Örstutt af Mirallas, landsliðum og samningum

Mynd: Everton FC.

Enn berast engar fréttir af því hvort búið sé að semja við Kevin Mirallas en Executioner’s Bong tók sig til í dag og gerði honum ágæt skil tölfræðilega. Athyglisverður fótboltamaður þar á ferð.

Það var annars mikið að gera hjá landsliðsmönnum Everton. Baines og Jagielka léku til dæmis báðir gegn Ítölum á dögunum í vináttuleik sem England vann 2-1 og skoraði Jagielka glæsilegt mark, jöfnunarmark Englendinga, með skalla. Þetta ku vera fyrsta mark Jagielka með landsliðinu en miðvörðurinn knái skoraði tvö fyrir Everton á síðasta tímabili.

Að auki stóð Howard stanganna á milli í sigurleik Bandaríkjanna á Mexíkó, en þetta er fyrsti sigur þeirra á heimavelli Mexíkóa frá upphafi. Howard þótti standa sig vel í leiknum og varði til dæmis meistaralega tvö skot frá Javier Hernandez. Einnig léku Coleman (Írland) og Naismith (Skotland) báðir með sínum landsliðum en Naismith lék í 90 mínútur, sem ætti vonandi að þýða að hann sé orðinn góður af meiðslunum sem hrjáðu hann undir lokin hjá Rangers. Hann hefur staðið sig vel á undirbúningstímabilinu, skoraði meðal annars þrennu á móti AEK, og sagðist vonast eftir að fá tækifæri í byrjunarliðinu gegn Man United á mánudaginn.

Í lokin má svo geta þess að Everton samdi við Paddy Power um að Paddy væri opinber stuðningsaðili Everton þegar kemur að veðmálum á netinu. Samningurinn er til tveggja ára en engar upphæðir voru nefndar í því sambandi.

Einnig uppfærði félagið stöðuna á miðasölukerfinu á netinu, sem StubHub mun sjá um að reka fyrir Everton, en það mun verða sett í loftið fyrir Newcastle leikinn, sem stendur til að leika þann 17. september, en þá geta Everton stuðningsmenn og konur keypt og selt miða á netinu sín á milli, án milliliða.

Svo mörg voru þau orð. Og nú getur maður farið aftur að bíða frekari frétta af leikmannaskiptum. 🙂

Orðið er annars laust í kommentakerfinu.

16 Athugasemdir

  1. Halli skrifar:

    Það ætla ég að vona að við förum ekki í kaup á meðalskussum einsog Adam hinu megin við garðinn

  2. Finnur skrifar:

    Nákvæmlega. Hljómar svolítið eins og blaðamenn að reyna að skálda upp æsifrétt til að fá fólk til að lesa blaðið meira.

  3. Haraldur Anton skrifar:

    Já vonum það besta að þetta fari að skýrast held að allir Everton menn vilji fá Mirallas.

  4. Elvar Örn skrifar:

    Jú Adam má koma,,,sko Johnson, hehe, hann væri frábær viðbót við liðið. Mirallas kæmi með ferska vinda í þetta lið og vona ég svo að fréttir fari að koma þess efnis að hann sé genginn til liðs við stórlið Everton.
    Mirallas og Johnson og ég er mjög bjartsýnn og sáttur.

  5. Elvar Örn skrifar:

    Mirallas er á um 5-6 milljónir og Johnson á láni svo klúbburinn ætti að standa vel eftir söluna á Rodwell. Veit ekki með að kaupa 17 ára gutta á 6-7 milljónir eins og talað er um að Niang kosti sem er nú á trial. En treysti svosem Moyse ágætlega með leikmannakaup.

  6. Finnur skrifar:

    Moyes virðist oft ná einhverju extra úr leikmönnum þannig að kannski gæti hann náð að bjarga Adams úr gröfinni.

  7. Finnur skrifar:

    Bossinn vill fá amk. tvo nýja leikmenn inn, segir hann:
    http://www.evertonfc.com/news/archive/2012/08/17/moyes-wants-at-least-two-new-faces

  8. Elvar Örn skrifar:

    Athyglisverð grein

    http://www.everton.vitalfootball.co.uk/article.asp?a=290285

    Hann virðist mjög hrifinn af peningum en einnig af landa sínum Fellaini.
    Hvernig endar þetta?

  9. Finnur skrifar:

    > Hann virðist mjög hrifinn af peningum

    Skv. túlkun þess sem skrifaði greinina, já.

  10. Elvar Örn skrifar:

    Allt að gerast.

    SJÓÐANDI HEIT FRÉTT FRÁ SKY SPORTS
    http://www1.skysports.com/football/news/11095/7999720/Mirallas-set-for-Everton

    Mirallas að fara í Medical hjá Everton um helgina.

    Eigum við að ræða þetta eitthvað?

  11. Tóti skrifar:

    eg vaeri til i ad fa scott sinclair eda adam johnson, og mirallas

  12. Finnur skrifar:

    Lítur vel út, Elvar. Krossum fingur. Væri alveg til í að sjá þennan, við hlið okkar manna, vikulega í beinni. 🙂

  13. Elvar Örn skrifar:

    http://mbl.is/sport/efstadeild/2012/08/17/mirallas_til_everton/

    En ekkert nýtt hérna, fréttin var hér á undan, hehe
    Vona bara að þetta klárist um helgina

  14. Elvar Örn skrifar:

    Mirallas er mættur á Merseyside til samningaviðræðna við Everton skv sky sports, held hann sé magnaður leikmaður. Fréttir herma að Adam Johnson sé á leiðinni líka þar sem Sinclair er að snúa aftur til Man City, viðtal við Mancini ýtir undir þær fréttir. Mirallas og Johnson er flott viðbót. Hvernig spá menn fyrsta leik? Held að pre-season hafi pínu klúðrast þar sem hætt var við tvo leiki, en sjáum til.

  15. Elvar Örn skrifar:

    http://www1.skysports.com/football/news/11661/8002369

    Ekki margir leikmenn sem velja að spila frekar en að fá hærri launaseðil sem Arsenal er td að bjóða Mirallas. Verður teknískasti Leikmaður í Everton búningi. Drífa sig að skrifa undir samning.

  16. Finnur skrifar:

    Hann hlustaði greinilega á þig…
    http://everton.is/?p=1882
    🙂