Notice: Function _load_textdomain_just_in_time was called incorrectly. Translation loading for the html5reset domain was triggered too early. This is usually an indicator for some code in the plugin or theme running too early. Translations should be loaded at the init action or later. Vinsamlegast skoðaðu Aflúsun í WordPress fyrir frekari upplýsingar. (Þessum skilaboðum var bætt við í útgáfu 6.7.0.) in /var/www/virtual/everton.is/htdocs/wp-includes/functions.php on line 6114
Árshátíð Everton á Íslandi - Everton.is

Árshátíð Everton á Íslandi

Mynd: FBÞ.

Árshátíð Everton á Íslandi var haldin í gær, á kvöldverðarstað Nítjándu í Kópavoginum og þótti heppnast mjög vel. Fyrr um daginn mætti myndarlegur hópur Everton stuðningsmanna á Ölver að horfa á Everton vinna sannfærandi 2-0 sigur á QPR sem heldur liðinu í baráttunni um meistaradeildarsætið.

Klukkan 19:00 mættu svo árshátíðargestir í sínu fínasta pússi á Nítjándu og nutu þar veitinga og guðaveiga fram eftir nóttu. Tekið var á móti gestum með fallega bláum fordrykk að hætti Everton (sjá mynd) og svo tók við glæsilegt hlaðborð þar sem finna mátti úrval gómsætra forrétta, aðalrétta og eftirrétta. Setið var til borðs og spjallað fram eftir kvöldi yfir kaffi og koníaki (og þess háttar). Eftirpartý var svo haldið í heimahúsi og var líflegt líka.

Við þökkum öllum sem mættu og hjálpuðu til við að gera kvöldið eftirminnilegt. Þökkum jafnframt kvöldverðarstað Nítjándu kærlega fyrir að hýsa okkur og fyrir frábæran mat.

Áfram Everton!

6 Athugasemdir

  1. Halli skrifar:

    Þakka ykkur öllum fyrir frábært kvöld

    • Eyþór skrifar:

      Leitt að hafa ekki komist vegna veikinda en vonandi að allir hafi skemmt sér vel.

  2. Finnur skrifar:

    Sömuleiðis takk. Skemmtilegt kvöld í skemmtilegum félagsskap. Klikkar ekki.

  3. Dyncla skrifar:

    Var einmitt á vakt á leið 28. Keyrði reglulega framhjá turninum og leit upp til ykkar. Gott að heyra að kvöldið hafi staðið undir væntingum. Ég kem öruglega á næstu ári (spurning hvort það verður þá haldið fyrir norðan?)

  4. Finnur skrifar:

    Við vorum reyndar að tala um það að halda jafnvel árshátíð á Siglufirði næst. Sjáum hvað setur.

  5. þorri skrifar:

    Kæru félagar það sem ég komst ekki árshátíðina var upptekin. Ég vona að þetta hafi verið gaman og heppnast vel. Það er mjög góð hugmynd að skoða Siglufjörð.