Mynd: Everton FC.
Fyrsti leikur 7. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar var viðureign Everton og Chelsea á Hill Dickinson leikvanginum. Þessi tvö lið áttu möguleika á að komast upp í meistaradeildarsæti, Everton var í 5. sæti og Chelsea í því sjötta.
Markatala Chelsea vakti nokkra athygli fyrir leikinn, því að þeim hafði gengið vel að skora mörk (voru þriðja markahæsta liðið í deildinni á eftir Brighton, en höfðu jafnframt fengið á sig flest mörk allra liða, samtals 13 — jafn mikið og Newcastle (um miðja deild) og Bournemouth (í bullandi fallbaráttu).
Sagan sýndi að Everton hafði gengið mjög vel á heimavelli gegn Chelsea undanfarin ár — sigrað þá 6 sinnum í 8 leikjum á undan, gegn aðeins einum sigri Chelsea. Markatala Everton í þeim leikjum var 12-2. En annað var uppi á teningnum í þessum leik.
Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Branthwaite, Tarkowski (fyrirliði), Maitland-Niles, Garner, Armstrong, Grealish, Dewsbury-Hall, Röhl, Barry.
Varamenn: Travers, O’Brien, Nörgaard, Hackney, Alcaraz, George, Dibling, Johnson, Graham.
Ágætis tempó í fyrri hálfleik. Chelsea meira með boltann frá upphafi en Everton staðráðið í að leyfa þeim ekki að komast almennilega inn í leikinn, og pressuðu vel á þá. Fyrsta skotið af löngu færi, utan teigs Everton, en svo til beint á Pickford. Engin hætta.
Röhl svaraði með skoti innan teigs á 26. mínútu, en einnig beint á markvörð og engin hætta. En Martinez, í marki Chelsea, hélt of lengi á boltanum eftir að hafa varið og Everton fékk hornspyrnu sem skapaði dauðafæri. Grealish sendi háan bolta fyrir mark, beint á Barry, sem var óvaldaður og skallaði á mark, en því miður beint á Martinez. Chelsea sluppu með skrekkinn þar.
Everton tók aukaspyrnu á 30. mínútu og eftir smá þríhyrningaspil sendi Dewsbury-Hall háan bolta fyrir frá hægri, sem Tarkowski skallaði aftur fyrir sig. Boltinn barst til Grealish, sem var við teighornið vinstra megin og hann reyndi skot í jörðina, sem fór í sveig og yfir Martinez, sem þurfti að slá boltann yfir slána á síðustu stundu.
Mykolenko fór illa með hægri bakvörð Chelsea, inni í teig á 38. mínútu, og fann Barry fyrir framan mark, með bakið í markið. Barry gerði vel að snúa og ná skoti framhjá einum þremur varnarmönnum Chelsea, en skotið laflaust.
Chelsea fengu horn á 40. mínútu sem Henderson tók, sendi háan bolta utarlega á fjærstöng þar sem Caseido tók viðstöðulaust skot sem fór í utanverða stöng hægra megin, upp við samskeytin, og út aftur. Næst því sem Chelsea höfðu komist í að ná almennilegri tilraun á rammann allan fyrri hálfleikinn. Neto átti svo skot af löngu færi í uppbótartíma fyrri hálfleiks, sem Pickford sló yfir slána og í horn. Everton hreinsaði það í horn tvisvar þrisvar í viðbót en svo náði einhver Chelsea maður skalla í átt að fjærstöng sem Armstrong náði að hreinsa á línu.
0-0 í hálfleik. Barry með besta færi fyrri hálfleiks.
Chelsea byrjuðu seinni hálfleik hins vegar með látum og skoruðu eftir innan við mínútu. Komust upp vinstri kantinn, aftur fyrir Maitland-Niles og inn í teig, náðu lágri fyrirgjöf fyrir mark, sem breytti smá um stefnu af Tarkowski og Branthwaite var næstum búinn að ná að blokkera. En boltinn endaði hjá Pedro Neto, sem var óvaldaður í teignum og skorað með lágu skoti, sem Pickford náði ekki að stoppa.
Þetta tók vindinn úr seglinu hjá Everton, sem höfðu átt flottan fyrri hálfleik. Vont að fá á sig mark í upphafi seinni hálfleiks.
Chelsea náðu undirtökunum eftir þetta og Moyes gerði eina skiptinga á 55. mínútu: Maitland-Niles út af fyrir Tyrique George. Röhl þar með færður í hægri bakvörð og George settur í hans stað á hægri kanti. Þetta lífgaði svolítið upp á leikinn, Maitland-Niles hafði verið hálfs-slappur í leiknum og George kom með smá líf á kantinn. En færin létu á sér standa.
Martinez meiddist eftir samstuð við Branthwaite og var skipt út af á 75. mínútu. Varamarkvörður Chelsea, Penders, kom inn á í stað hans, en Everton náði ekki að láta almennilega reyna á hann.
Tvöföld skipting á 85. mínútu: Johnson og Nörgaard komu inn á fyrir Grealish og Armstrong. Nörgaard þar með að spila sinn fyrsta leik fyrir aðallið Everton.
Chelsea komust í skyndisókn, þrír á einn á 86. mínútu, sem endaði með því að Henderson hafði tvo möguleika til að senda á, einn til vinstri og annan til hægri. Valdi þann til hægri, sem var Pedro Neto, en hann skaut boltanum beint í Pickford og Everton gat andað léttar. Stálheppnir þar.
Everton fékk skallafæri upp við mark eftir innkast á 88. mínútu en skallinn frá Barry slakur. Lítil hætta og (vara)markvörður greip boltann.
Chelsea fengu aukaspyrnu rétt utan teigs á 90. mínútu og reyndu slakt skot á mark, beint í vegginn. Boltinn féll hins vegar óheppilega vel fyrir Pedro Neto, sem var innan við vegg (en réttstæður) og hann setti boltann alveg út við innanverða stöngina. Óverjandi. Dauðafæri eftir slaka aukaspyrnu. Algjör grís og staðan orðin 0-2. Game over.
Eða hvað? Dewsbury-Hall sendi frábæran bolta fyrir mark í uppbótartíma og Brennan Johnson reyndi að renna sér á boltann og pota inn. Hársbreidd frá því að ná því.
0-2 niðurstaðan. Fínn fyrri hálfleikur og svo blaut tuska í andlitið í upphafi seinni hálfleiks. Fyrsta tap tímabilsins niðurstaða.


Mér hefur sjaldan brugðið eins herfilega eins og í dag þegar Nörgaard, sem ég hef alltaf talið frábæran leikmann, virtist ekki í neinu standi til koma inná. Að Moyes hendi honum inná þegar við þurftum að auka sóknina og taka yfir leikinn( sem við vorum reyndar með í fyrri hálfleik) sýnir hvað Moyes er ofboðslega takmarkaður. Ég er alveg til í að sjá nýja nálgun
2 sigrar í síðustu 15 deildarleikjum, er það nóg?
Nei.
Nei það langt þvì frá.
Aldrei þessu vant hafði ég lofað mér í verkefni áður en ég skoðaði leikjaplanið. Ég vissi því að ég myndi missa af leiknum og þyrfti að horfa á hann á tímaflakkinu. Ég átti líka afmæli á laugardaginn og ákvað því að vera ekkert að horfa á leikinn fyrr en seint, svona til að láta þetta ekki eyðileggja daginn ef illa færi, það reyndist skynsamleg ákvörðun.
Þetta var algjör helvítis hörmung.
Getur einhver sagt mér hvað planið er til að skora mark? Mér sýnist okkar eina plan vera að koma boltanum á Grealish, standa svo bara og glápa á hann og vona að hann búi eitthvað til.
Og hvernig stendur á því að Everton eru alltaf steinsofandi í byrjun seinni hálfleiks, þetta var þriðja eða fjórða markið sem Everton fær á sig á fyrstu mínútum seinni hálfleiks á þessu tímabili.
Og skiptingarnar hjá Moyes, hjálpi mér!! Dibling hefur staðið sig vel í síðustu leikjum sem hann hefur spilað en einhverra hluta vegna fær hann ekki séns hjá Moyes. George ætti að vera að byrja leiki en ekki á bekknum, en Grealish virðist vera algjörlega búinn að eigna sér stöðuna á vinstri kantinum og ég óttast að það muni skemma fyrir George og tefja hans framfarir.
Og þessi ákvörðun hjá Moyes að setja Nørgård inn á, ja hérna hér. Maðurinn er augljóslega langt frá því að vera í leikhæfu ástandi.
Stundum er Moyes svo þrjóskur að það jaðrar við heimsku.
Eins og þessi þráhyggja hans að vilja frekar nota Johnson en Dibling á hægri kantinum, Johnson hefði átt að koma inn á fyrir Barry. Hackney hefði átt að koma inn á miðjuna og Dibling á hægri kantinn. AMN er augljóslega ekki bakvörður heldur miðjumaður sem getur spilað bakvarðarstöðuna bara ekki mjög vel. Það þarf einhver að segja Moyes að Grealish þurfi ekki að byrja alla leiki og hann þarf alls ekki að spila hverja einustu mínútu. Hann er ekki í góðu leikformi og hefur ekki gert neitt það sem af er tímabils, hann má því alveg sitja á bekknum eitthvað.
O jæja, næsti leikur ætti að vera léttur…..er það ekki?