Saga Everton

Everton F.C.
 
Nafn Klúbbs
Everton Football Club
Viðurnefni
The Toffees, The Blues,
The People’s Club
Stofnað
1878 sem St. Domingo F.C.
Leikvöllur
Sæti
40,569
Stjórnar-
formaður
Knattspyrnu-
stjóri
Saga Everton
 
Skrifað af Einari Guðbergi Jónssyni.
 

Everton er enskur knattspyrnuklúbbur frá Liverpool borg. Everton keppir í ensku úrvalsdeildinni og hefur verið meðal efstu klúbba Englands lengur en nokkur annar klúbbur. Everton er eitt af topp fimm félögum á Englandi þegar horft er til stórtitla en Everton hefur unnið efstu deild níu sinnum, F.A. bikarkeppnina fimm sinnum og UEFA Cup Winners Cup einu sinni. Síðasti titill Everton var árið 1995 þegar liðið vann FA bikarinn. Núverandi knattspyrnustjóri Everton er David Moyes. Liðið hefur náð miklum framförum undir hans stjórn en þegar hann tók við liðinu var það í hættu á að falla en hann náði að stýra því í efri hlutann og komast nokkrum sinnum í Evrópukeppnina sem hafði aðeins einu sinni gerst á 11 ára tímabili áður en hann tók við. 

Erkifjendur Everton eru grannarnir Liverpool F.C., en Liverpool var stofnað eftir deilur sem upp komu vegna leigu á gamla heimavelli Everton, Anfield, árið 1892. Síðan þá hefur Goodison Park verið heimavöllur Everton.

Everton var upprunalega stofnað sem St. Domingo F.C. árið 1878 svo að sóknarbörn St. Domingo kirkju gætu stundað íþróttir utandyra yfir sumarmánuðina. Ári seinna var nafninu breytt í Everton F.C. í höfuðið á hverfinu sem félagið var í þegar fólk utan sóknar St. Domingo óskaði eftir að fá að ganga í félagið. Everton tók þátt í að stofna ensku knattspyrnudeildina (The Football League) árið 1888 og vann Everton sinn fyrsta titil tímabilið 1890-91. Þeir unnu síðan FA bikarinn tímabilið 1905-06 og síðan deildarmeistaratitilinn aftur tímabilið 1914-15, en svo var gert hlé á fótbolta vegna fyrri heimsstyrjaldar og stöðvaðist þar með framganga Everton. Það var svo ekki fyrr en 1927 að fyrsta gullöld Everton gekk í garð.

Árið 1925 gekk Dixie Dean (William Ralph Dean) til liðs við Everton. Hann setti markamet á einu tímabili (1927-28) en þá skoraði hann 60 mörk í 39 leikjum. Þetta met stendur enn þann dag í dag og verður líklega aldrei slegið. Þetta markamet Dixie átti jafnframt stóran þátt í því að Everton fagnaði sínum þriðja deildarmeistaratitli það tímabil.

Everton féll í aðra deild tveimur árum eftir það, en unnu aðra deildina og komu strax upp aftur. Þeir sóuðu engum tíma tímabilið 1931-32 og unnu sinn fjórða deildartitil og svo sinn annan FA bikarmeistaratitil tímabilið 1932-33 (unnu Manchester City 3-0 í úrslitaleiknum). Gullaldarárunm lauk síðan tímabilið 1938-39 en þá vann Everton sinn fimmta deildarmeistaratitil. Þá var aftur var gert hlé á keppni í ensku deildinni (vegna seinni heimstyrjaldar) og byrjaði hún ekki aftur fyrr en árið 1946. Eftir stríð var Everton liðið ekki svipur hjá sjón og fölnaði í samanburði við gullaldarliðið fyrir stríð. Everton féll í aðra deild tímabilið 1950-51 og kom ekki upp í efstu deild aftur fyrr en þremur tímabilum síðar (1953-54). Everton hefur verið í efstu deild ensku knattspyrnunnar allar götur síðan.

Annað gullaldar tímabil Everton rann upp þegar að Harry Catterick varð knattspyrnustjóri árið 1961. Tímabilið 1962-63, annað tímabilið undir stjórn Harrys, vann Everton sinn sjötta deildarmeistaratitil og FA bikarinn 1966 (og komst í úrslit 1968 en tapaði fyrir WBA á Wembley). Ári seinna, 1969-70, vann Everton fyrstu deildina með níu stigum fleiri en liðið í öðru sæti. Ekki tókst þó að fylgja því eftir og á næstu árum kláraði liðið tímabilin í 14., 15., 17. og 7. sæti. Catterick settist í helgan stein en sá er á eftir honum kom náði ekki að vinna neina titla það sem eftir var af áttunda áratugnum. Liðið endaði reyndar í þriðja sæti tímabilið 1977-78 og í því fjórða tímabilið á eftir.

Howard Kendall tók við sem knattspyrnustjóri 1981 og stýrði Everton inn á þeirra þriðja og mesta gullaldartímabil. Heima á Englandi vann Everton FA bikarinn tímabilið 1983-84 og tvo deildarmeistaratitla (tímabilin 1984-85 og 1986-87). Everton urðu næstir á eftir fjendunum í Liverpool bæði í deildarbikar og deildarkeppni tímabilið 1985-86. Einnig töpuðu þeir fyrir Liverpool í úrslitaleik deildarbikarsins 1984 og í úrslitaleik FA bikarsins 1989. Í Evrópu vann Everton sinn fyrsta og eina bikar hingað til en það var árið 1985 í Evrópukepnni bikarhafa (European Cup Winner’s Cup) þegar þeir unnu Rapid Wien 3-1 í Rotterdam. Þetta ár komst Everton mjög nærri því að vinna þrefalt en töpuðu fyrir Manchester United í úrslitaleik FA bikarsins.

Heysel slysið átti sér stað í Belgíu 1985 og voru ensk knattspyrnulið sett í ótímabundið bann frá þátttöku í Evrópukeppnum. Banni þessu var aflétt fimm árum seinna. Þetta varð til þess að Everton fékk ekki tækifæri til að etja kappi við bestu lið Evrópu. Kendall fór frá Everton til Athletic Bilbao eftir að Everton sigraði deildina 1987. Þá tók við liðinu aðstoðamaður Kendall, Colin Harvey. 1992 tók Everton þátt í að stofna ensku Úrvalsdeildina, en áttu í miklu basli með að finna rétta stjórann. Kendall kom reyndar aftur 1990 en náði ekki að endurvekja stemminguna frá fyrri stjóratíð sinni. Mike Walker tók svo við af Kendall en er sá knattspyrnustjóri Everton sem hefur náð einna slakasta árangri með Everton liðið.

Fyrrverandi leikmaður Everton, Joe Royle tók við liðinu árið 1994 og fór þá loks að ganga betur. Í fyrsta leik liðsins undir hans stjórn vann Everton Liverpool 2-0. Royle forðaði svo Everton frá falli 1994 og stjórnaði liðinu til sigurs í fimmta skipti í FA bikarkeppninni 1995, með því að vinna Manchester United 1-0 í úrslitaleiknum. Everton spilaði síðan við KR, sælla minninga, sama ár en Royle hélt áfram uppbyggingu sinni og náði að enda með Everton í sjötta sæti tímabilið 1995-96 í Úrvalsdeildinni.

Næsta tímabil, 1996-97, var ekki eins gott og endaði Everton í fimmtánda sæti og Royle hætti í mars 1997. Fyriliði Everton, Dave Watson, tók við liðinu tímabundið og bjargaði því frá falli. Howard Kendall varð svo knattspyrnustjóri í þriðja skiptið 1997, en hann náði ekki árangri með liðið og liðið rétt bjargaði sér frá falli tímabilið 1997-98 þar sem það eina sem skildi liðið frá falli var betra markahlutfall en Bolton.

Sumarið 1998 tók Walter Smith við stjórninni en liðið náði aldrei upp í efri helming deilar þrjú tímabil í röð. Stjórn Everton missti að lokum þolinmæðina og Walter Smith var rekinn í mars 2002 og var þá liðið í mikilli fallhættu.

Núverandi knattspyrnustjóri, David Moyes, tók við liðinu af Smith og bjargaði liðinu frá falli (endaði í fimmtánda sæti). Eftir þetta erfiða tímabil kláraði Everton næstu ár í sjöunda sæti, sautjánda sæti, fjórða sæti (hæsta sæti eftir stofnun Úrvalsdeildarinnar) og síðan í ellefta sæti. Það var svo í stjórnatíð Moyes að Wayne Rooney var seldur fyrir metfé (£23 milljónir) til Manchester United. Tímabilið 2006-07 endaði Everton í sjötta sæti í Úrvalsdeildinni og náði með því að tryggja sér sæti í UEFA bikarnum 2007-08 og aftur 2008-09. Árið 2009 náði David Moyes að komast með Everton í úrslit FA bikarkepninnar en tapaði 2-1 fyrir Chelsea.

 

Titlar

Deildarmeistarar (í efstu deild): 9 sinnum (1890–91, 1914–15, 1927–28, 1931–32, 1938–39, 1962–63, 1969–70, 1984–85, 1986–87).

FA bikarmeistarar: 5 sinnum (1906, 1933, 1966, 1984, 1995)

Góðgerðarskjöldur: 9 sinnum (1928, 1932, 1963, 1970, 1984, 1985, 1986 (deilt), 1987, 1995)

UEFA Cup Winners’ Cup: Einu sinni, árið 1985.

 

Besta lið Everton allra tíma

Everton fagnaði 125. afmæli liðsins tímabilið 2003-04. Að því tilefni útnefndu stuðningsmenn liðsins besta lið Everton allra tíma. Það var þannig skipað:

Neville Southall (1981–97)          Markmaður
Gary Stevens (1982–89)             Varnarmaður
Brian Labone (1958–71)             Varnarmaður
Kevin Ratcliffe (1980–91)            Varnarmaður
Ray Wilson (1964–69)                 Varnarmaður
Trevor Steven (1983–90)            Miðjumaður
Alan Ball (1966–71)                     Miðjumaður
Peter Reid (1982–89)                  Miðjumaður
Kevin Sheedy (1982–92)             Miðjumaður
Dixie Dean (1925–37)                 Sóknarmaður
Graeme Sharp (1980–91)           Sóknarmaður

 

Íslendingar hjá Everton

Tveir íslenskir leikmenn hafa fengið að spreyta sig hjá Everton:

Bjarni Viðarsson var leikmaður Everton frá 2004-2008 (þangað til hann fór til Twente)

Hörður Björgvin Magnússon sem var þar á reynslusamningi árið 2009.

 

Heimildir: 

  • Corbett, James (2004). Everton: School of Science.

  • Tallentire, Becky (2004). The Little Book of Everton. Carlton Books Ltd.

  • Ball, D. & Buckland, G. (2001). Everton-The Ultimate Book og Stats & Facts.. The Bluecoat Press.

 

Comments are closed.