Everton – Sunderland 1-3

Mynd: Everton FC.

Þá var komið að næst-síðasta leik tímabilsins, síðasta heimaleik tímabilsins á Hill Dickinson leikvanginum og það sem líklega er kveðjuleikur Seamus Coleman og nú voru það nýliðar Sunderland mættu í heimsókn.

Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Keane, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Iroegbunam, Garner, Ndiaye, Dewsbury-Hall, Röhl, Beto.

Varamenn: Travers, Patterson, Coleman, Alcaraz, McNeil, George, Dibling, Armstrong, Barry.

Ekkert að gerast fyrstu mínúturnar en á þeirri fjórðu komst Röhl upp hægri kant og sendi ágætan bolta fyrir, beint á Beto, sem hefði verið einn á móti markverði. En því miður var fyrsta snerting Beto slæm og boltinn skoppaði beint á markvörð sem greip hann.

Sunderland menn nokkuð mikið með boltann en einhvern veginn ekki að gera neitt með hann. Þeir áttu sitt fyrsta skot að marki á 14. mínútu, af löngu færi og hátt yfir. Engin hætta. Everton svo sem ekki mikið að ógna heldur og áttu erfitt með að ná nógu mörgum heppnuðum sendingum til að byggja upp almennilega sókn. Eitt langskot frá Garner á 34. mínútu en beint á markvörð. Frekar daufur hálftími að baki.

Það lifnaði smá yfir þessu á 34. mínútu þegar langt innkast barst frá Mykolenko frá vinstri (frá okkur séð) sem Tarkowski reyndi að lauma á fjæsrstöng, með skalla aftur fyrir sig af stuttu færi, en markvörður Sunderland vel á verði, sá við honum og varði í horn.

En svo náði Everton að komast yfir í leiknum á 43. mínútu, þegar Merlin Röhl fékk boltann rétt utan við teig hægra megin. Hann tók ein skæri til að losa sig við varnarmann, lagði boltann í átt að miðsvæðinu og hlóð í skot. Boltinn fór af varnarmanni Sunderland, breytti um stefnu og endaði í netinu! 1-0 fyrir Everton!

Og þannig var staðan í hálfleik!

Everton komst í skyndisókn á 55. mínútu og náðu að komast í tveir á einn stöðu, Ndiaye með boltann og reyndi sendingu á Beto, sem hefði sett Beto inn fyrir en sendingin of nálægt markverði, sem komst inn í hana.

En í staðinn skoruðu Sunderland menn aðeins örfáum mínútum síðar. Jake O’Brien gaf slæma sendingu aftur til baka, beint á sóknarmann Sunderland, sem sendi fram á Brobby. Aðeins Tarkowski til varnar og hann féll við eftir samstuð, þannig að Brobby náði skoti og skoraði framhjá Pickford. 1-1.

George og Barry inn á fyrir Iroegbunam og Beto á 72. mínútu.

En á 82. mínútu komust Sunderland yfir eftir nett spil inni í teig Everton sem endaði með skoti beint fyrir framan mark og í netið. Everton komið undir í leiknum, 1-2.

Á 85. mínútu sendi George frábæra sendingu af vinstri kanti og beint á skallann á O’Brien sem lúrði á fjærstöng. Náði fríum skalla á mark en boltinn fór í öxlina á markverði og þaðan út af. Sunderland menn stálheppnir þar.

McNeil og Coleman inn á á 87. mínútu fyrir Röhl og O’Brien. Coleman tók þar með við fyrirliðabandinu í síðasta skipti líklega, en hann leggur skóna á hilluna eftir tímabilið.

6 mínútum bætt við og Everton lagði allt kapp á að jafna en fékk í staðinn mark í andlitið eftir skyndisókn Sunderland. 1-3. Game over.

Tap staðreynd og tímabilið búið að vera að fjara út í undanförnum leikjum, en það verður að líta á það líka að maður átti ekki von á að liðið væri í samkeppni um Evrópusæti undir lokin.

Einkunnir Sky Sports: Pickford (5), O’Brien (4), Tarkowski (6), Keane (6), Mykolenko (6), Iroegbunam (5), Garner (6), Rohl (7), Dewsbury-Hall (6), Ndiaye (5), Beto (5). Varamenn: George (6), Barry (6).

Takk fyrir, Seamus Coleman, okkar dyggi þjónn!

6 Athugasemdir

  1. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Ef eitthvað lið getur spilað við sama liðið þrisvar sinnum á sama tímabilinu og ekki unnið í eitt einasta skipti, þá er það Everton.
    Þetta verður sami grautur í sömu skál og það er ekki séns að við vinnum, náum kannski stigi en ég held samt ekki. Þetta fer 0-1.

  2. Eirikur skrifar:

    Ömurlega flöt framistaða, skíta endir á tímabilinu.

  3. Gestur skrifar:

    Ég segi Moyes out

  4. Ingvar Bæringsson skrifar:

    Ég var greinilega óþarflega bjartsýnn, þvílík skita hjá þessum aumingjum.
    Ég er mikið búinn að vera að velta því fyrir mér hvort ég vilji hafa Moyes áfram eða ekki, en ég held að ég sé kominn á þá skoðun að það sé rétt að hann fari. Hann vill helst bara leikmenn sem eru orðnir eldri en 25 ára og með reynslu úr ensku úrvalsdeildinni. Og hverju hefur það skilað?? EINU SKITNU STIGI MEIRA EN Á SÍÐASTA TÍMABILI!! Það er gjörsamlega óþolandi.
    Ef Iraola er ennþá á lausu, þá vona ég að menn hjá Everton séu amk búnir að spyrja hvort hann gæti hugsað sér að taka við liðinu í sumar.
    Ég er þakklátur Moyes fyrir að hafa tekið við liðinu og komið á ákveðnum stöðugleika í félaginu og fyrir að hafa þó náð þetta góðum árangri á þessu tímabili, því ég bjóst alls ekki við að liðið yrði í einhverri baráttu um Evrópusæti á tímabilinu. En það er líka hægt að færa rök fyrir því að Moyes hafa kostað félagið þetta Evrópusæti td með því að vera alltaf of varfærinn í leikjum sem Everton var betri aðilinn í eins og td gegn Liverpool um daginn, eða West Ham sem virtust bara fegnir að halda stöðunni í 0-0.
    Hann notar líka leikmannahópinn engan veginn nógu mikið. Sömu mennirnir spila alla leiki og helst allan tímann og þeir eru nú orðnir dauðþreyttir. Menn eins og KDH, Ndiaye, Garner, O’Brien og Tarkowski, virka þreyttir og þungir. KDH hefur ekki verið góður í síðustu leikjum og hefði haft gott af að setjast á bekkinn, sama má segja um Ndiaye. O’Brien er ekki bakvörður og það er margbúið að sjást á tímabilinu. Moyes er með menn í hópnum sem geta komið inn og „leyst af“ en hann notar þá ekki,
    Þrátt fyrir að sumir þeirra hafi nú þegar spilað nokkra leiki á tímabilinu og staðið sig vel eins og td Patterson, George, Armstrong og Alcaraz. Svo eru það skiptingarnar. Moyes gerir helst ekki breytingar fyrr en seint, og oftast of seint, og þá bara til að bregðast við því sem hitt liðið er að gera, aldrei til að reyna að breyta gangi leiksins í markalausri stöðu.
    Ég vona að ef Moyes verður áfram þá fái hann ekki að ráða öllu um hvernig og hvaða leikmenn verða keyptir í sumar því þá sitjum við uppi með drasl eins og Součeck eða Ben White eða einhverja fleiri afdankaða drulluskunka sem „stóru“ liðin og West Ham, vilja losna við.
    Ég fer ekkert að gráta þó Grealish verði ekki keyptur í sumar, eða ef Bowen fer til einhvers annars félags en Everton ef hann yfirgefur West Ham, það er nefnilega til fullt af góðum leikmönnum í heiminum sem væri hægt að fá fyrir minni pening og lægri laun heldur en einhverjir sem hafa sannað sig í deildinni og myndu kosta háa upphæð og vilja há laun fyrir að halda félaginu um miðja deild.
    Ég vona að það verði ekki einn einasti Breti keyptur í sumar og alls ekki Englendingur. Þessir leikmenn eru yfirleitt ofmetnir svo ekki sé meira sagt og á allt of háum launum, og yfirleitt fljótir að vilja fara ef þeim býðst eitthvað sem þeir telja betra.

  5. Ari S skrifar:

    Ég held að Bowen se góður kostur fyrir okkur. Hann er klárlega betri en þeir leikmenn sem við höfum. En það verður að kaupa aðra sterka leikmenn í liðið svo að hægt se klárlega að nota hann á hægri kantinum sem er hans staða. Þetta er bara mín skoðun.

Leave a Reply