Myndir: FBÞ
Everton klúbburinn á Íslandi fagnaði því að 20 ár eru liðin frá stofnun og hélt af því tilefni upp á tímamótin með grillveislu í Guðmundarlundi, Kópavogi, þann 16. maí. Spáð var algjörlega afleitu veðri þessa helgi en sú spá reyndist ekki rétt því við fengum afbragðs vorveður og grillveislan var í alla staði vel heppnuð.
Klúbburinn sendi jafnframt frá sér fréttatilkynningu á afmælisdeginum sem birtist ekki bara á 433.is og fotbolti.net heldur einnig á baksíðu Morgunblaðins, eins og sjá má á þessu PDF skjali, þar sem tekið var viðtal við bæði ritara, Finn Breka, og stofnanda klúbbsins, Albert Gunnlaugsson.
Hér að neðan má finna nokkrar myndir frá atburðinum (smellið á mynd til að fá stærri útgáfu).
Þorri og frú ásamt syni Hauks.
Fjör við grillið
„Já… er þetta hjá Luftguitar Pizzum? Mig langar að panta eina með öllum
áleggjunum sem þið eigið — fyrir utan ímynduðu ansjósurnar, það vill enginn borða þær…“
Mönnum leiddist sko ekkert…
Mæðgurnar sætar saman.
Ari mættur á svæðið…
Fagnaðarfundir…
Ekki leiðinlegt…
Eyþór og Halli öflugir við grillið.
Baldvin og Trausti.
Ari, Gordon og Halli.
Litli kútur hans Einars Gunnars.
Albert og barnabarnið, Albert.
Emma Ósk að leika sér
með plasthanska.
Mæðginin.
Hjónakornin…
Ennþá verið að afgreiða mat við grillið…
Kona Hauks.
Dóttir Alberts ásamt maka.
Trausti á góðri stundu.
Brugðið á leik eftir mat.
„Litli landkönnuðurinn“, eins og Ari kallaði hana,
lét sig ítrekað hverfa og pabbinn þurfti að sækja.
Ef grannt er hlustað má heyra fagnaðarlæti af Goodison Park…
„Litli landkönnuðurinn“
Einhverjir fleiri með borgara?
Annar landkönnuður…
Bjarki Freyr sáttur við sinn Svala eftir mat.
Anna Sólrún.
Baldvin.
Hópmynd í lokin (mögulegt að einhvern vanti).
Everton klúbburinn á Íslandi þakkar öllum sem mættu til að fagna þessum tímamótum með okkur og vonumst við til að sjá ykkur sem flest á næsta merkisáfanga — og helst fyrr.
Skemmtilegur dagur og fràbært myndir Finnur
Flottar myndir 🙂
Takk fyrir stórbrotna mynd af mér að panta pizzu hahaha
We aim to please… 😉