
Mynd: Everton FC.
Félagaskiptaglugginn á Englandi stendur til mánudagsins 1. september en einhver tími verður gefinn, eftir það, til að klára þá pappírsvinnu fyrir samninga sem er í vinnslu. Þessum þræði er ætlað að halda utan um staðfest kaup og sölur sem og slúður, ef við rekumst á eitthvað. Endilega hafið samband í kommentakerfinu ef eitthvað vantar í upptalninguna. Allar tölur eru í breskum pundum hér að neðan, nema annað sé tekið fram.
Afraksturinn hingað til:
Leikmenn komnir: Charly Alcaraz – Flamengo, 12.6M.
Leikmenn farnir: Abdoulaye Doucoure (samningslok), Ashley Young (samningslok), Asmir Begovic (samningslok), Joao Virginia (samningslok), Neal Maupay (samningslok), Mason Holgate (samningslok).
2025-07-06 🎁 Við minnum á grillveislu í Guðmundarlundi í tilefni 30 ára afmælis Everton klúbbsins á Íslandi. Endilega látið sjá ykkur og ekki gleyma að boða komu ykkar (og gesta) í kommentakerfinu, eða með prívat skilaboðum svo að hægt sé að áætla magn fyrir veisluna.
2025-06-22 Everton var sterklega orðað við hægri bakvörðinn og hollenska landsliðsmanninn, Kenny Tete, hjá Fulham. Mbl sagði að munnlegt samkomulag hefði náðst, en Kenny verður samningslaus í sumar.
2025-06-18 Leikjaplan Everton fyrir tímabilið 2025/26 kom út í dag.
2025-06-17 Nokkuð hefur borið á fréttum um að Kyle Walker sé mögulega á leiðinni til Everton, en tvennum sögum fór af því hvort um lán eða kaup væri að ræða.
2025-06-11 David Moyes fékk OBE orðuna (Officer of the Order of the British Empire) við hátíðlega athöfn.
2025-05-31 Skv. frétt á BBC virkjaði Everton klásúlu í samningi sínum við Flamengo um kaup á Charly Alcaraz fyrir 12.6M, en hann hefur (eins og við þekkjum) verið á láni hjá Everton á tímabilinu. Gott að klára það snemma.
Við munum uppfæra þessa frétt ef eitthvað nýtt gerist.