Nottingham Forest – Everton 0-2

Mynd: Everton FC.

Everton átti leik við Nottingham Forest í 19. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en þeir voru í 17. sæti deildar, aðeins 5 stigum frá fallsætinu.

Forest voru án Chris Wood, Ola Aina, og Dan Ndoye sökum meiðsla, en að Ibrahim Sangaré og Willy Boly voru frá vegna AFCON keppninnar.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Patterson, Garner, Iroegbunam, McNeil, Röhl, Dibling, Barry.

Varamenn: Travers, King, Aznou, Graham, Welch, Campbell, Bates, Grealish, Beto.

Eins og í síðasta leik var afleitt að líta yfir ástandið á liðinu. Grealish var ekki orðinn nógu góður af veikindum sínum til að vera í byrjunarliðinu en náði á bekkinn. Hann og Beto voru þeir einu á varamannabekknum með einhverja reynslu af úrvalsdeildinni, en tæpur helmingurinn af bekknum var úr unglingaliðinu, og maður gat ekki einu sinni nefnt hvaða stöðu þeir spila, án þess að fletta því upp fyrst. Ekki að ég nennti því heldur, því var vitað að þeir kæmu ekki inn á — og að auki tveir markverðir, sem voru ekki heldur að fara að láta sjá sig.

En áhyggjurnar reyndust óþarfar því Everton átti ágætis byrjun og mjög fína frammistöðu í leiknum öllum. Þeir náðu góðri pressu frá upphafi og áhorfendur á bandi Everton létu vel í sér heyra og voru frábærir líka. Fyrsta skotið í upphafi leiks frá Garner en yfir markið. Tarkowski átti svo skalla á mark eftir horn, en varið, á 7. mínútu.

Everton betra liðið frá upphafi og það tók Forest um 15 mínútur að komast í gang. En áður en þeir komust almennilega í gang var Everton liðið búið að setja á þá mark. Dwight McNeil sá hlaup frá Garner inn í teig hægra megin og sendi frábæra stungusendingu gegnum vörnina og Garner tók vel við boltanum og afgreiddi hann snyrtilega framhjá markverði, í vinstra hornið niðri. 0-1 fyrir Everton!

Forest menn reyndu að dæla háum boltum inn í teig, en náðu ekki að skapa sér færi, því Everton náði að afgreiða það. Fyrsta skotið frá þeim sem rataði á mark kom á 44. mínútu úr aukaspyrnu langt utan af velli.

0-1 í hálfleik. Verðskuldað forskot.

Forest menn settu pressu á vörn Everton í seinni hálfleik, án þess að skapa sér almennileg færi. Það þurfti smá hjálp frá Everton til að þeir næðu hættulegu skoti á mark innan teigs, þegar O’Brien hreinsaði boltann í Garner og Jesus, sóknarmaður þeirra, náði óvænti skoti sem átti líklega að fara í stöngina og inn, en fór sem betur fer réttu megin við stöng og út af. Markspyrna.

Grealish kom inn á fyrir Patterson á 72. mínútu og Merlin Röhl þar með færður í hægri bakvörð.  Pínu risky move þar sem Röhl virkaði mjög þreyttur á þeim tímapunkti. En hann komst ágætlega frá sínu hlutverki þar.

Tarkowski fékk frábært skallafæri upp við stöng hægra megin á 73. mínútu eftir háa fyrirgjöf frá Garner, en setti boltann rétt framhjá stönginni. Þar hefði staðan átt að vera 0-2, en Forest menn sluppu með skrekkinn. Garner átti svo frábært skot af löngu færi, eftir að Grealish lagði upp bolta fyrir hann, en skotið rétt framhjá samskeytunum.

Á 78. mínútu komst Everton í skyndisókn. Garner fór illa með varnarmann Forest vinstra megin við miðjuna og brunaði fram. Sá Barry í álitlegri stöðu við vítateiginn og sendi frábæran bolta fram á hann. Barry gerði mjög vel að komast inn fyrir vörnina, einn á móti markverði, og lagði boltann framhjá honum. 0-2 fyrir Everton. Barry að skora sitt annað mark í úrvalsdeildinni, og sitt fyrsta útivallarmark. Hann greinilega elskar að spila gegn Nottingham Forest, en þar kom fyrsta markið hans, á jóladegi. Honum var svo skipt út af á 85. mínútu fyrir Beto.

Forest menn áttu fast skot á 86. mínútu, sem Pickford varði vel, en aðeins mínútu síðar fengu Forest menn langbesta færi sitt í leiknum, þegar kantmaður þeirra fór illa með Röhl og liðsfélaga hans (sá ekki hvern). Kantmaðurinn reyndi skot á mark vinstra megin í teig en boltinn sleikti utanverða stöngina og fór sem betur fer út af. Gibbs-White reyndi líka að renna sér á boltann, til að pota inn, en var sekúndubroti of seinn.

Það reyndist síðasta færi Forest í leiknum — og eiginlega eina almennilega færið þeirra. Tveggja marka verðskuldaður sigur Everton gegn Forest því staðreynd og Everton lyfti sér upp í 8. sætið.

Einkunnir Sky Sports: Pickford (7), Patterson (7), Tarkowski (8), O’Brien (8), Myoklenko (6), Garner (9), Iroegbunam (8), Dibling (7), Rohl (7), McNeil (6), Barry (7). Varamenn: Grealish (7), Beto (6).

Enginn úr byrjunarliði Forest fékk hærri einkunn en 6 og fjórir með fimmu.

Maður leiksins að mati Sky Sports: James Garner.

7 Athugasemdir

  1. Orri skrifar:

    Ingvar spá.

  2. Diddi skrifar:

    barry enn inná

  3. Eirikur skrifar:

    Ef að við náum að hanga á þessu þá er það kraftaverk með þetta lið í dag.

  4. Jón Ingi Einarsson skrifar:

    Frábært að ná 3 stigum úr þessum leik, alveg eins og menn máttu þakka fyrir 1 stig úr síðasta leik. Þetta er ekki nógu gott en þó mun betra en í fyrra þegar við vorum með 17 stig um áramótin. Vonandi náum við jafn mörgum stigum eftir áramótin og endum fyrir ofan miðja deild.

    • Ari S skrifar:

      Hm… skrýtið að segja jafn gott að ná 1 stigi og 3 stigum…?

      Þessi sigur í kvöld var frábær. Við vorum með 11 útileikmenn til reiðu í öllum hópnum. Allir þeir sem voru á bekknum eru unglingaliðsleikmenn. (fyrir utan markmennina)

      Þeir sem að spiluðu þennan leik stóðu sig vel. Það var gott að Barry skuli ná inn marki eftir frábæra sendingu frá James Garner sem að nálgast enska landsliðið með hverjum leik.

Leave a Reply to Finnur