Mynd: Everton FC.
Rúsínan í pylsuendanum á þessari 9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar er lokaleikur umferðarinnar, við Tottenham á Hill Dickinson leikvanginum. Flautað verður til leiks kl. 16:30.
Uppstillingin: Pickford, Mykolenko, Keane, Tarkowski (fyrirliði), O’Brien, Gana, Garner, Grealish, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Beto.
Varamenn: Travers, Aznou, Coleman, Iroegbunam, Alcaraz, Röhl, McNeil, Dibling, Barry.
Branthwaite er enn frá vegna meiðsla, en fréttir bárust af því að hann þurfti að fara í uppskurð til að taka á einhverju sem leit út fyrir að vera smávægilegt, en hann var ekki að ná að jafna sig af almennilega. Annars sýnist mér þetta vera okkar sterkasta lið, enda kemur Grealish inn í liðið aftur eftir City leikinn, sem hann mátti ekki leika (þar sem hann er formlega enn leikmaður City).
Nokkuð er um meiðsli í herbúðum Tottenham en vitað var að Romero, Udogie og Solanke myndu allir vera frá. Það kom hins vegar pínu á óvart að Richarlison myndi ekki vera í byrjunarliðinu, en við fögnum því, enda er þessi fyrrum leikmaður okkar búinn að reynast okkur erfiður ljár í þúfu. Randal Kolo Muani fær því sinn fyrsta byrjunarleik með Tottenham en Richarlison er á bekknum, þannig að hann gæti enn gert okkar mönnum skráveifu.
Fjörug byrjun á leiknum. Everton með dauðafæri strax á 3. mínútu eftir að Ndiaye fór illa með vinstri bakvörð Tottenham og sendi fyrir innan teigs frá hægri. Boltinn fór til Grealish, með viðkomu fyrst í Beto, en Grealish náði föstu skoti nálægt marki vinstra megin. Boltinn fór hins vegar í fótinn á varnarmanni og Tottenham sluppu með skrekkinn.
En það voru Tottenham sem komust yfir á 18. mínútu, eftir hornspyrnu. Van De Ven skallaði inn við hægri stöng, eftir að Bentancour náði að beina fyrirgjöfinni, frá hinni stönginn, fyrir mark aftur með öxlinni. 0-1 fyrir Tottenham. Þetta var fyrsta markið sem Everton fékk á sig úr föstu leikatriði á tímabilinu.
En Everton jafnaði á 24. mínútu, einnig eftir hornspyrnu, þegar O’Brien skallaði inn frábæra fyrirgjöf frá Garner. En því miður var Ndiaye rangstæður, þar sem hann stóð við hlið markvarðar, þannig að markið var dæmt af. Því miður, en líklega réttur dómur.
Bentancour átti svo stórhættulegt skot á 34. mínútu en rétt framhjá stönginni.
En Tottenham bættu við öðru marki úr hornspyrnu og það var megn lykt af því. Van de Ven hleypur að Pickford, ýtir honum í átt að marki og skallar svo inn. 0-2 fyrir Tottenham. Hálf óverðskuldað.
0-2 í hálfleik. Fyrsta tap Everton á Hill Dickinson blasir við.
Beto var óheppinn að skora ekki á 54. mínútu þegar hann náði hjólhestaspyrnu af stuttu færi, eftir sendingu frá Ndiaye, en markvörður Tottenham náði reaction save á síðustu stundu.
Richarlison skipt inn á (fyrir Tottenham) ekki löngu síðar og hann komst í dauðafæri þegar Tarkowski náði ekki að bægja hættunni frá, þegar hár bolti barst í áttina að marki Everton. En Richarlison, einn á móti markverði, skaut beint í kviðinn á Pickford.
O’Brien og Beto skipt út af fyrir Rohl og Barry á 65. mínútu.
Ndiaye náði svo skoti að marki á 71. mínútu, sem breytti stefnu af tveimur varnarmönnum en einhvern veginn náði markvörður Tottenham að verja á síðustu stundu.
Stuttu síðar hefði Gueye átt að fá víti þegar hann var keyrður niður af Kudus inni í teig, en það var einfaldlega ekkert að falla með okkar mönnum í dag. Alcaraz inn á fyrir Gana á 86. mínútu.
Everton náði að setja fína pressu á Tottenham, án þess að skapa nægilega góð færi, en Tottenham mennirnir með okkur í salnum á Ölveri supu hveljur ítrekað og leið greinilega ekki vel undir pressu Everton.
En á 89. mínútu náðu Tottenham menn að klára leikinn með þriðja markinu og þar með var þetta búið.
0-3 niðurstaðan en úrslitin ekki í samræmi við frammistöðuna — svona er þetta stundum.
Einkunnir Sky Sports ekki komnar. Uppfæri síðar.


Craig Pawson er dómari, við eigum ekki séns.
Èg er ánægður með þig Íngvar.
Ekki okkar dagur. Tvö mörk úr föstum leikatriðum er ekki gott. Skil ekki að menn haldi að Miko sé einhver sóknarsinnaðu bakvörður.
Hefði mögulega orðið annar leikur ef Grealish hefi skorað í byrjun leiks.