Marouane Fellaini til Everton fyrir 15m pund (Staðfest)

Everton setti í gærkvöld félagsmet þegar félagið keypti belgíska landsliðsmanninn Marouane Fellaini frá Standard Liege á 18,5 milljónir evra, 15 milljónir punda.

Standard Liege eru einmitt mótherjar Everton í UEFA Cup eftir að liðin drógust saman í keppninni fyrir skömmu.

Gengið var frá kaupum á honum rétt áður en félagskiptaglugginn lokaði í gærkvöld eftir að viðræður höfðu átt sér stað um helgina.

Everton staðfesti svo kaupin eftir miðnætti og Fellaini gerir fimm ára samning við Everton en kaupverðið 18,5 milljónir punda gæti hækkað gangi ákveðin atriði eftir í samningnum.

,,Þetta eru frábærar fréttir fyrir alla sem tengjast félaginu. Við höfum keypt einn mest spennandi leikmann Evrópuboltans sem mun eiga stóran hlut í Everton á næstu fimm árum," sagði Robert Elstone framkvæmdastjóri Everton á vefsíðu félagsins.

Fellaini er 20 ára gamall og hefur leikið 84 leiki fyrir belgísku meistarana og skorað í þeim ellefu mörk.

Hann vakti athygli í tapi gegn Liverpool í Meistaradeild Evrópu í síðasta mánuði og hafði einnig verið orðaður við tottenham og Aston Villa.

Hann lék sinn fyrsta leik með Belgíu á síðasta ári og hefur leikið 10 landsleiki auk þess sem hann lék á Ólympíuleikunum í Peking þar sem hann fékk rautt spjald í opnunarleiknum gegn Brasilíu fyrir tvö gul spjöld.

Frétt tekin af fotbolti.net

Ég held að þessi kaup hafi komið öllum Evertonmönnum á óvart enda var hann ekki búinn að vera mikið í umræðunni sem möguleg kaup. Fellaini er 194cm á hæð kemur hann því með mikla og góða hæð á miðjuna sem er eithvað sem okkur hefur vantað síðustu ár. Þetta eru eflaust þau kaup sem flestir evertonmenn voru að bíða eftir, enda sárvantaði okkur miðjumenn og ekki er verra að fá einn efnilegasta miðjumanninn í evrópuboltanum.

Einnig keyptu Everton varamarkmann Wigan hann Carlo Nash sem er 34 ára gamall og ætti því að koma með mikla reynslu í markmannsstöðuna. Ætla má að hann muni einungis vera cover fyrir Howard í markinu en alltaf mikilvægt að hafa varamarkmann sem getur gripið inní þegar það vantar.

Comments are closed.