Gordon West 1943-2012

Mynd: Everton FC.

Goðsögnin Gordon West, markvörður Everton frá 1962-1973, lést síðastliðinn sunnudag af völdum krabbameins, 69 ára að aldri. Hann var keyptur til Everton frá Blackpool rétt fyrir 19 ára afmælið sitt fyrir 27 þúsund pund, sem þá var breskt metverð fyrir markvörð en hann var fyrsti maðurinn sem stjórinn Harry Catterick keypti til liðsins. Gordon West átti eftir að hjálpa Everton að lyfta englandsmeistaratitilinum tvisvar, fyrst tímabilið 1962/63 (tímabilið sem hann kom til Everton) og svo aftur 1969/70 en hann vann einnig FA bikarinn með Everton árið 1966 og spilaði með enska landsliðinu. Þegar hann varð Englandsmeistari 1969/70 hélt hann marki Everton hreinu í samtals tuttugu og einum leik, sem er met sem enn stendur.

Þessi litríkur leikmaður var lykilmaður í sterku liði Everton en á 11 ára ferli spilaði hann rétt rúma 400 leiki fyrir liðið. Hann var einn af merkustu leikmönnum Everton síðari tíma, var tekinn í samfélag Everton stórmenna (e: Everton Giants) árið 2008 sem aðeins 20 aðrir leikmenn hafa náð gegnum tíðina. Hans verður sárt saknað.

Comments are closed.