Mynd: Everton FC.
Síðasti leikur tímabilsins var viðureign Everton við Tottenham og það var aldeilis mikið undir hjá mótherjum okkar manna, því fall úr úrvalsdeildinni hefði verið staðreynd ef þeir hefðu tapað og West Ham unnið sinn leik — sem þeir og gerðu.
Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Keane, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Garner, Iroegbunam, Ndiaye, Dewsbury-Hall, Röhl, Barry.
Varamenn: Travers, Aznou, Coleman, Alcaraz, McNeil, George, Dibling, Armstrong, Beto.
Ritari var á ferðalagi og náði því ekki að skila skýrslu inn tímanlega, en náði að horfa á lungað úr leiknum á pöbb í útlöndum. En það er í sjálfu sér ekki mikið um leikinn að segja, þar sem hann var ekkert sérstaklega skemmtilegur, hreint út sagt.
Fyrri hálfleikur var sérstaklega dapur og lítið um færi. Tottenham menn rétt náðu að böðla boltanum yfir línu rétt fyrir hálfleik í annarri eða þriðju tilraun í sömu sókn og Eveton var ekki að bjóða upp á neitt mikið betra hinum megin, enda ekki með neitt að keppa að. Ljóst var að liðið myndi ekki enda í Evrópusæti, þannig að menn voru komnir með annan fótinn í sumarfrí.
Það var ekki fyrr en í lokin sem kviknaði aðeins í Everton liðinu en þeir litu aldrei almennilega út fyrir að ná að jafna. Það vantaði svo sem ekki tilraunir á mark, 30 tilraunir samtals hjá báðum liðum, en aðeins eitt á rammann hjá Everton og aðeins tvö hjá Tottenham og úr annarri þeirri tilraun skoruðu þeir.
Tapið Everton hafði þau áhrif að West Ham menn féllu niður í Championship deildina, ásamt Burnley og Wolves.
Það verður að segjast að það var arfaslök ákvörðun hjá þeim að láta Moyes fara, sérstaklega í ljósi þess að hann er með besta vinningshlutfall (44.6%) nokkurs fastráðins stjóra West Ham frá stofnun þess félags (árið 1901) og vann með þeim titil í Evrópu. Hann var tvisvar við stjórnvölinn hjá þeim og í bæði skiptin tók hann við liðinu í bullandi fallbaráttu og bjargaði þeim fyrir horn. Náði svo að taka hópinn, sem var búinn að vera í fallbaráttu, og vinna með honum titil í Evrópu. Eitthvað segir mér að West Ham menn séu að naga sig ansi hressilega í handakrikana núna, eins og maðurinn sagði.


Er einhver sem hefur trú á því að Everton vinni þennan leik?
Þetta fer 3-0 fyrir helvítis Tottenham.
Korter búið og Everton er ekki með. Tottenham með 8 marktilraunir og miklu betri. O’Brien á gulu spjaldi og í mesta basli í varnarleiknum, kalla það gott ef hann fær ekki rautt fyrir leikhlé.
Hálfleikur.
Everton varist nánast allan leikinn og ma segja að þeir séu ekki með. (eins og Ingvar segir)
Mykolenko sennilega meiddur og mín vegna má skipta honum útaf og setja Anzou inná í seinni. Það er alveg borðleggjandi.
Moyes er einni versti þjálfari deildarinnar.
Skárri en Dyche og þess vegna nógu góður fyrir Everton?
Ndiaye er gjörsamlega búinn á því og ætti að fara útaf, en fyrir hvern? Mögulega Alcaraz eða Dibling, eða jafnvel Aznou.
Vonbrigði, sama sæti og í fyrra og bara einu stigi meir en þá. Maður skilur ekki hversu lélegir þeir hafa verið á lokasprettinum.
MOYES OUT!!!!
Og hvern myndir þú vilja fá Ingvar? Ég vil ekki segja Moyes upp. Það verður að vera einhver mjög góður tilbúinn að taka við. Ekki seg J a kallinum upp ig fara SVO að leita.
Iraola. Ef það er minnsti möguleiki að krækja í hann þá á Everton að gera það, það væri mitt fyrsta val. Ég myndi heldur ekki fúlsa við Glasner sem er líklega að fara að vinna þriðja titilinn sinn með Palace á morgun.
Hörmungar tímabili hjá Everton er lokið, 6stig úr síðustu 9 leikjum er bara óásættanlegt og er brottrekstar hæft. Moyes er ekki að fá það útúr hópnum sem býr í honum. Hann er til dæmis með tvö hægri bakverði sem hann notaði ekkert, notar O´Brian þar en hefur Keane í hafsenti sem getur ekki rassgat. Svo kaupir Moyes ungan strák á 40m og spilar honum sára lítið, lætur lánsmann frekar skipa.
Ef það á að fara að fjárfesta í liði þá er betra að fá einhvern annan til að byggja upp nýtt lið. Moyes er alltof passasamur, það er eins og hann sé búinn að ákveða á liðið tapi áður en leikurinn byrja og svo skiptir hann leikmönnum seint í leikjum og róterar liðunu lítið. Ég vill Moyes út og það strax.