
Mynd: Everton FC.
Everton tekur á móti Manchester City á heimavelli kll. 14:00 í dag, í 33. umferð ensku úrvalsdeildarinnar, en þetta er þriðji síðasti leikur Everton á Goodison Park.
Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Branthwaite, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Gana, Garner, Ndiaye, Doucouré, Harrison, Broja.
Varamenn: Virginia, Keane, Patterson, Coleman, Young, Alcaraz, Iroegbunam, McNeil, Beto.
Sem sagt, engin breyting frá byrjunarliði síðasta leiks, sigurleiknum gegn Nottingham Forest á útivelli.
Lítið að frétta framan af — engin færi þangað til Man City reyndu skot utan teigs af löngu færi á 15. mínútu. Þetta var fast, lágt og mjög lúmskt skot, sem Pickford gerði vel að kasta sér niður á og verja í horn.
Á 31. mínútu voru City menn stálheppnir þegar Tarkowski skallaði í innanverða stöng og út eftir fína hornspyrnu Everton frá vinstri.
Man City voru meira með boltann en Everton með fleiri snertingar í vítateig andstæðings (9 á móti þremur hjá City).
Rétt fyrir lok venjulegs leiktíma í fyrri hálfleik fékk Kevin De Bruyne svo frábært skotfæri innan teigs, reyndi skot á vinstri stöng þar sem O’Brien var vel á verði og skallaði í horn.
Jafnt í hálfleik, 0-0. Tarkowski með besta færi fyrri hálfleiks, að mati þular.
Engin breyting á liðunum í hálfleik.
Everton fékk frábært færi á upphafsmínútum seinni hálfleiks. Fengu aukaspyrnu langt úti á velli sem fann pönnuna á Tarkowski sem skallaði að marki. Þar var Branthwaite mættur í milluna (sjá mynd) og reyndi að skalla framhjá markverði, sem náði rétt svo að slengja vinstri hendi í boltann. City menn stálheppnir þar.
Á 51. mínútu þurfti Tarkowski því miður að fara af velli vegna meiðsla og Keane kom inn á fyrir hann.
Everton með jafn margar tilraunir á mark (3) á fyrstu tíu mínútum seinni hálfleiks og City áttu allan fyrri hálfleikinn. Doucouré átti fjórðu tilraunina á mark á 61. mínútu en Ortega varði fast skot á nærstöng vinstra megin með því að slá í horn.
Á 63. mínútu fór Broja út af fyrir Beto.
Gundogan reyndi skot á mark á 70. mínútu, af nokkuð löngu færi og lítill kraftur í skotinu, beint á Pickford. Ndiaye reyndi skot hinum megin af löngu færi en framhjá marki. Svolítið endanna á milli. Savinho reyndi skot frá D-inu en Pickford varði vel.
Þreföld skipting hjá Everton á 78. mínútu: Alcaraz, McNeil og Iroegbunam inn á fyrir Harrison, Gueye og Ndiaye. City gerðu tvöfalda skiptingu, settu Doku og Kovacic inn á og þeir náðu að breyta gangi leiksins. Doku mjög líflegur og beittur á kantinum og Kovacic skoraði.
Á 83. mínútu náði Keane ekki að hreinsa háan bolta inn fyrir vörnina, heldur leyfði boltanum að skoppa og tapaði svo skallaeinvígi við Mamoush sem komst einn á móti Pickford sem varði glæsiilega frá honum. En þetta reyndist viðvörunarbjalla sem Everton einfaldlega hunsaði því stuttu síðar voru City komnir yfir. Komust inn fyrir vörnina hægra megin inni í teig og sendu lágan bolta fyrir mark, sem O’Reilly náði að setja framhjá Pickford. Maður verður þó að setja spurningarmerki við varnarleikinn, því hann var óvaldaður — líklega Keane sem átti að dekka hann.
Þeir bættu svo við marki á 93. mínútu þegar Kovacic náði skoti nálægt D-inu og kom boltanum í netið.
0-2 sigur City staðreynd.
Einkunnir Sky Sports: Pickford (6), O’Brien (6), Tarkowski (7), Branthwaite (6), Mykolenko (7), Gana (6), Garner (6), Doucouré (6), Harrsion (6), Ndiaye (6), Broja (4). Varamenn: Keane (3), Beto (5), Alcaraz (6), McNeil (6), Iroegbunam (6).
Þetta verður erfitt en ekki ómögulegt. Vonum bara það besta.
Mér finnst vera kominn tími á Beto fyrir Broja, hann er alls ekki að heilla.
Broja vill örugglega gleyma þessum leik sem fyrst, það gekk ekkert upp hjá honum.
held að við ættum að reyna að gleyma bæði Broja og Keane
Sammála félagi.