Mynd: Everton FC.
Þá er komið að fjórða leiknum á undirbúningstímabilinu en Everton heimsótti þýska úrvalsdeildarliðið Hamburger Sportverein. Einn sigur, eitt jafntefli og eitt tap niðurstaðan hingað til, með markatöluna 4-1 (Everton í vil) en sigur var einnig niðurstaðan í dag.
Uppstillingin: Travers, Mykolenko, Branthwaite, Tarkowski, O’Brien, Iroegbunam, George, Hackney, Dewsbury-Hall, Röhl, Barry.
Varamenn: King, Pickford, Aznou, Keane, Patterson, Alcaraz, Armstrong, Dibling, Beto, allir úr aðalliðinu og nokkrir úr U21 árs liðinu: Lukjanciks (markvörður), Foster (miðvörður), Campbell (miðvörður), Graham (framherji).
Útsendingin sagði að Everton stillti upp í 4-1-4-1, með O’Brien í hægri bakverði, Iroegbunam sem djúpan miðjumann, George og Röhl á köntunum og Dewsbury-Hall og Hackney fyrir aftan Barry í framlínunni.
Fyrsta færið á fimmtu mínútu, þegar Dewsbury-Hall sendi háan bolta fyrir mark sem Branthwaite reyndi að skalla í netið en auðvelt fyrir markvörð. Hamburger svöruðu með skoti á mark sem Travers kastaði sér niður á og varði vel.
Hamburg komust í tvö skotfæri eftir um hálftíma leik en í hvorugt skiptið rataði boltinn á markið.
En það kom í hlut Everton að komast yfir í leiknum. Barry komst í skotfæri inni í teig, af miklu harðfylgi, þóttist ætla að skjóta en sendi hælsendingu á Röhl, sem kom á hlaupinu inn í teig. Röhl þurfti að taka boltann með sér og leika á varnarmann, sem hann gerði og setti boltann svo í innanvert hliðarnetið við fjærstöng (vinstra megin). 0-1 fyrir Everton!
Og þannig var það í hálfleik.
Engin breyting á liði Everton í hálfleik en leikmenn Hamburger SV komu einbeittir til leiks og náðu föstu skoti á mark á upphafssekúndunum, en Travers varði vel! En aðeins örfáum mínútum síðar voru þeir búnir að jafna, þegar Daka (sem kom inn á í hálfleik) fékk boltann inni í teig Everton, með bakið í markið en náði að snúa sér og skora framhjá Travers í markinu. Staðan orðin jöfn, 1-1.
Everton var næstum komið yfir aftur í næstu sókn, þegar hár bolti barst til Branthwaite, sem var orðinn fremstur inni í teig. Hann lagði boltann snyrtilega fyrir sig og þrumaði að marki, en hitti boltann illa og færið fór forgörðum.
Hackney komst í ágætt skotfæri stuttu síðar en varnarmaður varði í slána og þaðan í horn. Á 53. mínútu átti George skot að marki. Var úti við annað ytra horn vítateigsins og reyndi að sná honum í samskeytin, en framhjá.
Alcaraz, Armstrong, Dibling, Keane inn á fyrri Hackney, Branthewaite, George og Iroegbunam á 67. mínútu.
Dewsbury-Hall bjó til frábært færi fyrir Barry þegar hann náði að senda lága en langa sendingu fyrir mark frá vinstri en Barry hefði þurft að kasta sér á boltann til að ná honum, en í staðinn fór boltinn út af við hornfánann.
Barry gerði vel í að skýla boltanum inni í teig og reyndi svo skot upp í samskeytin hægra megin, en markvörður varði glæsilega í horn.
King, Aznou og Beto inn á fyrir Travers, Mykolenko, Barry á 82. mínútu. Graham kom svo inn á fyrir Dewsbury-Hall á 92. mínútu og það tók hann aðeins tvær mínútur að setja mark sitt á leikinn, þegar hann komst inn í lausa sendingu frá markverði yfir á hægri bakvörðinn og reyndi að senda boltann fyrir á Beto en varnarmaður varði fyrri til og setti boltann í eigið net! Staðan orðin 1-2 fyrir Everton!
Patterson kom inn á fyrir O’Brien í kjölfarið, en fleiri urðu færin ekki og Everton vann því leikinn 1-2.


Sá slatta af leiknum og þetta var mun betra en gegn Stoke, og virkilega vel að markinu hjá Rohl staðið. Það er samt ennþá fullt af stórum götum í liðinu sem þarf að fylla upp í, og það gengur allt of hægt.
Það var dapurt hjá okkar mönnum í dag.
Brennan Johnson kominn! (staðfest)
Finnur, er enginn félagaskiptagluggaþráður?