Mynd: Everton FC.
Á mánudaginn, 15. desember, verður dregið í 32ja liða úrslitum Europa League keppninnar og því rétt að skoða aðeins mögulega mótherja. Everton liðið vann sinn riðil og fá því fyrst útileik (19. febrúar) og síðan heimaleik (þann 26. febrúar) á móti einu af eftirtöldum liðum sem sjá má hér að neðan. Listinn er í röð eftir „Evrópustuðli“ UEFA (sem miðast við árangur viðkomandi liðs í Evrópukeppni undanfarin fjögur ár — „sterkasta“ liðið fyrst):
Ajax | 57.829 |
PSV Eindhoven | 57.829 |
Sevilla | 56.357 |
Villarreal | 50.857 |
Anderlecht | 45.840 |
Celtic | 38.030 |
Roma | 37.635 |
Trabzonspor | 36.360 |
Dnipro Dnipropetrovsk | 34.999 |
BSC Young Boys | 29.055 |
Torino | 18.135 |
Guingamp | 14.783 |
Aalborg | 10.460 |
Í 32ja-liða úrslitum mætast ekki lið frá sama landi þannig að leikur við Tottenham (Evrópustuðull: 82.164) og Liverpool (Evrópustuðull: 44.164) getur ekki verið á dagskrá (sú regla gildir ekki í 16 liða úrslitunum). En það er erfitt að velja óskamótherja…
Partur af Europa League upplifuninni er að sjá Everton leggja að velli sterkustu mótherjana úr Evrópu sem völ er á hverju sinni og skv. því ætti maður að óska þess að sjá Ajax, PSV, Sevilla, Villereal eða Anderlecht mæta á Goodison Park og lúta í lægra haldi fyrir Everton.
En partur af manni vill líka að vegurinn að úrslitum sé greiður og dragi ekki athyglina frá deild of mikið — og því kannski rétt að óska eftir einu af liðunum í neðstu sætunum (Álaborg, Guingamp eða Torino) þar sem þau lið eru með áberandi lélegastan árangur (á pappír) í Evrópu.
Trabzonspor eða Dnipro Dnipropetrovsk, eru tvö lið sem maður vill kannski losna við (fyrir hönd liðs okkar) þar sem um erfiðari ferðalög er að ræða.
Hvað finnst ykkur? Hver er ykkar óskamótherji?
ég vil Gulu kafbátana í Villareal, við eigum harma að hefna og vonandi verður dómarinn ekki í aðalhlutverki eins og Collina forðum 🙂
Ég er sammála Didda vini mínum, Villareal. Ekkert annað.
Ef ég mætti velja þá yrði það Aab. Annars er mér nokkuð sama bara að við komumst áfram.
Villareal ( Gulu Kafbátarnir ) eða Celtic
Niðurstaðan komin:
http://everton.is/?p=8474