Afsláttur Everton klúbbsins

Everton klúbburinn á Íslandi hefur náð samningum við eftirfarandi fyrirtæki um afslátt til meðlima. Eftirfarandi skilmálar gilda, nema annað sé tekið fram:

  • Tilboði þessi gilda eingöngu fyrir þann meðlim sem framvísar gildu félagsskírteini á því tímabili sem tilboðin gilda.
  • Sýna þarf félagsskírteini áður en kaup eiga sér stað og láta vita af því að handhafi óski þess að nýta eftirfarandi tilboð en þá kemur í ljós hvort einhverjar breytingar hafi orðið á tilboði — enda geta samningar tekið breytingum, til dæmis ef um eigendaskipti er að ræða hjá fyrirtækjunum.
  • Vinsamlegast látið okkur hjá everton.is vita ef ykkur er ekki unnt að nýta afsláttinn sem útlistaður er hér að neðan.
  • Ef þitt fyrirtæki vill auglýsa sig hér og bjóða upp á afsláttarkjör, þá endilega látið okkur vita líka.
hagaedabon Hágæðabón (Viðarhöfða 2, 110 Reykjavík) bjóða 15% afslátt af bílaþvotti og bóni.
AB Varahlutir AB Varahlutir (sjá vefsíðu) bjóða 20% afslátt af varahlutum.
BK Kjúklingur BK Kjúklingur (sjá vefsíðu) býður 15% afslátt af matseðli.
sporthusid Sporthúsið – heilsurækt (sjá vefsíðu) eru með tilboð á 3ja mánaða korti, 18.000 (fullt verð 29.900). Athugið að til að nýta þetta tilboð þarf að hafa samband við Kristinn Pálsson eða Ríkarð Gunnarsson í afgreiðslu Sporthússins. Hægt er einnig að semja við þá um lengri gildistíma, ef vill.
solbadsstofan_smart Sólbaðsstofan Smart (sjá vefsíðu): Býður 12 tíma kort í ljós á verði 10 tíma korts.
Tunnan prentþjónusta Tunnan Prentþjónusta (sjá vefsíðu) býður 25% afslátt af auglýsingum og 10% afslátt á Canon blekhylkum.