Afmælisveisla í Guðmundarlundi – 6. júlí

Mynd: Finnur.

Stuðningsmannaklúbbur Everton á Íslandi átti merkisafmæli, þann 6. maí síðastliðinn, en þá voru liðin 30 ár frá stofnun!

Klúbburinn ætlar af þessu tilefni að halda upp á afmælið laugardaginn 6. júlí, næstkomandi, kl. 17:00 í Guðmundarlundi í Kópavogi og slá upp í grillveislu fyrir okkur sem styðjum Everton, sem og fjölskyldumeðlimi. Boðið verður upp á ókeypis léttar veitingar, pylsur, hamborgara, bjór og gos.

Guðmundarlund má finna á korti hér að neðan, en við verðum við gamla bústaðinn svokallaða. Auk grillaðstöðu og (salernisaðstöðu) skilst okkur að þarna sé jafnframt að finna leiksvæði sem við hvetjum barnafólkið til að nýta sér.

Veislan hefst klukkan 17:00 og vonumst við eftir að sjá ykkur sem flest að fagna þessum tímamótum með okkur!

Stærra kort má sjá hér.

3 Athugasemdir

  1. Finnur skrifar:

    Ég mæti að sjálfsögðu og mögulega allt að þrjú afkvæmi. 🙂

  2. Orri skrifar:

    Flott framtak hjá klúbbnum.

  3. Halli skrifar:

    Ég mæti

Leave a Reply