkar liði. Við verðum að pönkast í Arsenal.

Leave a Reply