Ferðasaga: Crystal Palace – Everton

Mynd: Everton FC.

Meistari Halldór Bogason var einn af Íslendingunum á vegum íslenska stuðningsmannaklúbbsins á pöllunum á sigurleik Everton gegn Crystal Palace á Selhurst Park á dögunum og hann sendi okkur þessa skemmtilegu ferðasögu hér að neðan. Við þökkum honum kærlega fyrir og gefum honum orðið:

Ég gisti á hóteli í Norður-London og þurfti því að koma mér til Suður-London þar sem Selhurst Park völlurinn er staðsettur. Völlurinn tekur 26,309 manns og er frá árinu 1924 þannig að þetta er völlur af gamla skólanum.

Á lestarstöðinni tók ég eftir Everton stuðningsmönnum og fannst við hæfi að tylla mér hjá þeim í lestinni til Selhurst Park. Ég spjallaði við þá alla lestarferðina og þeir buðu mér síðan á pöbb sem heitir The Railway Telegraph. Þar hafa Everton stuðningsmenn hist fyrir leiki gegn Palace í gegnum tíðina. Þetta var fyrsti pöbbinn frá lestarstöðinni og labbið því stutt. Bjórinn var óhemju ódýr og mikið að gera og því var hentugast að kaupa tvo í einu. Ég var mættur um þremur og hálfum tíma fyrir leik og þá var leikur Liverpool og Swansea að hefjast.

Við horfðum á hann og lætin urðu þvílík þegar okkar maður Gylfi setti sigurmarkið. Ég hafði rekist á hundruði stuðningsmanna Liverpool í Leifsstöð og mér fannst þetta því ekki leiðinlegt. Með hverju Swansea-markinu sungu Everton menn á pöbbnum “Red and White Sh*te hello”.

Þegar leikurinn var búinn þá var haldið áfram að drekka og spjalla. Uppselt var Everton megin, að sjálfsögðu, og samkvæmt Crystal Palace manni sem ég hitti við barinn var einnig uppselt hjá þeim. Ég spjallaði aðeins við hann en hann kvaddi með því að bjóða mér upp á bjór. Mikil gestrisni hjá Palace fólkinu.


Ég á leiðinni á völlinn.
Ég var búinn að ákveða að mæta snemma á völlinn því ég hafði heyrt að þetta væri gamall völlur og að það tæki langan tíma að hleypa fólkinu inn. Ég var í röð 10 og tók eftir æskuvini mínum í röð 14 og það voru því 4 harðir Everton-menn þarna frá Íslandi. Þess má geta að ég hitti líka kunningja minn í London á skrallinu og kom í ljós að hann var Crystal Palace stuðningsmaður og var að sjálfsögðu á leiknum. Það voru því allavega 5 Íslendingar í stúkunni, gaman að því. Leikurinn sjálfur var ekki mikið fyrir augað en stemningin í stúkunni var gríðarleg.


Stemningin!
Ég ætla ekki að fara yfir leikinn þar sem búið er að gera það hér á þessari síðu. En þeir sem mér fannst hins vegar standa upp úr í leiknum voru Coleman, Davies, Holgate, Williams, Lookman og Robles. Virkilega þroskuð frammistaða hjá þeim ungu aftur. Lookman lét alla stúkuna vita að þarna væri talent á ferð. Skíðaði framhjá mönnum eins og ekkert væri. Mig langar annars í nýjan markmann þar sem ég tel Robles ekki vera nógu stöðugan. Vonandi kemur annað á daginn. Þetta var minn fyrsti leikur en þökk sé Youtube þá kunni ég flest lögin og gat því tekið vel undir. Ný lög sem ég heyrði voru um Morgan Schneiderlin (sjá vídeó) og um Ademola Lookman. Fann ekki vídeo af Ademola laginu en það mun örugglega birtast seinna.

Ferðin var skipulögð sem rómantísk verslunarferð með frúnni og fótboltaleikurinn átti að vera aukaatriði (ekki í mínum huga) en stóð upp sem hápunktur ferðarinnar hjá okkur báðum. Ég hef aldrei farið á Goodison en ef það er í einhverri líkingu við að fara away megin með Everton stuðningsmönnum þá hlakka ég rosalega til að fara á leik þar.

Vil þakka Everton klúbbnum fyrir að redda okkur miðum.

COYB!

5 Athugasemdir

  1. Finnur skrifar:

    Ég hef farið á marga heimaleiki og séð minn skerf af sigurleikjum en á enn eftir að upplifa sigurleik á útivelli með eigin augum (reyndar í aðeins einni tilraun) — þannig að ég öfunda Halldór svolítið. 🙂

  2. Gunnþór skrifar:

    Sammála ykkur þetta er það skemmtilegasta sem maður hefur gert um ævina að fara á leiki á Englandi.

  3. Elvar Örn skrifar:

    Gaman að lesa þessa grein og ég á leið á minn fyrsta útileik Everton eftir nokkra daga.

    Hef sjálfur farið með þessum meisturum hér að ofan (ásamt mörgum öðrum) á Goodison Park og þær ferðir verið alveg magnaðar. Held að það sé kominn tími á ferð Everton klúbbsins á Íslandi á Goodison,,,eitthvað á plani á þessari leiktíð?
    Hvet menn til að fara með þessum hóp ef það er í boði.

    Já og Liverpool var að tapa fyrir Southampton bara núna og komast ekki í úrslitaleik bikarsins, ansans vesen 🙂

    • Finnur skrifar:

      Man ekki alveg hvað var ákveðið — held það hafi verið Everton – Burnley í apríl, en það er ekki fastmótað þannig að ef góður kjarni er með augastað á einhverjum ákveðnum heimaleik Everton þá er aldrei að vita nema hægt sé að gera það að formlegri ferð.

  4. Gestur skrifar:

    Gaman að lesa þessa ferðasögu, ég er að fara á minn annan útileik með Everton 1.apríl