Þá er nýjasta slúðrið að Moeys sé að íhuga að semja við ítölsku kempuna Mauro Camoranesi frá Juventus. Þetta kom fram á Sky í dag. Þó verður það að teljast ólíklegt þar sem Moeys er ekki þekktur fyrir að semja við þetta gamla leikmenn.
Þá hefur komið fram hjá njósnurum Everton að þeir séu frekar að horfa til að bæta í mannskapinn í janúar, frekar en núna.
Einnig hefur komið fram að menn eru enn að velta fyrir sér hvort að Crouch komi til Everton í skiptum við Pienaar, en lýst hefur verið yfir að Everton vilji halda Pienaar og það boð sem komið er í hann, 6 milljónir, sé engan veginn ásættanlegt. Talið er að Yobo sé í viðræðum við Celtic að fara þangað á láni.
Þá er eitt nafn enn í pottunum en það er Dries Mertens sem er á mála hjá FC Utrecht í Hollandi. Þetta er þó ekki mjög líklegt þar sem Dries hefur gefið út að hann vilji vera í Hollandi. Dries er 23 ára sóknar miðjumaður.
Síðan "skemmtilegu" fréttirnar en José Murhinio hefur gefið út að hann myndi frekar vilja stjórna Everton en Liverpool. Hann sagði að fyrsta val hans væri Man Utd, en þar á eftir kæmu Arsenal, Tottenham og Everton, þetta væru einu liðin sem vert væri að taka að sér.
Meira síðar.
Comments are closed.