Hull – Everton 2-2

Mynd: Everton FC.

Þá er enski boltinn farinn að rúlla aftur eftir hlé vegna landsleikja og í dag kl. 13:00 heimsækir Everton nýliða Hull, sem fóru vel af stað í upphafi tímabils — sigruðu fyrstu tvo, gerðu svo tvö jafntefli en töpuðu svo sínum fyrsta leik gegn Newcastle rétt fyrir landsleikjagluggann. Þeir eru sem stendur í 10. sæti, tveimur sætum neðar en Everton, en bæði lið geta — með sigri — farið upp í fjórða sætið.

Uppstillingin: Pickford, Branthwaite, Keane, Tarkowski, Maitland-Niles, Garner, Armstrong, Grealish, Dewsbury-Hall, Johnson, Barry.

Varamenn: Travers, O’Brien, Nörgaard, Alcaraz, Hackney, Röhl, George, Dibling, Graham.

Það verður fróðlegt að sjá uppstillinguna í varnarlínunni, því að það eru þrír miðverðir í liðinu, þannig að einn þeirra verður líklega settur í vinstri bakvarðarstöðuna. Annað nokkuð hefðbundið, líklega.

Róleg byrjun, Everton með undirtökin og meira með boltann en Hull hættulegir í skyndisókn.

Garner átti fínt skot úr aukaspyrnu en varið í horn og Grealish átti skot utan teigs, en lítil hætta.

Á 33. mínútu kom Johnson boltanum í netið, en markið dæmt af vegna rangstöðu. Líklega rétt, en afar tæpt.

Hull fengu tvö ágæt færi undir lok fyrri hálfleiks en vörn Everton sá við þeim í öðru tilfellinu og í hinu skallaði sóknarmaður þeirra vel yfir upp við mark. Barry átti einnig með gott skallafæri upp við mark, en skallaði sömuleiðis yfir markið.

0-0 í hálfleik.

Hull komust yfir snemma í seinni hálfleik en það mark skrifast pínu á Maitland-Niles, sem reyndi að komast inn í langa sendingu upp hægri kantinn hjá Hull, en setti boltann í staðinn á Hull mann, sem fann sóknarmann Hull með stungusendingu og kom honum einum á móti Pickford. Sá setti boltann framhjá Pickford og í netið. 1-0 fyrir Hull.

Johnson átti frábæra fyrirgjöf á 53. mínútu, beint á skallann á Barry, sem fékk frían skalla upp við markið, en setti boltann beint á markvörð.

En Everton jafnaði á 54. mínútu þegar Maitland-Niles fann Dewsbury-Hall með fínum háum bolta á fjærstöng, sem Dewsbury-Hall skallaði í jörðina og þaðan í netið. 1-1!

Barry fékk dauðafæri upp við mark á 58. mínútu þegar Johnson sendi stórhættulega fyrirgjöf frá vinstri en boltinn fór milli lappa Barry, sem þurfti bara að pota inn. Þarf hefði staðan átt að vera 1-2.

George kom svo inn á á 66. mínútu fyrir Johnson.

En aðeins tveimur mínútum síðar komst Everton yfir. Dewsbury-Hall komst inn í langa sendingu á miðvörð Hull, með góðum spretti, og náði að koma boltanum á Barry, með smá heppni. Barry brást ekki bogalistin, heldur þrumaði í netið í fyrstu snertingu, af nokkuð löngu færi! 1-2 fyrir Everton!

En Hull jöfnuðu jafn harðan með marki frá Belloumi. Staðan þar með orðin 2-2.

Armstrong og Maitland-Niles fóru svo út af fyrir Hackney og O’Brien á 78. mínútu. Grealish og Barry út af fyrir Alcaraz og Dibling á 86. mínútu.

En fleiri urðu færin ekki og 2-2 jafntefli því niðurstaðan.

3 Athugasemdir

  1. Eirikur skrifar:

    2 töpuð stig. Shitt hvað þetta var slappt.

  2. Finnur Thorarinsson skrifar:

    Já, manni líður eins og eftir tap, þó liðið sé náttúrulega taplaust á tímabilinu (eitt af aðeins þremur liðum). Everton verður klárlega að vinna lið eins og Hull, til að geta tekið skrefið upp á við, og var hársbreidd frá því (sbr. markið sem dæmt var af vegna rangstöðu og tvö dauðafæri hjá Barry).

    En, fínt að vera í Evrópusæti eftir umferðina.

  3. Orri skrifar:

    Þetta var ekki gott hjá okkar mönnum,bæði mörkin sem við fengum á okkur fengu þeir á silfurfati. Svo verður Barry að fara nýta færin sìn betur.

Leave a Reply