Mynd: Everton FC.
Þá var komið að fyrsta leik Everton í deildarbikar ársins 2026 sem þeir afgreiddu með stæl!
Uppstilling: Pickford, Mykolenko, Keane, Tarkowski, Röhl, Garner, Armstrong, Ndiaye, Dewsbury-Hall, Dibling, Barry.
Varamenn: Travers, Aznou, O’Brien, Foster, Patterson, George, Alcaraz, Johnson, Beto.
Það er greinilegt að Moyes ætlar að taka þennan leik alvarlega, því þetta er örugglega nánast sterkasta liðið sem völ er á í augnablikinu!
Everton var mun meira með boltann (næstum 70%), átti 14 skot að marki og fjögur á ramman — Preston með ekkert á rammann. En annars var hálf rólegt um að litast fyrsta korterið eða svo, sem var fínt — því þá gat maður klárað hamborgarann sinn í rólegheitum.
Tvö hálffæri frá Everton litu svo dagsins ljós, en ekkert kom úr því og sama má segja um eitt hálffæri frá Preston. Svo á 17. mínútu sendi Dewsbury-Hall frábæra stungusendingu fram á Barry sem komst í skotfæri með mann í bakinu, en skotið frá honum slakt.
En honum brást ekki bogalistin á 26. mínútu þegar Everton komst í fína sókn stuttu síðar. Mykolenko tímasetti hlaup sitt í gegnum vörn Preston inn í teiginn vinstra megin og fékk frábæra sendingu, beið aðeins og sendi fyrir mark, beint á Barry, sem kom á hlaupinu og setti tuðruna auðveldlega í netið. Everton þar með komið 0-1 yfir í leiknum!
Lítið að gera eftir það — þangað til á 39. mínútu þegar Preston sendi langa sendingu fram, sem Röhl komst inn í, og ætlaði að stoppa boltann, en missti hann fram hjá sér og sóknarmaður Preston þar með allt í einu kominn í gegn. Sendi hins vegar á samherja, sem þrumaði sem betur fer nokkuð vel yfir.
Dibling með ágætis skotfæri rétt fyrir fyrri hálfleik, alveg út við stöng vinstra megin, en markvörður varði glæsilega.
0-1 fyrir Everton í hálfleik.
Everton átti fína sókn á 52. mínútu þegar Ndiaye fann kollinn á Barry inn í vítateig, en Barry skallaði framhjá.
Á 58. mínútu skoraði Everton aftur. Ndiaye og Dewsbury-Hall náðu frábæru spili inni í vítateig sem endaði með skoti frá Dewsbury-Hall á mark. Markvörður Preston varði boltann út í teig, beint á Barry, sem gerði vel, skaut í fyrstu snertingu og skoraði. 0-2 fyrir Everton!
Brennan Johnson og Patterson inn á fyrir Dibling og Garner á 64. mínútu. Patterson þar með í hægri bakvörð og Röhl færði sig framar. Johnson á kantinn fyrir Dibling, náttúrulega.
Á 65. mínútu áttu Preston frábæra sókn sem endaði með fyrsta skoti Preston á rammann í leiknum og það var af dýrari endanum, hjólhestaspyrna innan teigs sem Pickford varði með því að slá frá.
Á 67. mínútu hefði Everton mögulega fengið víti, ef VAR hefði verið í notkun, því að Ndiaye þræddi sig í gegnum vörn Preston, og komst inn í teig og féll við í tæklingu Preston. Dómarinn hafði ekki áhuga á því, en endursýning sýndi ekki nægilega vel hvort varnarmaður tók Ndiaye niður áður en hann snerti boltann.
En svo brast „stíflan“, ef svo má að orði komast. Á 70. mínútu náði Everton að komast þremur mörkum yfir og aftur var Barry að verki. Sóknin byrjaði með því að Pickford kastaði boltanum langt fram völlinn, á Dewsbury-Hall, sem sendi beint á Brennan Johnson á hægri kanti, sem bar boltann inn í teig hægra megin og sendi lága sendingu, fyrir mark á Barry, sem þurfti bara að pota inn. Sem hann og gerði.
Barry launaði Johnson svo greiðann strax einni mínútu síðar, þegar hann setti Johnson inn fyrir hægra megin, með frábærri stungusendingu, og Johnson afgreiddi boltann snyrtilega í netið. Barry þar með kominn með þrjú mörk í leiknum og stoðsendingu að auki. Staðan á skömmum tíma orðin 0-4. Ekki slæmt!
Ndiaye, Barry, og Dewsbury-Hall fóru svo út af fyrir George, Aznou, Alcaraz á 80. mínútu. Þetta þýddi það að George tók stöðu Barry og Aznou spilaði á vinstri kanti fyrir framan Mykolenko.
En Everton landaði þessum sigri í kvöld, og það örugglega. Barry fékk svo að eiga boltann eftir leik, enda langbesti maður vallarins með þrjú mörk og stoðsendingu. Kominn með fjögur mörk þar með í tveimur leikjum. Everton að vinna fyrstu tvo leikina á tímabilinu með 6-0 í markatölu. Meira svona!


Everton mætir Wolves á heimavelli í næstu umferð…
Drátturinn í heild sinni er annars:
Crystal Palace – Middlesbrough
Manchester United – Brighton
Manchester City – Norwich
Sunderland – Hull
Ipswich – Arsenal
Coventry – Aston Villa
Bournemouth – Lincoln
Liverpool – Tottenham
Chelsea/Luton – Leeds
Millwall – Newcastle
Fleetwood – Sheffield United
Everton – Wolves
Leyton Orient – Bradford
Reading – Brentford
Peterborough – Barnsley
West Ham – Fulham/Wimbledon
Flottur leikur hjá okkar mönnum, þetta var aldrei í hættu.
Ég er hins vegar alls ekki ánægður með að O’Brien spilaði ekki og líst ekki vel á að Moyes virðist taka Keane fram yfir hann, það er snargalið.