Notice: Function _load_textdomain_just_in_time was called incorrectly. Translation loading for the html5reset domain was triggered too early. This is usually an indicator for some code in the plugin or theme running too early. Translations should be loaded at the init action or later. Vinsamlegast skoðaðu Aflúsun í WordPress fyrir frekari upplýsingar. (Þessum skilaboðum var bætt við í útgáfu 6.7.0.) in /var/www/virtual/everton.is/htdocs/wp-includes/functions.php on line 6114
Lög klúbbsins - Everton.is

Lög klúbbsins


Everton logo1. grein

Nafn félagsins er: Everton, stuðnings- og aðdáendaklúbbur Íslandi (The Official Everton Fan Club of Iceland).

2. grein

Heimili félagsins og varnarþing er að Akurhvarfi 1, 203 Kópavogi.

3. grein

Hlutverk félagsins er:

1. Að halda skrá um íslenska aðdáendur enska knattspyrnuliðsins Everton.
2. Að veita félagsmönnum upplýsingar um félagið og halda tengslum við The official Everton fanclub á Englandi.
3. Að auka hróður enskrar knattspyrnu á Íslandi.
4. Að stuðla að háttvísi, félagslyndi, góðri framkomu meðal félagsmanna og kurteisi við aðdáendur annarra knattspyrnuliða.

4. grein

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með:

1. Öflugu innra starfi og upplýsingamiðlun á netinu.
2. Að hittast og horfa á fótboltaleiki saman.
3. Að standa fyrir fótboltaferðum félagsmanna erlendis.

5. grein

Félagsmönnum er skylt:

1. Að koma drengilega og vinsamlega fram við félagsmenn og hafa ekki í frammi neins konar ókurteisa hegðun, hvorki í orði né verki, sem gæti kastað rýrð á aðdáendur enskra knattspyrnuliða.
2. Að taka að sér þau félagsstörf, sem þeir eru kosnir eða skipaðir í.

6. grein

Um þátttöku og inntökugjöld:

1. Aðild að félaginu stendur öllum til boða. Engar takmarkanir eru á inngöngu í félagið.
2. Inntökugjald og árstillag til félagsins skal ákveðið á aðalfundi þess og skulu félagsgjöld innheimt árlega. Stjórnin má fella niður eða gefa helmings afslátt af gjöldum til yngri félagsmanna en 20 ára.
3. Nýir félagsmenn geta sótt um inngöngu í félagið til stjórnar þess.
4. Félagsmenn skulu greiða fullt árgjald ef þeir ganga í félagið áður en starfsárið er hálfnað, annars hálft gjald.

7. grein

Stjórn félagsins skipa 7 einstaklingar: formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari og 3 meðstjórnendur, kjörnir til tveggja ára í senn. Kjör stjórnar fer fram á aðalfundi. Stjórnin skiptir með sér verkum og fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar. Allir félagar eru kjörgengir til stjórnar, en fráfarandi stjórnarmaður getur beðist undan endurkjöri. Fráfarandi stjórn gerir tillögu um stjórnarkjör. Á aðalfundi skal kjósa tvo skoðunarmenn/konur fyrir reikninga félagsins og er kjörgengi þeirra sama og stjórnar.

8. grein

Um félagsfundi:

Aðalfundur félagsins fer með æðsta vald í málefnum þess og skal hann haldinn á haustin annað hvert ár, en aukafundi má halda þegar stjórnin telur ástæðu til eða ef ¼ félagsmanna krefjast þess, enda geri þeir rökstudda grein fyrir tilefni fundarins. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi. Stjórnin ákveður hvar fundir eru haldnir og tilkynnir það til félagsmanna á viðurkenndan máta með minnst 10 daga fyrirvara með sannanlegum hætti, til dæmis með auglýsingu á heimasíðu félagsins og/eða í tölvupósti til meðlima félagsins. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Formaður boðar til stjórnarfunda. Afl atkvæða ræður úrslitum mála, nema annars sé krafist, samanber 12. og 13. grein.

9. grein

Um störf stjórnar:

1. Stjórn félagsins hefur á hendi allar framkvæmdir félagsins og reynir að uppfylla tilgang þess.
2. Stjórnin ræður málefnum félagsins með þeim takmörkum, sem lögin setja. Hún tekur nánari ákvarðanir um starfsemi þess og ber ábyrgð á fjárreiðum félagsins.
3. Stjórnin sér um samninga við viðskiptamenn félagsins og skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns og þriggja annara stjórnarmanna nægileg til þess. Allar meiriháttar fjárskuldbindingar skulu lagðar fyrir félagsfund.
4. Stjórnin tekur við umsóknum nýrra félagsmanna, heldur skrá um félagsmenn og gefur út númeruð félagskort til þeirra.
5. Stjórnin getur kallað félagsmann til stjórnar, eða annarra trúnaðarstarfa, ef einhver stjórnarmaður hverfur úr félaginu, eða getur ekki sinnt þeim málum sem honum voru falin, eða hann var kosinn til.
6. Stjórnin skal halda gerðabók og hafa á höndum reikninga félagsins.
7. Reikningsár félagsins skal vera frá 1. ágúst til 31. júlí næsta árs. Gjaldkeri skal bera upp reikninga fyrir 2 næstliðin fjárhagsár á aðalfundi til samþykktar.

10. grein

Dagskrá aðalfundar skal vera:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Stjórn leggur fram skýrslu tveggja síðustu starfsára.
3. Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga.
4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.
5. Lagabreytingar, löglega fram bornar.
6. Kosning 7 stjórnarmanna til tveggja ára.
7. Kosning skoðunarmanna.
8. Ákvörðun um árgjald.
9. Önnur mál.

11. grein

Enginn félagsmaður á tilkall til hluta af sjóðum félagsins, eða öðrum eigum þess, þó að hann hverfi úr félaginu eða því verði slitið. Félagsmenn bera ábyrð á skuldbindingum félagsins.

12. grein

Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi þess. Félagsmenn skulu leggja tillögur til lagabreytinga fyrir stjórn félagsins og skal hún geta þess í fundarboði að tillagan verði borin upp og efni hennar lýst. Nái tillaga til lagabreytinga samþykki 2/3 hluta fundarmanna telst hún gild.

13. grein

Nú kemur fram tillaga um að leggja félagið niður. Skal það tilkynnt í fundarboði og aðeins gert á aðalfundi. ¾ hluta atkvæða þarf til að þessi tillaga fái samþykki. Verði félagið leyst upp, skal greiða að fullu allar skuldir þess. Þeim eignum sem þá kunna að vera eftir, skal ráðstafað til góðgerðarmála samkvæmt ákvörðun þess fundar sem samþykkir að slíta félaginu.

14. grein

Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið í samræmi við tilgang félagsins.

Formaður: Haraldur Örn Hannesson
Varaformaður: Halldór S. Sigurðsson
Gjaldkeri: Eyþór Hjartarson
Ritari: Finnur Breki Þórarinsson
Meðstjórnandi: Óðinn Halldórsson

Varamenn: Gunnþór Kristjánsson og Róbert Eyþórsson.