Aðalfundur Everton á Íslandi 6. september 2026

Mynd: Everton FC.

Uppfært 2. september: Við minnum á aðalfundinn sem haldinn verður á sunnudaginn. Sýnum stuðning í verki og fjölmennum!

Stjórn stuðningsmannaklúbbs Everton á Íslandi boðar til aðalfundar á Ölveri þann 6. september (næstkomandi), og vonumst við til að sjá ykkur sem allra flest.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Stjórn leggur fram skýrslu tveggja síðustu starfsára.
  3. Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga.
  4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.
  5. Lagabreytingar, löglega fram bornar.
  6. Kosning 7 stjórnarmanna til tveggja ára.
  7. Kosning skoðunarmanna.
  8. Ákvörðun um árgjald.
  9. Önnur mál.

Aðalfundurinn hefst kl. 11:30 og svo horfum við saman á leik Everton við Manchester United kl. 13:00, sem verður fjórði leikur Everton á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni.

4 Athugasemdir

  1. Finnur Thorarinsson skrifar:

    Mæti!

  2. Albert Gunnlaugsson skrifar:

    Sælir Minnir að við Þórir séum skoðunarmenn reikninga. vinsamlega sendið mér til skoðunar takk. kv. Albert/Tryggvi.

  3. Eyþór skrifar:

    Mæti á aðalfundinn

  4. Halli skrifar:

    Mæti og hvet félagsmenn til að mæta

Leave a Reply