Samið við Jake Adelson?

Ungliðastarfið hjá Everton er í fullum gangi eins og venjulega en Sky Sports var að greina frá því að þeir hefðu áreiðanlegar heimildir fyrir því að Everton hefði samið við Jake Adelson. Jake er 16 ára miðjumaður sem vakti áhuga nokkurra félaga en hann var undir handleiðslu þjálfara Everton á dögunum og stóð sig nógu vel til að vera boðið langtímasamningur. Hann kemur frá Blacktown City í Ástralíu og fór upp í gegnum unglingaliðsstarf New South Wales. Þessi frétt hefur þó ekki verið staðfest af klúbbnum.

Í öðrum fréttum er það helst að James Wallace framlengdi lán sitt hjá Tranmere um annan mánuð.

Comments are closed.