Mynd: FBÞ.
Aðalfundur Everton á Íslandi var haldinn á Ölveri í gær og helst frá því að segja að mæting var fín, reikningar síðustu tveggja ára voru samþykktir og stjórnin endurkjörin til tveggja ára. Og kleinurnar, kaffið, gosið og flatkökurnar kláruðust, eins og vera ber.
Eftir fund horfðum við saman á Everton sigra Middlesbrough nokkuð auðveldlega og svo var árshátíð klúbbsins um kvöldið þar sem við skemmtum okkur konunglega og fögnuðum sigrinum fram á nótt. Nokkrar vel valdar myndir eru hér að neðan en heildarmyndasafn er annars hér.
Mr. and Mrs. Slash.
Herra nærsýnn og fröken hárprúð.
Það er enginn árshátíð nema Gilitrutt mæti!
Óðinn tilbúinn í slaginn.
„Oui! Oui! One pizza le escargot, s’il vous plaît!
Píratinn mættur!
Kátur að vanda!
Harry Potter gleraugun, beljuhúfa og geislasverð er afar viðsjárverð blanda… Varist!
Það var sko ekkert skemmtilegt á þessari árshátíð… uhh, neibb!!
DJ Dóri
Gaman saman.
Gunnþór og Óðinn alvarlegir enda…
… formaðurinn að halda ræðu…
Albert íbygginn.
Halli grípur í gítar og tekur nokkur lög.
Hann átti afmæli og fékk því gjöf frá klúbbnum!
Sáttur með gjöfina…
… og þakkar fyrir sig.
Formaðurinn
Við þökkum öllum sem mættu og hjálpuðu til við aðalfundinn og árshátíðina í gær. Þetta var einstaklega skemmtilegur dagur þar sem allt gekk upp og við vonum að allir gestir hafi skemmt sér konunglega — við gerðum það svo sannarlega!
Það hefur verið mikið fjör hjá ykkur.
Þarna er flottur hópur saman kominn.