Leiðbeiningar fyrir Everton Customer Number

Mynd: Everton FC.
Mikilvægt:
Frá og með 1. október 2025 gerir Everton FC kröfu um að allir kaupendur miða, sem ætla að mæta á keppnisleiki Everton, þurfi fyrst að skrá sig fyrir aðgangi á evertonfc.com. Þegar þú hefur stofnað þennan aðgang getur þú flett upp þínu Everton Customer Number, en það númer þarf að fylgja með öllum miðapöntunum — líka í formlegum ferðum á vegum Everton á Íslandi.
Sem sagt:
Ef þú ætlar að mæta á keppnisleik hjá Everton verður þú að vera með Everton Customer Number á skrá.
Ef þú hefur einhvern tímann borgað meðlimagjald til Everton FC, ert þú örugglega nú þegar með Everton Customer Number á skrá. Everton hefur sent stundum meðlimakort eftir að meðlimagjöld hafa verið borguð, þar sem númerið er prentað á spjaldið. Athugið að hér er ekki verið að tala um meðlimagjald til stuðningsmannaklúbbs Everton á Íslandi, heldur meðlimaáskrift hjá félaginu úti (Everton FC) en á tímabilinu 2025/26 hefur þessi meðlimaáskrift heitið Forever Blue/Forever Blue+. Einnig, ef þú hefur einhvern tímann keypt eitthvað á netinu í gegnum vefverslun Everton gætir þú líka verið með Everton Customer Number.
Hér eru algengar spurningar og leiðbeiningar, sem hjálpa þér að finna þitt númer eða stofna nýtt:
„Það er örugglega búið að úthluta mér Everton Customer Number. Hvernig finn ég það?“
Frábært! Eitt af hlutverkum stuðningsmannaklúbbsins hér heima er að halda utan um hvaða Everton Customer Number félagsmenn eru með, þannig að ef þú ert meðlimur hér heima þá endilega spurðu okkur fyrst hvort við séum með þitt númer á skrá. Svo eru allavega tvær leiðir fyrir þig að fletta upp númerinu þínu:
Prófaðu fyrst að fara á https://www.evertonfc.com/home og velja Login uppi í hægra horni. Mundu að ef þú manst ekki lykilorðið er hægt að velja „Forgot password“ og gefa upp tölvupóstfangið þitt til að endurstilla lykliorðið.
Þegar þér tekst svo að skrá þig inn velur þú My Tickets og þá ættirðu að sjá:

Athugið að við höfum heyrt af því að númerið birtist ekki á þessari síðu alveg strax eftir að reikningurinn er stofnaður, þannig að þið gætuð þurft að bíða í einhverja stund.
Þið getið líka prófað að smella á Manage Tickets hnappinn (sjá mynd hér að ofan) og þá birtist…

Ef þið smellið á prófíl takkann (sjá hér að ofan) ætti þetta að birtast uppi í hægra horni…

Þarna á þitt Everton Customer Number að birtast, sem og tegund áskriftar (ef einhver er). Það er í góðu lagi þó að reiturinn undir nafninu sé auður (eða að staðan sé „no active membership“ á skjánum Official Memberships).
Til vara getur þú einnig prófað að leita í tölvupóstinum þínum að einhverju af þessu:
- from:boxofficenoreply@evertonfc.com
- subject:“Membership Confirmation“
- „forever blue“
- „customer number“ eða „customer number“ everton
Ef einhver af þessum leitum skilar Everton-tengdum niðurstöðum ættir þú að finna Everton Customer Number þar, sjö stafa númer sem byrjar líklega á tölunni 5, 6, eða 7. Láttu okkur einnig vita hvort eitthvað sé rætt um tegund áskriftar. Líklegir möguleikar eru:
- Forever Blue
- Forever Blue+
- Forever Blue Supporters Club
- Engin áskrift
„Ég er viss um að ég sé ekki með neitt Everton Customer Number. Er hægt að stofna nýtt númer?“
Já, það er mjög einfalt. Þú ferð hingað https://www.evertonfc.com/home, smellir á Login uppi í hægra horni og finnur setninguna „Don’t have an account?“ og smellir þar á Register Now. Þessi beini linkur gæti virkað einnig.
Að því loknu fylgir þú leiðbeiningunum hér að ofan til að finna númerið þitt og sendir með beiðninni um miðakaup. Athugið: þú þarft ekki að kaupa meðlimaáskrift hjá Everton FC á þessu stigi en þér er það frjálst (sjá meira um það hér að neðan).
Athugið einnig að hver einstaklingur sem þarf miða þarf að skrá sig og fá Everton Customer Number.
„Mig langar að kaupa meðlimaáskrift hjá Everton í leiðinni. Skiptir máli hvora áskriftina ég vel?“
Já, það skiptir miklu máli. Þú getur valið um tvær áskriftarleiðir:
- Everton Forever Blue
- Everton Forever Blue+ (Ath: plúsinn er lykilatriði)
Við getum alltaf lagt inn miðapöntun fyrir þig, sama hvort af þessu þú velur, en áskriftarleið 1 (Forever Blue) veitir ekki aðgang að forsölu miða, sem þýðir að það er ólíklegt að við náum að kaupa fyrir þig miða. Þú vilt því annað hvort vera á áskriftarleið nr. 2 (Forever Blue+) eða sleppa því að kaupa meðlimaáskrift.
„Hver er annars munurinn á þessum Forever Blue áskriftarleiðum? Hvað á ég að velja?“
Þessi útlistun kom frá klúbbnum fyrir 2025/2026 tímabilið (stærri útgáfa hér):

Ath: Gildir fyrir tímabilið 2025/26.
Forever Blue+ áskriftin er fyrir þá sem vilja sýna Everton stuðning sinn í verki og hafa möguleika á að nýta allt það sem meðlimaáskriftin hefur upp á að bjóða. Til dæmis: forgang í miðasöluna, fá aðgang að upptökum af úrvalsdeildarleikjum Everton (allar 90+ mínúturnar, eftir að leik lýkur), fara á leiki með kvennaliði Everton og/eða leiki með U21 árs liðinu sem og fá aðgang að beinum útvarpslýsingum á meðan á leikjum Everton stendur.
Athugið að Forever Blue er áskriftarleið sem hentar engan veginn fyrir okkur hér á Íslandi og við satt best að segja ættum að forðast, því hún veitir ekki forgang í miðasölunni þó pantað sé í gegnum okkur. En, athugið að ef þið eruð nú þegar með svona áskrift er hægt að breyta þeirri áskrift í svokallaða Forever Blue Supporters Club áskrift (sjá hér að neðan), eða uppfæra í Forever Blue+ og þá færist maður bara um áskriftarflokk og fær önnur réttindi fyrir vikið. Hafið samband ef þetta á við um ykkur.
Ef ekkert er valið er áskriftarleiðin Forever Blue Supporters Clubs sjálfgefin, sem þýðir engin fríðindi fyrir utan það að við getum pantað miða fyrir ykkur í forsölunni. Framtíðarbeiðnir um miðakaup á núverandi tímabili þurfa þá að fara í gegnum stuðningsmannaklúbbinn hér (nema uppfært sé í Forever Blue+).
„Ég keypti óvart Forever Blue áskrift (ekki Forever Blue+)! Hvað geri ég þá?“
Engar áhyggjur, við getum við látið miðasöluna breyta skráningunni yfir í Forever Blue Supporters Club meðlimaáskrift (þér að kostnaðarlausu) þegar miðakaupin eru afgreidd. Einnig er hægt að biðja þau um að breyta því yfir í Forever Blue+ áskrift, gegn gjaldi.
„Ég er kominn með Everton Customer Number í hendurnar! Hvað geri ég næst?“
Við þurfum að fá ykkar Everton Customer Number og tegund áskrifarleiðar (ef það á við) til að geta keypt fyrir þig miða. Við höldum þessu númeri einnig til haga fyrir þig, ef þú ert á félagsskrá stuðningsmannaklúbbsins hér heima, en annars þarftu að láta þetta númer fylgja með öllum þínum beiðnum um miðakaup í framtíðinni.

