Mynd: FBÞ
Merseyside Derby leikurinn Everton-Liverpool er rétt handan við hornið (23. nóvember) og við ætlum að nýta það tækifæri til að halda árshátíð Everton á Íslandi árið 2013. Eins og fram hefur komið hér byrjar dagskráin á Ölveri kl. 12:30 þar sem við komum til með að horfa á derby leikinn saman. Hátíðin heldur svo áfram kl. 18:00 á Nítjánda kvöldverðarstað í Turninum þar sem við munum njóta góðra veitinga og skemmta okkur vel saman. Verðið er 7.990 kr. fyrir þá meðlimi sem hafa greitt árgjald klúbbsins en 8.990 fyrir aðra (þmt. gesti), Innifalið í verði er glæsilegt hlaðborð og fordrykkur að hætti Everton.
Þetta er jafnframt gott tilefni til að minna félagsmenn á að greiða árgjald til Everton á Íslandi, en þau ykkar sem ekki hafa greitt ættu að finna rukkun í heimabanka frá félaginu. Einnig er hægt að millifæra beint inn á reikning félagsins:
Reikningsnúmer: 331-26-124
Kennitala félagsins: 5110120660
Upphæð: 3000 kr.
Við í stjórn erum, líkt og í fyrra, hæstánægð að sjá hversu vel félagsmenn hafa svarað kallinu að greiða árgjaldið til félagsins en þetta er besta leiðin til að sýna stuðning ykkar í verki og gerir okkur kleyft að halda uppi öflugu félagsstarfi. Án ykkar stuðnings er ekkert félag.
Til gamans fylgir hér samantekt á því hvernig hin ýmsu bæjarfélög (efstu 25 póstnúmerin) standa sig í greiðslu félagsgjaldanna:
100% | 221 Hafnarfjörður |
100% | 203 Kópavogur |
100% | 400 Ísafjörður |
100% | 450 Patreksfjörður |
100% | 530 Hvammstangi |
100% | 641 Húsavík |
100% | 720 Borgarfjörður-eystri |
100% | 780 Höfn |
100% | 710 Seyðisfjörður |
75% | 603 Akureyri |
71% | 201 Kópavogur |
67% | 109 Reykjavík |
67% | 640 Húsavík |
60% | 108 Reykjavík |
60% | 112 Reykjavík |
56% | 105 Reykjavík |
50% | 210 Garðabær |
50% | 260 Njarðvík |
50% | 104 Reykjavík |
50% | 580 Siglufjörður |
50% | 620 Dalvík |
50% | 700 Egilsstaðir |
50% | 900 Vestmannaeyjar |
44% | 220 Hafnarfjörður |
33% | 107 Reykjavík |
Það er einfaldlega ekki hægt annað en að hrósa þeim félagsmönnum sem tróna efstir á þessum lista en stuðningsmenn Everton í Hafnarfirði, Kópavogi, Ísafirði, Patreksfirði, Hvammstanga, Húsavík, Borgarfirði eystra, Höfn og Seyðisfirði eiga heiður skilið fyrir afbragðsgóða svörun — varla hægt að gera betur. 🙂 Það væri jafnframt gaman að sjá íbúa á Akureyri, í Kópavogi, Reykjavík, Húsavík og Garðabæ reyna að ná upp í 100% — þið eigið ekkert alltof langt í það.
Ef þitt póstnúmer er ekki á listanum hér að ofan þá gæti það þýtt að þú (og/eða þínir nágrannar) þurfi að gera betur. 🙂 Endilega athugaðu hvort þú sért ekki með gíróseðil í heimabanka eða millifærðu beint inn á reikning félagsins (sjá upplýsingar hér að ofan).
Til að gera þetta svolítið meira spennandi ætlar stjórnin að standa fyrir smá happdrætti. Reglurnar eru eftirfarandi:
Allir félagsmenn* sem hafa þegar greitt árgjaldið fyrir tímabilið 2013/14 eða greiða fyrir 5. desember eru með í pottinum.
Fimm vinningar eru í boði:
– Everton flipahnappar (e. cufflinks)
– Everton músamotta
– Everton golf-tí (ca. 30 stykki)
– Everton Gel Cling (Everton merki til að líma á rúðu)
– Dixie Dean Statue Sign (veggskilti sem útlistar helstu afrek eins merkasta framherja Everton)
Sá félagsmaður sem fyrstur er dreginn úr pottinum fær að velja þrjá af ofantöldum fimm vinningum. Sá félagsmaður sem næstur er dreginn úr pottinum fær hina tvo.
* ATH: Stjórnarmeðlimir sem og fjölskyldur stjórnarmeðlima eru ekki með í pottinum.
Við í stjórn hvetjum ykkur öll til að sýna stuðning ykkar í verki og greiða félagsgjöldin og hlökkum jafnframt til að sjá ykkur sem flest á árshátíðinni þann 23. nóvember. Þið getið skráð mætingu á árshátíðina hér — skráning er ekki bindandi (en hjálpar okkur að meta hversu margir eru að hugsa um að mæta).
Nú er um að gera að vera með í að halda úti öflugu starfi í klubbnum okkar og geta einnig unnið góð verðlaun. Svo hvetjum við alla sem geta að mæta með á árshátíðina.
Sælir félagar.Póstnúmerið á Seyðisfirði er 710 en ekki 310.
Mikið rétt, Orri — það var villa í félagatalinu sem hefur nú verið leiðrétt (og taflan hér að ofan líka)! Takk fyrir þá ábendinguna.
Frábært… get varla beðið eftir leiknum 🙂